Tíminn - 12.11.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.11.1983, Blaðsíða 1
Samstarf um hagrædingarátak hjá ríki og sveitarfélögum - Sjá bls. 3 Bla 1 ð 1 Tvö blöð í dag Helgin 12.-13. nóvember 1983 263. tölublað - 67. árgangur Sidumúla 15-Posíholf 370Reykjavík-Ritstjorn86300-Auglysingar 18300- Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306 Hæstarétt- ardómur í máli Time Incorporated gegn Frjálsu framtaki: OHBMILT AÐNOTAORNÐ llF SEM NAFN A TtMARITI — Meirihluti dómara taldi „Líf” og „Life” off líkt og því hættu á misskilningi ■ „Frjálsu framtaki hf er óheimilt að nota orðið „líf ‘ sem nafn á tímaritinu „líf““, segir í dómsorðum dóms Hæstaréttar í máli Time Incorporatcd gegn Frjálsu framtaki hf sem kveðinn var upp s.l. fimmtudag. í málinu var deilt um hvort hætta sé á að villst verði á vörumerki því sem áfrýjandi fékk skráð hér á landi 14. september 1949 og hefur að aðalatriði orðið LIFE, og nafni tímaritsins „líf‘. Frjálst framtak hf. var sýknað í undirrétti en Time Incorporated áfryjaði mál- inu til Hæstaréttar í september 1981. {dómnum segir að enska orðið life og íslenska orðið líf séu að rithætti mjög lík, enda að upp- runa sama orðið. Þau merkja nokkurn veginn það sama og merking hins enska orðs má teljast alkunn hér á landi. Áfrýj- andi notar vörumerki sitt sem nafn á tímariti, enda var það upphaflega skráð í Washington árið 1937 fyrir vikurit. Tímaritið LIFE er þekkt hérlendis og fram- kvæmdastjóra stefnda kunnugt, um það. Stefndi notar orðið „líf“ sem nafn á tímariti ætluðu al- mennmgi. Verður samkvæmt þessu að telja hættu á að villst verði á nafni tfmarits stefnda og hinu skráða vörumerki. Enn- fremur ber á það að líta að ætla má að vörumerki áfrýjanda hafi náð slíkri markaðsfestu að heiti tímarits stefnda sé til þess fallið að vekja hjá almenningi þá trú að um viðskiptatengsl sé að ræða. Frjálsu framtaki var einnig gert að greiða 30.000 krónur í máls- kostnað til áfrýjanda. Hæstarétt- ardómararnir Þór Vilhjálmsson, Guðmundur Jónsson, Halldór Þorbjörnsson, Sigurgeir Jóns- son og Jónatan Þórmundsson prófessor dæmdu málið. Þór Vilhjálmsson og Guð- mundur Jónsson skiluðu sérat- kvæði, þar sem segir að með vísan til forsendna áfrýjaða dómsins verði ekki villst á vöru- merki áfrýjanda og tímaritshefti stefnda eins og það hefur verið notað. Því beri að staðfesta áfr- ýjaða dóminn og dæma áfr- ýjanda til að greiða stefnda 25.000 krónur í málskostnað fyr- ir Hæstarétti. GSH ■ Keppni í Suður-Amerískum dönsum fór fram á Hótel Sögu á fimmtudagskvöld. Þar tóku þátt pör frá Hong Kong, Ástralíu, Englandi og Danmörku. Þetta var í fyrsta skipti sem alþjóðadanskeppni er haldin á Islandi en keppnin var á vegum Nýja dansskólans, enska tímaritsins Dans News, Gildis hf og Almennra líftrygginga. Danska parið Colin James og Lene Mikkelsen sigraði í keppninni og var þeim og öðrum danspörum fagnað mjög af áhorfendum. Annar liður keppninnar verður í kvöld á Hótel Sögu. Tímam Árni Sæberg ■ FuUtrúi Sikorskyverksmiðjanna stígur út i flugvél Land- helgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi við komu vélarinnar frá ísaflrði en þangað fóru rannsóknarmenn í gær til að kanna aðstæður í Jökulljörðum.