Tíminn - 14.04.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 14.04.1978, Blaðsíða 3
Föstudagur 14. april 1978 IMni 3 Daniel Agústfnusson Ólafur Gu&brandsson Jón Sveinsson Framboðslisti Framsóknarflokksins á Akranesi Framboöslisti Framsóknar- flokksins viö bæjarstjórnarkosn- ingarnar á Akranesi er þannig skipaöur: 1. Daniel Agústinusson, aöal- bókari 2. ólafur Guðbrandsson, vél- virki 3. Jón Sveinsson, lögfræðingur 4. Bent Jónsson, skrifstofustjóri 5. Ingibjörg Pálmadóttir, hjúkr- unarfræöingur 6. Andrés Olafsson, bankagjald- keri 7. Stefán Lárus Pálsson, skip- stjóri 8. Björn Gunnarsson, verzlunar- stjóri 9. Jóhanna Karlsdóttir, kennari 10. Valgeir Guðmundsson, blikk- smiður 11. Björgólfur Einarsson, verka- maöur 12. Guörún Jóhannsdóttir, hús- móöir 13. Hreggviður Karl Eliasson, verkamaöur 14. Sigmar H. Jónsson, rafsuöu- maður 15. Þóra Einarsdóttir, húsmóöir 16. Gústaf Kristinsson, stýrimaö- ur 17. Jón Þorgrimsson, bifvélavirki 18. Ragnheiöur Guöbjartsdóttir, húsmóðir Hopp og hí í Verzló JB — Þessar myndir tók Gunn- ar ljósmyndari Timans, er dimmittentar Verzlunarskóla tslands fóru hamförum um miðbæ Reykjavikur I gær. t yfirreið sinni iitu þeir við inni á Ferðaskrifstofunni Sunnu og heilsuðu upp á Guðna Þórðar- son, en þeir ku hafa i hyggju að fljúga suður til sóiarlanda ineö Sunnu eftir að prófum lýkur i vor. Einnig átti forseti islands, dr. Kristján Eidjárn, leið um bæinn og fögnu&u Verzlunarskölanemendur honum me& söng og húrra- hrópum. Mótmælastaða herstöðvarand- stæðinga i Straumsvík 1 tilefni af þvi að meðlimir Stjórnunarfélags íslands fóru i kynnisferð i dótturfyrirtæki Alusuisse á Islandi, ISAL, efndu Samtök herstöðvaandstæðinga til mótmælastöðu við aðalhlið verk- smiðjunnar i gær. Markmið að- gerðanna var fyrst og fremst að undirstrika, að Nato og Alusuisse eru greinar á sama meiði heims- valdastefnunnar, segir i fréttatil- kynningu frá samtökunum. I hjálögðu bréfi frá miðnefnd SHA segir m.a.: „Þótt aðstandendur NATO og fjölþjóðlegra auðhringa veiti litl- ar sem engar upplýsingar um samspil þeirra hér, liggur i aug- um uppi, að með auknum fjár- festingum eykst einnig hættan á þjóðnýtingu, skemmdarverkum og öðrum aðgerðum, sem annað- hvort þjóðfrelsisöfl eða lýðræðis- leg stjórnvöld kynnu að gripa til. Til að fyrirbyggja slikar aðgerðir og vernda eignir og aðstöðu ALUSUISSE á tslandi, er NATO-herstöðin hér þeim ómet- anlegur bakhjarl. Kröfur herstöðvaandstæðinga eru þvi:GEGN HERVALDI — GEGN AUÐVALDI ÍSLAND ÚR NATO - HERINN BURT” Henriks Ibsen minnzt Aage llenriksen prófessor í norrænni bókmenntasögu við Hafnarháskóla heldur fyrirlestur i Norræna húsinu mánudaginn 17. april kl. 20:30þar sem hann talar um kvenpersónurnar I verkum Ihsens og nýja bók um Ibsen eftir Jörgen Haugan. Aage Henriksen er fæddur 1921 og varð prófessor við Hafnarhá- skóla 1961. Hann hefur einkum fengizt við rannsóknir á Bagge- sen Kirkegaard og Karen Blixen og skrifað um þau mikil verk. Kenningar hans liggja til grund- vallar 4-binda bókar Ideologs- historie og sjálfur á hann stærsta þáttinn að 1. bindi verksins „Organismetænkningen i dansk litteratur 1770-1870”. Um þessar mundir er 150 ára afmælis Henriks Ibsens minnzt viða um heim einkum þó i heima- landi skáldsins.Noregi. Aö þvi til- efni hefur verið sett upp ljós- myndasýning í anddyri Norræna hússins er lýsir ævi og starfi Hen- riks Ibsens. Það er utarikisráðu- neyti Noregs sem hefur látið gera og dreifa sýningunni. Aage Henriksen