Tíminn - 04.03.1988, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.03.1988, Blaðsíða 13
Föstudagur 4. mars 1988 Tíminn 13 lllllliii' MINNING llllllllllllllllllllllllllllllllll Bræöraminni Brynjólfur Guðmundsson Fæddur 10. febrúar 1897 Dáinn 20. janúar 1988 Austur við Stóru-Laxá innikreppt og einangruð liggur jörðin Sólheim- ar í Hrunamannahreppi. Jörðin er landstór, talin kostajörð, slægjur góðar og hagasælt á vetrum. Fyrir austan og neðan bæinn rennnur Stóra-Laxá. Laxveiðin þar hefur frá fyrstu tíð verið mestu hlunnindi jarðarinnar, en hún hefur einnig tekið sinn toll og brotið landið jafnt og þétt og hrifið með sér slægjur og graslendi. Landslagi er þarna svo háttað, að útsýni er lítið og ekki sést til annarra bæja. Við jarðamat 1709 var tvíbýli á jörðinni og svo mun oft hafa verið öðru hvoru síðan. Fyrir og fram um síðustu aldamót bjuggu þar hjónin Eiríkur Jónsson og þriðja kona hans ekkjan Guðrún Sigurðardóttir frá Gelti í Grímsnesi. En eftir lát Eiríks brá Guðrún búi og þá var uppi sú ráðagerð, að þangað flyttu dóttir, hennar Ingunn Þorkelsdóttir og Steinn Jónsson maður hennar, sem þá bjuggu í Miklaholti í Biskups- tungum. En sá Ijóður var á því ráði, að á Sólheimum lá bráðapest í landi, sem oft hafði þar höggvið stór skörð í fénaðinn. Af þessu frétti maður niðri í Flóa, Guðmundur bóndi á Skúfslæk, og býður þeim nú jarða- skipti sem líka að ráði varð. Árið 1899 fluttu þau svo að Sólheimum hjónin frá Skúfslæk, Guðmundur Brynjólfsson frá Keldum á Rangár- völlum og Guðrún Gestsdóttir frá Skúfslæk. Jörðin var leigujörð en ekki er mér kunnugt um afgjald eða skil- mála. Þrjú börn voru þeim hjónum þá fædd og var Brynjólfur sem hér er minnst tveggja ára, f. 10. feb. 1897. Svo liðu árin. Tíðarfar var oft misjafnt og erfitt fyrst á öldinni og börnin urðu 12. Þá var það veiðin í ánni, sem einkum bjargaði. Árið 1918 verður fyrir margra hluta sakir minnistætt. Fyrst fyrir hin miklu frost með hafís, sem yfir gengu í janúar og febrúar, síðan kalt sumar og gífurlegt grasleysi. Um haustið hófst Kötlugos með öskufalli og kolamyrkri yfir byggðir. Skuggi eldgossins leið hjá, en í kjölfarið fylgdi annar geigvænlegri skuggi. Hann kom erlendis frá, lagðist fyrst yfir Reykjavík svo íbúar hennar féllu í valinn hundruðum saman. En sá dimmi dauðaskuggi dreifðist jafn- framt út um byggðir landsins, gerði sér ekki mannamun, lagði að velli fyrirvinnu heimila, bændur og hús- freyjur jafnt sem aðra. Heimilið á Sólheimum fór ekki varhluta af þeim vágesti, því að þær féllu í valinn húsfreyjan, Guðrún Gestsdóttir, og ein dóttir þeirra hjóna. Þetta var spánska veikin svonefnda. Þegar hér var komið var Brynjólf- ur Guðmundsson um tvítugt. Guð- mundur faðir þeirra bjó áfram með börnum sínum og bústýru Margréti Erlendsdóttur. Á árunum 1918-1926 átti Félag Hreppamanna jörðina Ragnheiðarstaði í Flóa. Þar var Brynjólfur bústjóri um tveggja ára skeið. En um vorið 1926 tók hann við búi á Sólheimum og bjó þar næstu fjögur árin eða til vors 1930. En þá urðu þáttaskil í lífi hans. Vorið áður, 1929, kom kona lausríð- andi suður yfir fjöll norðan úr Eyja- firði, Líney Elíasdóttir frá Helgár- seli í Öngulstaðahreppi. Hún var kaupakona í Galtafelli um sumarið. Hófust þá kynni með þeim Brynjólfi og gengu þau í hjónaband