Tíminn - 22.02.1992, Blaðsíða 13
Laugardagur 22. febrúar 1992
Tíminn 13
stefnu. f upplýsingablöðum Kjarvals-
staða segir: ,Jóhanna Kristín var yfir-
leitt ekki að formgera ytra útlit eða
einkenni fyrirmynda sinna í verkum
sínum, heldur notaði hún hið hvers-
dagslega — fólkið í kringum sig og
ekki síst sjálfa sig — til að túlka dýpri,
mannlegan sannleika handan hins
hversdagslega. Þessi næma innsýn og
túlkun á tilfmningalífi nær yfir allan
tónstiga tilfinninganna, en þegar á
leið varð það þó sorgin, óttinn, og ör-
væntingin sem fengu mest rými í
verkum hennar."
Claude Rutault
inguna hefur franski listgagnrýnand-
inn Guy Tortosa verið fenginn til að
halda fyrirlestur um list Claudes Ru-
tault, og verður fyrirlesturinn á Kjar-
valsstöðum á morgun sunnudag kl.
15:00.
Matthías
Johannessen
Matthías Johannessen, ritstjóri og
skáld, er orðinn landskunnur af ljóð-
um sínum. Hann er jafnvígur á hátt-
bundið form og bundið. Sýningar á
ljóðum merkra skálda hafa mælst
nokkuð vel fyrir og verða ljóð eftir
Matthías hengd upp í austurforsal
Claude Rutault er franskur nútíma-
listamaður, sem vakið hefur alþjóð-
lega athygli. Verk hans eru í björtum
hreinum litum, en ein grundvallar-
hugmynd hans er að málverk sé mál-
að í sama lit og veggurinn sem mál-
verkið hangir á. Verk hans eru enn-
fremur einföld að formi til: ferhym-
ingur, hringur, tíglar, o.s.frv., en í
þeim „leynast „forskriftir", ffæðileg
forsenda, sem fjallar öðru fremur um
mekanisma listarinnar", eins og segir
í kynningartexta frá Kjarvalsstöðum.
Á sýningunni eru níu sýnishom af
því sem Rutault nefnir „skilgrein-
ing/vinnuaðferð“. í tengslum við sýn-
5 ar Johannessen.
!
Claude Rutault hengir upp eitt verka sinna.
Leikfélag Akureyrar:
Islandsklukkan frumsýnd í mars
Æfingar standa nú yfir hjá Leikfélagi Akureyrar á íslandsklukkunni eftir
Halldór Laxness, og er frumsýning fyrirhuguð í seinni hluta marsmánað-
ar. Leikstjóri verksins er Sunna Borg og hefur hún jafnframt gert nýja
leikgerð af verkinu. Jón Hlöðver Áskelsson hefur samið tónlist við verkið,
Siguijón Jóhannsson hannar leikmynd, Ingvar Björnsson hannar lýsingu
og búningameistari er Freygerður Magnúsdóttir.
Elva Ósk Ólafsdóttir sem leikur Snæ-
fríði íslandssól, Hallmar Sigurðsson
leikur Amas Amæus og Þráinn Karls-
sem fer með hlutverk Jóns
í leikgerð Sunnu er megináhersla
lögð á aðalpersónur sögunnar, þ.e.a.s.
ástarsögu Snæfríðar íslandssólar og
Amas Amæus, og lífshlaupi Jóns
Hreggviðssonar, en minni áhersla
lögð á þjóðlífsþanka og fjöldasenur
sem verið hafa í öðmm leikgerðum.
Með helstu hlutverk í sýningunni fara
son
Hreggviðssonar. Með önnur hlutverk
í sýningunni fara: Felix Bergsson,
Valgeir Skagfjörð, Jón Stefán Krist-
jánsson, Gestur Einar Jónasson, Sig-
urveig Jónsdóttir, Guðlaug Her-
mannsdóttir, Ámi Valur Viggósson,
Aðalsteinn Bergdal, Þórdfs Amljóts-
dóttir, Eggert Kaaber, Marinó Þor-
steinsson, Sigurður Hallmarsson,
Herdís Birgisdóttir og Agnes Þorleifs-
dóttir. Alls em 26 hlutverk í sýning-
unni auk statista, svo hér er um
mannmarga og stóra sýningu að
ræða, auk þess sem viðamikil leik-
mynd og lýsing setja stóran svip á
sýninguna.
Leikfélag Akureyrar á 75 ára afmæli
í aprfl, og af því tilefni verður sérstök
hátíðarsýning á verkinu. Sýningin
verður einnig til heiðurs skáldinu
Halldóri Laxness, því hann á níræðis-
afmæli í apríl. Þá verður í tengslum
við afmælið gefin út bók eftir Harald
Sigurðsson, sem ber heitið „Saga
leiklistaráAkureyri 1860-1992“.
Söngleikurinn Tjútt og tregi eftir
Valgeir Skagfjörð, sem sýndur hefur
verið undanfarið við góðar undirtekt-
ir, verður á fjölunum út febrúarmán-
uð, og fer því hver að verða síðastur
að berja hann augum.
hiá-akureyri.