Tíminn - 26.02.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 26.02.1978, Blaðsíða 13
Sunnudagur 26. febrúar 1978 13 Maður lézt eft- ir hnífsstungu JB — Um klukkan hálf tvö að- faranótt sl. sunnudags var sjúkrabill kvaddur að húsi við Skólavörðustig 21. a i Reykja- vik. Þegar á staðinn var komið kom i ljós að maður hafði verið stungið þar með hnifi i brjóstið. Var hann þegar fluttur á Borgarspitalann þar sem hann lézt á gjörgæzludeild nokkru siðar. Maðurinn hét Arelius Viggósson fæddur 2. október 1955. Eiginkona hans var flutt til yfirheyrslu hjá iögregiunni og hefur hún viðurkennt að hafa veitt Areliusi heitnum stunguna sem varð honum að bana. Hún hefur verið úrskurðuð i allt að sextiu daga gæzluvarðhald og gert að gangast undir geðrann- sókn. Heitir hún Jenný Grettis- dóttir, fædd 24. marz 1952. Að þvi er kom fram við yfir- heyrslu á Jennýju höfðu þau hjón hitzt á dansleik fyrr um kvöldið og fóru siðan saman heim. Er þangað kom sinnaðist þeim það illilega að Jenný greip hnif og lagði til mannsins með fyrrgreindum afleiðingum. Unnið er að rannsókn málsins. Iðnaðarráðstefna á Suðurnesjum Laugardaginn 11. febrúar var haldin ráðstefna um iðnaðarmál á Suðurnesjum i samkomusal gagnfræðaskóla Keflavikur. Var öllum alþingismönnum Reyknes- inga ásamt bæjar- og sveitar- stjórnarmönnum á svæðinu boð- ið. Ráðstefnan var öllum opin og sóttuhanaum 800 manns.Eftir að forseti félagsins, Gizur í. Helga- son, hafði sett ráðstefnuna ávörp- uðu Þorvarður Alfonsson, aðstoð- armaður iðnaðarráðherra, og Jó- sept Borgarson, formaður sam- starfsnefndar sveitarfélaga á Suðurnesjum, ráðstefnugesti. Fyrri hluta ráðstefnunnar var varið til að kynna starfsaðstöðu iðnaðar á Suðurnesjum eins og hún er nú, og liklegar breytingar þar á, á n æstu á rum. Þessir menn fluttu erindi: Ólafur B. Ólafsson talaði um fiskiðnað, Bjarni Ein- arssonum skipasmiðar, Ellert B. Skúlason um vélaverktaka, Birg- ir Skúlason um þjónustuiðnað, Hreinn óskarsson um byggingar- iðnað og Egill Jónsson um fram- leiðsluiðnað. Siðara hluta ráðstefnunnar var varið til kynningar á vaxtar- möguleikum iðnaðar á Suður- nesjum.Leó M. Jónsson rekstrar- tæknifræðingur flutti erindi sem hann nefndi „Til hverra má leita?” Jónas Bjarnason dósent kynnti nýjar vinnsluaðferðir i fiskiðnaði. Kristján Friðriksson talaði um stofnun nýs fyrirtækis. Úlfur Sigurmundsson forstjóri Útflutningsmiðstöðvar iðnaðar- ins flutti erindi um iðnað við al- þjóðaflugvöll. Að tokum kynnti Ingólfur Aðal- steinsson framkvæmdastjóri Hitaveitu Suðurnesja verklegar framkvæmdir á vegum fyrirtæk- isins og starfsemi þess. Prjónafatnað úr nýja Gefjunarullargarninu Superwash má þvo í þvottavél (á ullarstillingu), vinda og þurrka eins og annan þvott án þess að flíkurnar hlaupi eða litir renni saman. Garnið er beitt sérstakri nýrri erlendri meðferð. Þunn efnahimna leggst utan um hvert ullarhár, og veldur því að garnið hleypur ekki eða þófnar í þvotti. Aðrir eiginleikar ullarinnar breytast ekki heldur. Gefjunarullin Superwash er mölvarin, hún upplitast ekki og litirnir þola þvott án þess að láta á sjá. Reynið þessa nýju framleiðslu og kynnist nýjum eiginleikum Gefjunar- ullarinnar Superwash. Ullarverksmiðjan Gefjun, Akureyri. Skefítu þvíbara íþvottavéfína! ÓDÝR OG RÚMGOÐUR Allt þetta fyrir 1.670.000 TH öryrkja 1.270.000 STATION 1.820.000 Til öryrkja 1.410.000 Umboðsmaður okkar á Akureyri er VAGNINN S.F. Furuvöllum 9 Sími (96) 1-14-67 FIAT EINKAUMBOD A ISLANDI Davíð Sigurðsson h.f. Síðumúla 35 Simar 38845 — 85855 BOLSKjlZSp

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.