Tíminn - 26.04.1978, Blaðsíða 9

Tíminn - 26.04.1978, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 26. april 1978 9 á víðavangi Mistök? „Þegar útboð vegna raf- magnsvinnu við Kröflu fóru ' fram i marz 1976 kom lang- lægsta titboðið frá Rafafli, sem cr fyrirtæki i eigu for- ystumanna i Alþýðubandalagi og mjöghefur verið hampað á siðum Þjóðviljans. Tilboðið var upp U ca. 28.5 milljónir króna (en var siðan hækkað i 30.6 milljónir), en aðrir bjóð- endur voru mun hærri og töldu raunar að engin leiö væri aö vinna verkið fyrir þetta verð. Enda gerðist það aldrei. Árni Brynjólfsson hjá Lands- sambandi rafverktaka skrif- aði um það blaðagrein i nóvember siðastliönum að þá, og þá væntanlega einhvern timann i haust, væri búið að greiða fyrirtækinu um tæpar 132 — eitt hundrað og þrjátiu og tvær — milljónir króna. Upplýsingarum þaðhvernig á þessum viðbótum stæði voru ærið dularfullar., Sumt var viðbót við samning, annað efniskaup, aukaverk, vinna fyrir verktaka og loks um þrjátiu milljónir i verðbætur. Einar Tjörvi, verkfræðingur við Kröfluvirkjun, hefur upp- lýst i blaðaviðtali, að aldrei hafi farið fram útboð vegna þessara ■ „aukaverkefna”.” Þannig kemst hann Vil- mundur okkar Gylfason að orði i Dagblaðinu sinu sl. föstudag. Nú kann það að vera, að Vil- mundur fari ef til vill ekki ná- kvæmlega með einstök atriði og vera kann að tölur hafi eitt hvaðskolazt til hjá honum. En fyrr má þó vera viðkoma krónunnar hjá þvi ötula fyrir- tæki Kaíafli. Ef rétt er með l'arið er hér greinilega um að ræða alvarleg — og mjög kostnaðarsöm — mistök. Það skiptir ekki máli i þvi sam- bandi, hvort fyrirtækið hefur notað féð meöal annars til þess að fjárfesta i fyrra hús- næði Þjóðviljans og greiöa þannig fyrir fjármögnun Mið- garðshússins fræga — eins og Vilmundur fjölyrðir um i'grein sinni. Það sem skiptir almenning máli cr um fram allt hitt: Hafa hér orðið mistök i-útboð- um og samningum? Hyernig stendur á þeim mistökum ef svo er? Er um það að ræða, sem er þvi miður allt of-sjald- gæft, að einhver jir-séu ábyrgðarmenn að misfökun- um? Að óreyndu hljóta méníi að treysta þvi;—að spurniagum sem þessum verði fljótsvarað af hálfu þeirra sem unuhafa vélað. Tæplega vilja þeir liggja undh- ámæli Vilmundar Gylfasonar — eða hvað?^ Það er siðan annað mál að þeir Alþýðuhandalagsmenn eiga það sammerkt með Vil- mundi og fleirum okkar að sjá flisina i auga náungans en ekki bjálkann i eigin auga. JS Lífrænar víddir Vilhjálms Bergssonar Sfðastliðinn sunnudag lauk á Kjarvalsstöðum málverkasýn- ingu Vilhjálms Bergssonar list- rnálara en þar var hann með stóra sýningu.eins konar yfir- litssýningu scm snérist um vinnú slðasta áratugar eða svo. Vilhjálmur Bergsson gaf sýningunni nafnið „Lifrænar viddir” sem mun vera viða til siðs ennþá þótt velflestir hafi nú hætt þvi hér á landi a.m.k. en nöfn af þessu tagi gefa þó vissa ábendingu um innihaldið: þær eru þvi eins konar farmskirteini manns sem kemur af hafi. „Lifrænar viddir” Vilhjálmur Bergsson mun hafa dvalizt i Kaupmannahöfn og á meginlandi Evrópu undan- farin ár, þar sem hann hefur starfað að myndlistogtekið þátt i mörgum sýningum. I viðtali við blað hefur hann gefið i skyn að hann stefni að. Evrópufrægð með list sinni og má það vel vera.