þar sem TF-RÁN liggur á 84 metra dýpi. Túnamynd Árni Sæberg Stjórnarfrumvarp væntanlegt um höfundarétt á myndböndum: LÖGBRJÓTUNUM VERDI GERT AÐ SÆTA OPINBERRI ÁKÆRU ■ „Það er visst tómarúm í réttarvernd höfundarrétthafa eins og er og það skerðir og slævir réttarvitund almennings að geta horft upp á menn stunda afbrot án þess að neitt sé gert í máUnu“ sagði Gunnar Guð- mundsson, lögmaður og fram- kvæmdastjóri Samtaka rétthafa myndbanda á Islandi í samtali við Tímann en undanfarið hafa gengið úrskurðir í mörgum lög- bannsmálum á myndbönd sem myndbandaleigur hafa leigt út í óleyfí. Þrátt fyrir lögbönnin hafa ýmsar myndbandaleigur orðið uppvísar að því að leigja mynd- irnar út áfram. „Viðurlög eru nú skaðabætur og sektir og ef myndbandaleigur verða uppvísar að því að leigja út myndir sem lögbann hefur verið sett á getur lögreglan tekið efnið og þá koma viðbótarfjár- kröfur. Þetta er hinsvegar mjög seinlegt og það er einmitt það sem þessir aðilar stíla uppá“ sagði Gunnar ennfremur. í lögum nú er ekkert sem kveður á um aðrar refsingar en fésektir fyrir svona brot en að sögn Gunnars verður lagt fram ■ frumvarp á Alþingi á næstunni sem væntanlega verður stjórn- arfrumvarp, þar sem um veruleg- ar réttarbætur verður að ræða því þar er lögbrjótum höfundar- réttar gert að sæta opinberri ákæru. „Þetta er réttlætismál fyrir alla rétthafa höfundarréttar að þeir njóti frekari verndar í lögum‘‘ sagði Gunnar. Lögbönn hafa verið lögð á alla titla frá fyrirtækjunum 20th Century Fox, MGM, Warner Brothers, United Artists og frá CIC og standa staðfestingarmál fyrir dyrum hjá Bæjarþingi Reykjavíkur í þessum mánuði. Þrátt fyrir lögbönn hafa sumar vídeóleigur leigt þessar myndir út áfram og hefur lögreglan oft haft afskipti af þessum málum undanfarið, sérstaklega hjá Vídeóheiminum. GSH Björgunarmönnum tókst að festa bauju vid TF-RÁN: VORU 7 TÍMA VID VERKIÐ! ■ Tæknimönnum frá Neta- gerð Vestfjarða tókst í fyrri- nótt að festa belg við annað ufturhjól þyrlunnar TF-RÁN sem liggur á hvolfí á 84 metra dýpi í Jökulfjörðum. Með að- stoð sjónvarpsmyndavélar frá netagerðinni tókst þeini að smeygja kaðallykkju um hjólið. Þetta verk tók 7 klukkutíma og þvi lauk um kl. 6.00 í gærmorgun. Myndavélin var flutt á slys- staðinn í fyrradag á vélbátnum Sigga Svcins cftir að tekist haföi að staðsetja þyrluna eftir hljóðmcrkjum frá neyðarsendi hennar. Með vélinni tókst að ná myndum af þyrlunni sem virðist vera nokkuð heilleg og síðan tókst með aðstoð hennar að smeygja kaðli um hjólið. Þetta var mjög erfitt verk þar sém skyggni var aðeins um 70 sentimetrar. Menn frá rannsóknarncfnd flugslysa auk fulltrúa frá Si- korskyverksmiðjunum fóru vestur í gær að kynna sér aðstæður. IsamtaliviðTímann sagði Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, að önnur sjónvarpsmyndavél frá Björgunarféiaginu hefðl verið flutt vestur og í nótt verður reynt að koma festingu á hitt afturhjól þyrlunnar. Síð- an vcrður athögað hjá Si- korskyvcrksmiðjunum hvort styrkleiki hjólafestinga vélar- innar sé nægur. til að hægt sé að hlfa vélina upp. í dag koma til landsins mcnn frá bandaríska flotanum til að athuga aðstæður, en rætt hefur verið um að fá aðstoð þaðan við að bjarga þyrlunni. GSIÍ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.