flytur enn- fremur erindi i Háskóla Islands á þriðjudag kl. 17:00 sem hann nefnir „Hvor stár humaniora i dag?” Vilhjálmur Bergsson við mynd sina, Samstirni. Vilhjdlmur notar tækni gömlu meistaranna viö gerö mynda sinna. Hann notar sérstakar oliur, sem hann blandar saman vi& litina til a& mýkja þá. Timamynd Gunnar. Lífrænar víddir G V—Vilhjálmur Bergsson listmálari mun opna einka- sýningu á Kjarvalsstööum i dag og verður sýningin opin til 23. aprfl n.k. Sýningin er opin frá kl. 4-10 virka daga og frá 2- 10 um helgar. Myndirnar á sýningunni eru alls 75 talsins og flestar mál- aðar á undanförnum sex árum. — Ég hef kallað þennan stil „lifrænar viddir” og ég byrjaði að mála i þessum dúr á árunum 1964-’66. Sumir segja að ég sé súrrealisti, eða abstraktmálari og aðrir segja að ég sé realisti, en ég segi, aö ég sé þetta allt I senn, sagði Vilhjálmur, þegar blaðamaö- ur kom að máli viö hann er hann vann að uppsetningu sýningarinnar. Þetta er fimmta einkasýn- ing Vilhjálms á tslandi, en hann hefur tekiö þátt I fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis. Rödd innanstokks í Alþýðubandalaginu: „Vonum seinna að til tíðinda dragi.... og ætti bardaginn að verða hinn víga legasti Um flokksvandamál Alþýðu- bandalagsmanna ritar frétta- stjóri Þjóðviljans i gær i rit- stjórnardálki i blaði sinu : „Alþýðubandalagið hefur lika þá sérstöðu meðal stjórnmála- flokka að innan þess viður- kennir enginn að hann langi i framboð þó eigi viðkomandi lif- • andi að drepa. Þar heitír það að menn séu pindir i framboð og þvi er vandlega leynt ef þing- maðurerimaganum. Hvernig á ff svo sem aö vera hægt að skrifa um framboðsmál i svona bæ?” Einari Karli Haraldssyni er sem sé fyllilega ljóst að það er ekki hógværðin eða hikið sem veldur vanda i flokknum um að velja á milli þeirra Svavars Gestssonar ritstjóra, Ólafs Ragnars Grimssonar prófess- ors, Asmundar Stefánssonar hagfræðings og Siguröar Magnússonar rafverktaka i framboð fyrir Alþýðubanda- lagið i Reykjavik. Fréttastjórinn lætur i grein sinni i ljós mikla óanægju yfir þvi að forráöamenn Þjóðviljans skuli hafa lokað blaðinu fyrir fregnum af átökunum innan flokksins i Reykjavik. Og hon- um þykir að þetta sé allt hálf- hlálegt: „Gott er til þess að vita að ekki skuli vera algert koppalogn kringum framboðsmál flokksins fyrir þessar kosningar og von- um seinna að til tiðinda dragi. Kapparnir eru báðir skeggjaðir vel og ætti bardaginn að verða hinn vigalegasti.” En þrátt fyrir þessa skemmt- an þykir fréttastjóra Þjóðvilj- and óþarflega mikið pukur i Alþýðubandalaginu. Hann segir: „Samt vilja menn einatt vera að pukrast og komast upp með það ef kastljós fjölmiðlanna er ekki stöðugt á þeim og samvizk- an lætur þá i friði.” Nú er eftir að vita hvern skiln- ing þeir Svavar, ólafur, Ragn- ar, Ásmundur og Sigurður ieggja I þessi timabæru orð fréttastjórans. Ogþesser einmg að vænta að uppstillingarnefnd flokksins grannskoöi samvizku sina fyrst svo er komið sem komið er. Og Einar Karl Haraldsson fréttastjóri Þjóðviljans gefur Alþýðubandalagsmönnum heil- ræöi, sem duga mun aö lik- indum til að halda leyndarmál- um flokksins frá almannavit- orði. Einar segir: „Eins og titt er felst þetta ráð i gömlu máltæki sem hljóðar svo: Þrir geta þagað ef tveir þeirra eru dauðir”. Skyldi það vera að hreinsanir séu á næstu grösum i flokknum að gömlum sið? Eða er þetta framtiðarsýn fyrir hönd Alþý ðuba nda lagsins ?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.