þvi’ hún hefur að minnsta kosti öll þau ytri einkenni sem nauðsynleg eru til frægðar og frama i heimi myndlistarinnar, sumsé að myndirnar eru allar likar hver annarri. Málarinn er með öðrum orðum ávallt að mála sömu myndina, aftur og aftur, en skýrum það nú ögn betur. Það er staðreynd að þeir málarar sem nú ná frægð. ná henni innan mjög takmarkaðs sviðs. Ágættdæmi um þetta var sýning Hundertwassers hér um árið. Hann málaði spirala og notaði sömu litina i' allar myndirnar. Hætti sér ekki frá þessu viðfangsefni né i f jarskyld afbrigði i t.d. lit eða formi. Sama gera hundruð manna ef ekki þúsundir. Velja sér hlut- skipti þröngt sérsvið, eða sér- grein og siðan þylja þeir hinn gregoriska söng i áraraðir og biða frægðar. Við þessar aðstæður er ekki að vænta mikillar fjölbreytni þótt viss þróun eigi sér stað. Ég sá sýningu Vilhjálms Bergssonar mér til mikillar ánægju. Myndir hans minna á örverulif, sólkerfi eða liffæri geymd i formalini eða sírópi á glösum. En hvað um það.þótt hliðstæður sé erfitt að skýra. Það sem einkennir þessar myndir er vandvirkni og kunn- átta til verka. Margir ágætir myndlistarmenn virðast hafa nægar hugmyndir til mynd- sköpunar en verður litið Ur efni sinu vegna slakrar verkkunn- áttu og skorts á vandvirkni. Vilhjálmur Bergsson notar litablöndur sem þekktar eru Ur verkum gömlu meistaranna. Vissar oliur gera litina „transparent” ogvalda speglun, endurskini. Við þessar oliur heldur Vilhjálmur sig alltaf i oliumyndunum. Þær eru ásamt myndefninu sólkerfúm og undarlegum lifrænum viddum, tákn þessara mynda. Gildi þess- ara litla verður auðsætt, þegar maður skoðar teikningar Vil- hjálms sem ná ekki hugblæ oliu- myndanna þótt góðar séu. Viðdáumst að þeirri siðfágun sem var yfir þessari stóru sýn- ingu og við virðum þessi mein- læti i alla staði og spáum að Evrópufrægðin komi þótt auð- vitað verði hún að biða síns tima. Vilhjálmur mun hafa haldið sina fyrstu sýningu i Reykjavik árið 1961 þá ennvið nám i Paris. þannig að hann hefur öðl- azt góða reynslu sem málari, enda voru viðtökur manna góöar og margar myndir seldust. Á sýningu Vilhjálms voru að þessu sinni 75 myndir, 63 oliu- myndir og 12 teikningar. Myndnöfnin eru lika áhuga- verð og segja sina sögu um hugarheim málarans og hið strangt afmarkaða ástand, en meðal nafna eru: Utan hrings og innan, Þri- tengslahvel, Nökkvasvif, Lif- miðja, Baugavefur, Þensla, Verðandi, Jafnvægi, Lifræn til- brigöi, Rúmbygging og Sam- stirni. Teikningarnar eru settar skör lægra og heita ekkert. Myndirnar eru málaðar á ár- unum 1970-1978 og hefur málar- inn þvi setið innL i þessum hugarheimi i a.m.k. átta ár. Um framhald er óráðið^kkert nýtt verður a.m.k. ráðið af þess- ari sýningu,hvað sem siðar ve- rður. Jónas Guðmundsson Færeyjafarar 1977. Kórinn ásamt stjórnendum, pianóleikara og skóla- stjóra. Pyrsta hljómplata Skólakórs Garðabæjar með 17 lögum FI — Komin er út plata með söng 35 barna á aldrinum 9-13 óra úr Elataskóla i Garðabæ. Á plötunni eru 17 lög, upplestrar og fleira. Sex stúlkur syngja einsöng meö kórnum. Plata þessi er gefin út i tilefni af 20 ára afmæli Flata- skóla, áöur barnaskóla Garða- lirepps, en hann er nú að ljúka sinu 20. starfsári. Á hlið eitt eru islenzk og erlend þjóðlög og barnagælur og eru lög- ineftir Jórunni Viðar, Jón Þórar- insson, Jón Ásgeirsson, Egil Frið- leifsson, Lajos Bardos, Mozart og