Tíminn - 19.07.1994, Blaðsíða 6

Tíminn - 19.07.1994, Blaðsíða 6
6 Þri&judagur 19. júllT1994 Bandaríkin fagna nýjum valdhöfum: Þjóbfrelsisfylking Rúanda lýsir yfir sigri í borgara- styrjöldinni Coma, Nairobi, Washington, Reuter Þjóöfrelsisfylking Rúanda, sem er aö mestu skipuö Tútsímönn- um, lýsti í gær yfir sigri í borg- arastyrjöldinni sem staðið hefur yfir í um þrjá mánuði. Nýskip- aður forseti er af ættbálki Hútú- manna. í gær var aftur farið að flúga með mat og hjálpargögn til Goma í Zaire eftir að flugvöllur- inn var opnaður að nýju. For- mælendur sögöu þó verulega hættu á að fólk sylti í hel í stór- um stíl. Warren Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að einu jákvæðu fréttirnar frá Rúanda væru tíð- indin af valdatöku Þjóðfrelsis- fylkingar Rúanda. Christopher sagði að Clinton Bandaríkjaforseti heföi gefið leyfi til að nota bandarískar vöruflutningaflugvélar til að flúga með mat og hjálpargögn til flóttamannabúða í Zaire. „Eina tilefnið tii bjartsýni er að svo virðist sem Þjóöfrelsisfylk- ingin hafi sigrað og fulltrúar hennar séu að koma á fót stjórn sem Hútumenn eiga einnig að- ild að. Talið er aö hátt í ein milljón manna hafi veriö drepin frá því Vísindamenn segja mexí- kóskan mat að borgarastyrjöld braust út. Frakkar hafa skotið skjólshúsi yfir fyrrverandi rábamenn af ættbálki Hútúmanna. Þeir eru taldir bera ábyrgð á flestum þeim voðaverkum sem unnin hafa verið að undanförnu. Frönsk stjórnvöld hafa hótað Þjóðfrelsisfylkingunni öllu illu ef þeir geri tilraun til að hand- taka fyrrverandi stjórnarliða á yfirlýstu verndarsvæbi franska hersins. ■ Reuter Á myndinni sést hluti þeirra hundruöþúsunda flóttamanna sem fiúib hafa frá Rúanda til Zaire á undanförnum dög- um. Formœlandi Flóttamannahjálpar Sameinubu þjóbanna segir ab smitsjúkdómar breibist út mebal fólksins og ef ekki berist hjálp á næstu dögum muni þab kosta mörg þúsund mannslíf. Tímamót í skipasmíöaiönabi: Samkomulag um að hætta ríkisstyrkjum Um helgina gerðu nokkur ríki Efnahags- og framfarastofn- unarinnar í París, OECD, sam- komulag sín á milli um ab hætta öllum styrkjum og nið- urgreiðslum til skipasmíöa- iönaðarins. Meðal ríkjanna sem undirrit- uðu samkomulagið eru Bandaríkin, Japan, Suður-Kór- ea, Evrópusambandsríkin og Norðurlönd önnur en ísland. Til að samkomulagiö taki gildi samkvæmt áætlun 1. janúar 1996 verða öll þau ríki sem undirrituðu að hafa samþykkt það heima fyrir. Samkvæmt frétt norska dag- blaðsins Aftenposten fagna forsvarsmenn norskra skipa- smíðastöðva samkomulaginu og telja það bæta samkeppnis- stöbu sína í framtíöinni. Didrik Schnitler, fram- kvæmdastjóri skipasmíða- stöðvarinnar í Kvaerner, segir samkomulagið enn eitt lóðið á vogarskálar Evrópusambands- aðildar Noregs. Hann segir ab með aðild að ESB geti Norð- menn betur notfært sér kosti samkomulagsins og hafi um leið betri aðstöðu til að fylgj- ast með því að önnur ríki standi við loforð um aö hætta ríkisstyrkjum í skipaiðnaöi. Forsvarsmenn íslenskra skipasmíðastöbva hafa lýst yf- ir ánægju sinni með sam- komulagið