árið eftir. Þá um vorið 1930 hófu þau búskap í Hruna ásamt prestinum þar, Jóni Thorarensen. Áð ári liðnu eða 1931 fluttu þau að Sólheimum og bjuggu þar ein til vors 1934. Þá fluttu þangað um vorið frá Hörgsholti hjónin Magnús Sigurðsson og Sigríð- ur Guðmundsdóttir frá Dalbæ. Pá var þar byggður bær og tvíbýli var þar næstu fjögur árin eða til vors 1938, að þau Magnús fluttu að Bryðjuholti. Eftir það bjuggu þau Brynjólfur og Líney ein á Sólheim- um næstu lOárin eða til ársins 1948. En þá varð breyting á högum þeirra. Það vor fluttu þau sig frá Sólheimum að Syðra-Seli og voru þar til húsa næstu tvö árin en nytjuðu jörðina og höfðu þar fénað, sem Brynjólfur gegndi á vetrum, sem harðsótt gat verið í vondum veðrum Þessi vetur 1948-49 mun vera annar mesti snjóavetur á þessari öld. Auk þess er á leiðinni frá Seli að Sólheim- um yfir Litlu-Laxá að fara, sem oft getur orðið torfarin og ófær á vetrum. Næsta vetur var hann svo til húsa í Hlíð í Eystri-Hrepp, en þar er einnig yfir á að fara, Stóru-Laxá. Hún hélst lengur á ís en gat hlaupið og orðið ófær dögum saman. Orsök- in til þessa flutnings var sjálfsagt fleiri en ein. Þau sátu í leiguábúð og landsskuldin þótti þeim svo há orðin að varla yrði við unað. Burtförin gat því verkáð sem þrýstingur á það, að jörðin yrði seld. Einnig má líta á það, að bærinn var einangraður í fámenni, langt til annarra bæja og samgöngur erfiðar um vegleysur. Ekki mun Brynjólfi hafa verið létt um að fara frá Sólheimum út í óvissuna, enda mun stærsti draumur hans hafa verið sá að flytja þangað aftur. En svo fór, að jörðin var laus til kaups og ábúðar vorið 1949. Það voru fleiri en Brynjólfur, sem höfðu hug á kaupum, en hann átti erfitt með að sleppa því úr hendi sér, sem hann hafði lengi þráð og festi því kaupin. Vorið 1950 fluttu þau hjónin svo aftur að Sólhcimum. Það vildi ég halda, að hafi verið Brynjólfi eftir- minnileg stund, stóru langþráðu tak- marki náð. Þess er næst að geta, að þau hjón eignuðust tvær dætur: Guðrúnu f. í Hruna 1931, búsetta í Reykjavík, og Erlu f. 1934. Óg enn bjuggu þau til ársins 1955, að þau létu jörð og bú í hendur dóttur sinni og manni hennar, Kor- máki Ingvarssyni frá Hvítárbakka. Líneyju konu sína missti Brynjólfur árið 1972. Hún var stórbrotin kona, harðdugleg, hreinskiptin og elskaði hesta. Þau voru ólík um margt en bæði voru skepnumanneskjur, áttu fallegar og arðsamar skepnur. Þau voru gestrisin og höfðingjar heim að sækja. Brynjólfur Guðmundsson náði háum aldri, lést 20. jan. 1988. Hann gat því litið yfir farinn veg genginnar ævi, skorti aðeins þrjár vikur í 91 ár. Næstum allan sinn aldur hafði hann alið á Sólheimum utan dvalar í Hruna og Ragnheiðarstöðum og eitthvað við sjó á vertíðum. Eftir að búskap lauk dvaldi hann það sem eftir var ævi hjá dóttur og tengda- syni, sá búskap þeirra blómgast og átti lengstaf kindur sjálfur, en nú á síðasta ári hafði heilsu hans hrakað svo, að hann dvaldi á Sjúkrahúsi Selfoss það sem eftir var. Brynjólfur Guðmundsson hafði hlotið í vöggugjöf létta og glaða lund, það veganesti sem hver og einn gæti þakkað æðri forsjón á langri vegferð. Hann var bóndi í eðli sínu, vildi búa að sínu, vera efnalega sjálfstæður, ekki rasa um ráð fram í óarðbærum framkvæmdum. Á Sólheimum vildi hann una ævi sinnar