fi. Höfundar texta eru m.a. Jónas Hallgrimsson, Kristján frá Djúpalæk, Hildigunnur Halldórs- dóttir. Á hlið tvö eru eingöngu frum- samin lög eftir annan söngstjóra kórsins, Guðmund Norðdahl. Lögin eru öll samin við texta Ur barnaleikritum Ragnheiðar Jóns- dóttur rithöfundar, Hlyna kóngs- syni og Sæbjörtu, og urðu til á árshátiðum skólans. Ifafa þau ekki birzt áður eða verið sungin utan skólans. Skólakór Garðabæjar var formlega stofnaður 1. des. 1976. Hann hefur sungið viða fyrir fé- lagasamtök á sjúkrahúsum og hælum og við kirkjulegar athafn- ir. Hann kom fram á landsmóti isl. barnakóra i marz 1977, fór i söngför til Færeyja vorið 197.7 og fer i söngferðalag til Norðurlands dagana 4.-7. mai nk. og syngur (með öðrum kórum ) i Stórutjarn- askóla 4. mai, i Hafralækjarskóla 5. mai,að Laugum i Reykjadai sama dag, i HUsavikurkirkju 6. mai' og i Akureyrarkirkju sunnu- daginn 7. mai. Stofnendur Skólakórs Garða- bæjar voru Guðmundur Norðdahl og Guðfinna Dóra Ölafsdóttir. en þau stjórna kórnum nU. Þetta er fyrsta plata, sem gefin er Ut i Garðabæ. Aðeins 450 eintök verðatilsöiu og dreifingar. í frett frá kórnum segir, að hún geti þvi orðiö verðmætur minjagripur, er fram liða stundir og að sjálfsögðu góö sumargjöf. KRABBAMEIN VILMUNDAR GYLFASONAR Miðvikudaginn 12. april var Vilmundur Gylfason á fundi að ræða við væntanlega kjósendur sina. Alþbl. getur þess 15. april, að hann hafi rætt um Samband islenzkra samvinnufélaga, ólýðræðislega uppbyggingu þess og m.a. sagt, að almennir félagsmenn ættu að kjósa fram- kvæmdastjóra og forstjóra Sambandsins beinum kosning- um. Ræður Vilmundar hafa ekki verið birtar orðréttar, en greinagóður og vandaður fund- armaður segir mér, að hann hafi tekið til orða á þessaleiö: „Sambandið er krabbamein i islenzku efnahagslifi sem þarf að uppræta.” NU hef ég að sönnu reynslu af þvi, að Vilmundi virðist láta mun betur að slá fram gifuryrð- um en aðræða mál til hlitar. Ég tel nokkurn veginn fullreynt, að hann fæst ekki til að ræða eða rökstyðja fyrri hrópyrði sin um samvinnuhreyfinguna. Hins vegar lætur hann ekki af ádeil- 'um og brigzlum á mannfundum. Þar sem Vilmundur sækist eftir þvi að komastá þing er það gagnlegt almenningi að vita hvort hann er maður til að standa viö orð sin og ádeilur og hvort hann hefur einhverjar skoðanir um það hvernig eigi að skipa málum og stjórna. Þvi vil ég nú enn leggja að Vilmundi að birta svör við þeim .spurningum sem á eftir fara. Jafnframt bendi ég á að svari hann engu munu margir eða flestir telja að hann sé ekki maður til þess og hafi jafnvel enga skoðun á sumum þeim málum sem hann hrópar hæst um og þar sem hann atyrðir aðra freklegast. 1. Hefur samvinnuhreyfingin glatað einhverjum hugsjónum sem einkenndu hana i upphafi og hverjar eru þær, ef svo er? 2. Á sam vinnuhreyf ingin eitthvað vangert viö bændur og hvað er það þá helzt? 3. Á að reka verzlun á félags- legum grundvelli? Ef svo er, hvernig á þá að haga henni við innflutning, útflutning og smá- sölu? Þessar spurningar læt ég nægja að sinni. Ætlist Vilmund- ur til þess að hann verði gerður pólitiskur landlæknir fer vel á þvi, að hann geri nánari sjUk- dómsgreiningu á krabbameini þvi, sem hann talaði um 12. april. H.Kr. ÍEcSEGJ Auglýsingadeild Tímans

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.