Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982. 17 Tþróttir 'Umsjón: Sigurður Helgason ER PEIUR EKKI LOGLEGUR? — Hann hefur ákveðið að leika með ÍR, en hefur hann réttindi til að leika sem áhugamaður? ■ Pétur Guðmundsson, sem leikið hefur með bandaríska körfuknattleiks- liðinu Portland Trailblazers að undan- förnu hefur snúið heim og ákveðið að leika með liði ÍR í úrvaisdeildinni. Varð ÍR fyrir valinu, en hann hafði staðið í viðræðum við önnur félög en niðurstaðan varð sú, að hann óskar eftir að leika með ÍR-liðinu, sem er eitt á botni úrvalsdeild- arinnar og hefur ekki hlotið stig ennþá en leikið sex tapleiki. Það er mikill styrkur fyrir ÍR-inga að fá Pétur tii liðs við sig, en þá hefur einmitt vantað illilega stóran leikmann í leikjunum að undanförnu. En sú spurning hefur vaknað hjá mörgum körfuknattleiksáhugamönnum, hvort Pétur, sem leikið hefur sem atvinnumaður sé löglegur í áhuga- mennskunni hér á landi. Til að fá upplýsingar í því sambandi hafði Tíminn samband við Heiga Ágústsson formann KKÍ og spurði hvort Pétur væri löglegur hér í úrvalsdeildinni. Helgi sagði, að hann muni í dag hafa samband við Alþjóðakörfuknattleiks- sambandið og Körfuknattleikssamband Bandaríkjanna og ætlaði hann að ræða lagalega stöðu Péturs. Bandaríska sam- bandið þarf að gefa út áhugamannaskír- teini fyrir Pétur eigi hann að geta leikið sem áhugamaður. „Það eru fordæmi fyrir því, að erlendir leikmenn sem verið hafa hér á landi séu fyrrverandi atvinnumenn. Má nefna Stewart Johnson, en hann hefur fengið áhugamannaskírteini, en hvernig veit ég ekki,“ sagði Helgi Ágústsson að lokum. Þetta er stórmál hvort Pétur geti gengið beint inn í keppni hér á landi og stingur það nokkuð í stúf við t.d. þá afstöðu sem beiðni Janusar Guðlaugs- sonar um leyfi til að ieika handknattleik með FH fékk hjá forystumönnum í- þróttahreyfingarinnar. Gekk mjög illa að fá fram afstöðu í því máii, vegna þess að Janus er fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og það kom í veg fyrir að hann fengi keppnisleyfi í handknattleik hér á landi. Það er mjög mikilvægt fyrir alla aðila að úr því verði skorið sem allra fyrst hver staða Péturs sé, hvort hann megi leika hér á landi eða ekki. Það væri verra ef einhver málarekstur yrði eftir á og það kynni að valda miklum skaða. Þess vegna er nauðsynlegt að koma málinu á hreint og vinnur stjórn KKÍ að því þessa dagana. Næsti leikur IR í urvalsdeildinni er gegn ÍBK 19. nóvember n.k. sh Hörður medÍA ■ Hörður Helgason hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildarliðs IA í knattspyrnu á næsta keppnistímabili. Forráðamenn knattspyrnumála á Akranesi fóru þess á ieit við Hörð að hann tæki starfið að sér og gaf hann jákvætt svar við því. Hörður hefur áður stjórnað liði IA eftir að George Kirby fór aftur til Bretlands 1980 og þá náði lið í A ijórða sæti í 1. deild. Allir leikmenn ÍA eru mjög ánægðir með ráðningu Harðar og er mikill hugur í Skagamönnum eins og endranær að standa sig vel í hinni hörðu 1. deilarkeppni næsta sumar. ■ Hörður Helgason Tveir unglinga leikir — gegn írum og Norður írum ■ í kvöld verður háður síðari lands- leikur íslands og írlands í Evópukeppni unglingalandsliða í Dublin. Fyrri leikur- inn var háður í Reykjavík 6. október s.l. og lauk honum með jafntefli 1-1. Það lið sem sigrar í leiknum í Dublin kemst í úrslitakeppnina sem fram fer í Englandi í maí í vor. Unglingalandsliðinu hefur einnig verið boðið að leika vináttulandsleik gegn Norður-írum og verður sá leikur háður í Belfast á morgun fimmtudag. Haukur Hafsteinsson landsliðsþjálfari hefur valið eftirtalda leikmenn til þátt- töku í leikjunum teimur: Markmenn: Friðrik Friðriksson, Fram Birkir Kristinsson, ÍBV Aðrir leikmenn: Engilbert Jóhannesson, ÍA Guðni Bergsson, Val Ingvar Guðmundsson, Val Jón Sveinsson, Fram Magnús Magnússon, UBK Stefán Pétursson, K.R. Hlynur