daga. Þótt þar væri ekki fjarlæg fjallasyn með hvitum jöklurn að baki, átti sú jörð samt sína töfra. Hún var gjöful að jarðargróða með skrúðgrænar hlíðar á vorin upp á brúnir og ána fyrir neðan með vak- andi lax í hyljum en jafnframt eyð- andi náttúruafl með ógnandi land- broti og á vetrum hrikalegu jaka- hlaupi fram úr gljúfrum sem engu hlífir. Gestur Guðmundsson Fæddur 25. nóvember 1902 Dáinn 11. janúar 1988 Gestur Guðmundsson var fæddur á Sólheimum 25. nóvember 1902 Hann var því um 16 ára, þegar móðir hanns og systir dóu og var sjálfur hætt kominn úr sömu veiki Þegar hann óx upp, fór hann að stunda sjó á vetrarvertíðum en var heima á sumrum, stundaði heyskap og laxveiðar og svo fjallferðir á haustin. Á þessum árum var hann eitt sinn hjá Thor Jensen á Korpúlf- stöðum og vann að búi hanns. Ungur gekk hann í ungmennafélag sveitar sinnar og var áhugamaður um íþrótt- ir, einkum sund og glímu. Fékkst um hríð við sundkennslu. Árið 1928 bjó hann á Sólheimum ásamt Brynjólfi bróður sínum í tvö ár og svo einn eitt ár frá 1930-31, þegar Brynjólfur fór að Hruna. En þegar þau Brynjólfur og Líney komu aftur að Sólheimum, mun hafa verið orðið þröngt um báða. Fór því Gestur með kindur sínar í eins konar vinnu- mennsku að Galtafelli til Vilhjálms Einarssonar, sem komið hafði þang- að 1930 og var Gestur þar næstu tvö árin eða til vors 1933. En það vor losnaði úr ábúð og var til sölu jörðin Syðra-Sel í Hruna- mannahreppi þegar Helgi Ágústsson frá Birtingaholti fór þaðan. Var það ein af hinum rómuðu slægna- og áveitu- jörðum hér í sveit, sem voru Syðra- Sel, Efra-Sel og Hvítárholt. Þeir bræður Gestur og Böðvar bróðir hanns á Sólheimum, sem var 9 árum yngri, lögðu þá í að festa kaup á þessari jörð, sem að vísu var að mestu leyti í skuld. Það mátti kalla stórt í ráðist á þeim tímum, þegar kreppan var í hámarki, lambs- verð 6-8 kr. og mjólkurlítri 12-16 aurar. Einhvern veginn klufu þeir samt að komast fram úr því án þess að skulda mikið. En aðgætandi er, að þessar jarðir buðu upp á það, sem aðrar höfðu ekki, kúgæft hey svo hægt var að fjölga nautgripum án þess að leggja í ræktunarkostnað. Eins og fyrr getur fluttist Gestur að Syðra-Seli í fardögum vorið 1933 ásamt Böðvari bróður sínum og ungri konu hans Fjólu Elíasdóttur, systur Líneyjar konu Brynjólfs, og hófu þau þá félagsbúskap. Árið eftir, 1934, kom til þeirra kona úr Reykjavík, Ása Ólafsdóttir, með dreng sem hún átti, Ólaf Sigurgeirs- son að nafni. Þau Gestur og hún gengu í hjónaband skömmu síðar. Byggingar á Seli voru margar orðnar gamlar og úr sér gengnar, þegar þeir bræður komu þangað. Við það var verið fyrst framan af, enda ekki fýsilegt að leggja í byggingar á meðan kreppan stóð yfir. En árið 1947 byggðu þeir íbúðarhús. Á þeim árum eftir stríðið var efnisskortur svo mikill, að byggingar gátu stöðv- ast af þeim sökum. Þeir bræður fóru ekki varhluta af því. Þegar átti að fara að steypa plötu yfir kjallarann, fékkst ekkert steypujárn svo að allt stöðvaðist í heilan mánuð, en inn komust þau þó um haustið fyrir jól. Árið 1964 brugðu þau Gestur og Ása búi og seldu jörðina í hendur Böðvari og Fjólu og börnum þeirra. Fluttu þau fyrst að Vinaminni á Flúðum en síðan á elliheimili. Sér til gagns og ekki síður til lífsfyllingar eftir að eiginlegum búskap lauk átti Gestur kindur, sem hann heyjaði fyrir og hafði hús á Högnastöðum til afnota og síðast heima á Flúðum, þar til síðustu árin, að heilsu hans hnignaði svo, að lengur varð ekki að staðið. Síðast varð hann rúmfastur og steig ekki í fætur en Ása kona hans annaðist hann af veikum mætti og mikilli fórnfýsi þar til hann fór á Sjúkrahús Selfoss, en þar lést hann 11. janúar sl. Börn þeirra Gests og Asu urðu fimm sem lifðu: Guðrún húsfreyja Eskiholti Borgarfirði, Ásgeir bóndi á Kaldbak Hrunamannahreppi, Marta húsfreyja Þríhyrningu Hörg- árdal Eyjafirði, Halldór og Skúli til heimilis hér í sveit. Gestur Guðmundsson var um margt eftirminnilegur. Persónuleiki hans var sterkur og gleymdist vart þeim er þekktu. Skólaveru naut hann ekki á yngri árum annarrar en barnafræðslu. En hugur hans beind- ist að íþróttum eins og ungmennafé- lög höfðu þá mjög á stefnu sinni. Glíma var þá mikið iðkuð í sveitum landsins. Gestur var þrekmaður mikill og lagði stund á kappglímur en glímdi þó drengilega. Ellefu ára gamall sá ég hann bera sigur úr býtum í kappglímu á Þjórsártúni og þótti hann bera skjöldinn að verð- leikum. Hann hafði sérlega gaman af spilum og tafli. Gestur var ekki margmáll maður en orð hans oft yfirveguð og hugsunin rökrétt, en í vinahópi gat hann verið skemmtinn, jafnvel hrókur alls fagnaðar og hleg- ið dátt. Návist hans vakti traust og öryggiskennd og handtakið var hlýtt og fast. Hjálpsamur var hann og greiðugur, svo bæði ég og aðrir leituðu til hans ef fella átti gripi, sem hann aldrei tók neitt fyrir. Það sýndi best þetta hljóðláta, trausta vin- fengi, hve marga sveitunga sína hann bar til grafar á meðan hans naut við. Sem bóndi var hann á réttri hillu. Stefndi að og átti fallegar og vel fóðraðar skepnur. Hann var hesta- maður, átti a.m.k. einn rómaðan aæðine. Hann var. eins oo saot var búhagur vel, sérlega vel verki farinn og snillingur að bera upp og ganga frá heyjum, eitt þeirra verka sem nú heyrir fortíðinni til. Gestur hafði glöggt auga fyrir náttúrunni og beindist athygli hans mjög að henni. Mátti þar margt af honum læra. Hann ólst upp á veiðijörð og lagði sig því eftir að kynnast lifnaðarhátt- um vatnafiska. Eins eftir fuglalífi og yfirleitt flestu, sem við kom hinni lifandi náttúru. Þá er nú komið að því, sem ekki var minnstur þáttur í ævistarfi hans, en það eru fjallferðir. Fjallkóngur Hrunamanna var hann í 12 ár og var þar með réttu kóngur í ríki sínu. Hann fór ekki eingöngu til þess að sækja féð á fjöllin og reka það til rétta. Ferðin var honum nýtt ævin- týri í hvert sinn. Hann þekkti flestum betur leitir og örnefni öræfanna og allt sem þcim tengdist. Bar margt á góma, frásagnir af eftirminnilegum ferðum, útilegumannatrú ogævikjör útlagans, sem barðist vonlausri bar- áttu í sviptibyljum trylltra náttúru- afla. Eins og Einar Benediktsson kvað: „Einn vesall kofi var hans borg og heimur, en vígið opinn reginheiðageimur, þú skildi égfyrst hve gagna mátti andi í frelsi sjálfs sín einn að standa í landi." Gestur var kominn í annan heim. Og nýliðinn, sem fyrst fór í fylgd með honum á fjall, skynjaði betur en ella tign, fegurð og veldi öræfa- geimsins, dulmagnaða kynngi og litadýrð Kerlingafjalla. Sigurður Sigurmundsson Ilvítúrholti. Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.