Stefánsson, ÍBV Ólafur Þórðarson, ÍA Pétur Arnþórsson, Þrótti Sigurður Jónsson, ÍA Örn Valdimarsson, Fylki Halldór Áskelsson, Þór Steindór Elísson, UBK Steingrímur Birgisson, KA sh ■ Pétur Guðmundsson í leik með Portland. Mills fer til Sunde ■ Mick Mills, sem var fyrirliði enska landsliðsins í heimsmeistara- keppninni á Spáni hefur verið seldur frá Ipswich. Það var Sunderland sem hreppti þennan frækna kappa sem þykir afbragð annarra varnarmanna og mikill baráttumaður og góður félagi. Chelsea var einnig á höttunum á eftir Mills, en hann sýndi því ekki áhuga og er það talið vera vegna mikilla fjárhagserfiðleika sem félagið á við að stríða, eins og reyndar svo mörg lið í Englandi. Að undanförnu hafa verið háværar raddir uppi í Englandi um það að senn liði að því að Mills færði sig um set og fengu þær raddir byr undir báða vængi cr félagaskiptin voru tilkynnt. ■ MickMills. Söluverð Mick Mills var 50.000 pund. ÞiTr nýir — í landsliðshóp Englands ■ Þrír ungir og bráðefnilegir lcik- menn hafa veríð valdir í landsliðshóp Englands, sem leikur gegn Grikkjum í Salonika 17. nóvember næstkom- andi. Þetta eru þeir Paul Goddard West Ham, Sammy Lee Liverpool og Danny Thomas Coventry. Þeir hafa allir leikið mjög vel að undan- förnu og eftir leik Englendinga og Vestur-Þjóðverja undir 21 árs tóku að heyrast háværar kröfur um sæti til handa Sammy Lee í A-landsliði Englands. Þessar raddir virðast hafa fengið áheyrn hjá Bobby Robson og líklegt er, að hann muni nota þetta tækifæri vel verði hann látinn leika með. Hvorki Glenn Hoddle né Ray Wilkins munu leika með og eykur það vissulega líkurnar á að Sammy Lee verði látinn leika með gegn Grikkjum. Tveir þeirra leikmanna sem voru í hópnuin gegn Þjóðverjum verða ekki með, vegna þess að þeir hafa verið valdir í lið leikmanna undir 21 árs sem leikur gegn Grikkjum í Aþenu 16. nóv. Þetta eru þeir Mark Chamberlain Stoke og John Barnes Watford. Almenn ánægja með McField á Akureyri ■ Mikil ánægja er á Akureyri með Robert McField, Bandarikjamann- inn sem ieikur nteð 1. dcildarliði Þórs í körfuknattleik. Hann þykir rnjög góður þjálfari og einnig er hann gcysistcrkur lcikmaður. Til marks um styrk hans, niá nefna að í þcim 7 leikjum sem Þórsarar hafa leikið í haust hcfur hann skorað 43jStig sem er frábær árangur. Og ekki þykir það verra, að skotanýting hans er mjög góð. Um siðustu helgi léku Þórsarar eins og sagt var frá í blaðinu í gær i Borgarncsi og í lcikjunum tveimur þar skoraði McField hvorki meira né minna cn 110 stig. ★ Knattspyrnu- deild Breiða- bliks með adalfund ■ Aðalfundur knattspyrnudeildar Breiðabliks vcrður haldinn um næstu hclgi, nánar tiitekið á laugardag klukkan 13.00 í Félagsheimili Kópa- vogs. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf og iagabreytingar. ★ ÍS leikur í 1. umferð ■ Þcgar dregið var í bikarkeppni KKÍ í fyrradag vantaði eitt lið í pottinn lýrir mistök. Þar af lciðandi vcrður ekkert úr því að lið ÍS sitji hjá í 1. uinfcrð, lieldur fær það leik gegn B-liði ÍR sem ckki hafði vcriö tekið með. ★ Ársþing KSI ■ Ársþing Knattspyrnusambands íslands verður haldið dagana 4. og 5. dcscnbcr næstkomandi að Hótel Loftleiöum. Það hefst klukkan 10.00 á laugardcginum. Sambandsaðilar eru minntir á að skila ársskýrslum þcgar í stað. ★ X Þeir flýdu af hólmi ■ Fyrir skömmu voru þrír norskir lyftingamcnn scndir í lyfjapróf á lögreglustöð í Osló. ETkki hcfur samviska þeirra allra verið alvcg hrein, því tveir þeirra flýðu af hólmi. Einn þeirra var starfandi lögreglu- maður og þekkti allar leiðir út af stöðinni. Honum og fclögum hans hefur vcrið fyrirskipað að mæta til lyfjaprófs innan einnar viku. Ástæð- an fyrir því að sá frcstur er settur er, að ef lcngur cr beðið gætu áhrif anaboliska steroider, sem er eitt þeirra lyfja sem notuð cru.fjarað út.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.