en benda á að Pól- land eigi ekki aðild aö sam- komulaginu og þar í landi hafi skipasmíöastöðvarnar verið hvað harðastar í að undir- bjóða verk með aðstoð ríkis- ins. Halastjarna rekst á Júpíter heilsuspillandi Washington, Reuter Fyrst var þab kínverskur matur, svo ítalskur, þá poppkorn og nú er röðin komin að mexíkóskum mat. í gær var birt niöurstaða Mið- stöðvar vísinda í almannaþágu úr rannsókn á efnainnihaldi þess sem veitingahús sem kenna sig við Mexíkó bjóða upp á. Michael Jacobson, fram- kvæmdastjóri miðstöövarinnar, sagöi af því tilefni aö matargerð mexíkóskra matsölustaða væri fyrir margar sakir aðfinnslu- verð. Samanburðurinn væri kínverskum og ítölskum veit- ingahúsum í hag þó að þau væru sjaldnast neitt til að hrópa húrra fyrir. Jacobson sagði að hlutfall mettaðrar fitu í matnum væri alltof hátt. Hann sagði ab flest- um stærstu mexíkósku veitinga- húsunum hefði verið skrifað bréf þar sem þau væru beðin um að taka aukið tillit til heilsu við- skiptavina sinna. ■ Creenbelt, Reuter í gær þeyttist enn eitt brotið úr halastjörnunni Shoemaker- Levy á reikistjörnuna Júpíter. Það var stærsta brotið úr hala- stjörnunni sem lent hefur á Júpíter hingab til. Vísinda- menn hafa beðið spenntir eft- ir árekstri halastjörnunnar við reikistjörnuna og náðu varla andanum af hrifningu þegar brot úr Shoemaker-Levy, sem gengur undir nafninu G, lenti meö 250 milljóna megatonna krafti á yfirborði Júpíters. Áreksturinn varð um klukkan hálf átta í gærmorgun ab ís- lenskum tíma og mældist 25 sinnum öflugri en árekstur annars hluta halastjörnunnar og Júpíters sem varð á laugar- daginn. Birtan af árekstrinum í gær var svo mikil að við lá að hlut- ar stjörnusjónaukans á Mauna Kea fjallinu á Hawaii eyöilegð- ust. Ljósmagnið af árekstrin- um var ámóta mikið og sú birta sem Júpíter gefur venju- lega frá sér. Júpíter er fimmta reikistjarn- an frá sólu og stærst þeirra stjarna sem eru í sólkerfi okk- ar. Hún er rúmlega 140.000 km í þvermál en talið er að þvermál G hafi verið um þrír og hálfur kílómetri. Von er á enn stærri árekstr- um næstu daga. Brot G var það sjöunda í röðinni en alls mun 21 brot úr Shoemaker- Levy rekast á Júpíter áöur en yfir lýkur. Fríöarviörœöur í Austur- löndum nœr: Deilur og átök brátt á enda Aqaba, (erúsalem, Reuter Warren Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, heldur því fram að brátt verði endir bundinn á deilur og átök ríkja og þjóða í Austurlöndum nær. Christopher tekur nú þátt í viöræðum rábherra ísraels, Jórdaníu og háttsettra fulltrúa Frelsissamtaka Palestínu, PLO. Einnig á aö reyna að koma á viðræðum ísraela og Sýrlend- inga. Fulltrúar ríkisstjórna ísraels og Jórdaníu tókust í gær í hendur á landamærum ríkjanna en það hefur hingaö til verið ógerlegt vegna gaddavírsgirðinga og jarðsprengna. Báðir aöilar spáðu því að þessi athöfn táknaði að bráðlega yrði gengið frá friðarsamkomulagi ríkjanna. Formlega hafa þau átt í stríði síðastliöin 46 ár. ■ Skrifstofa gybinga í Argentínu sprengd í loft upp (erúsalem, Buenos Aires, Reuter Tólf manns létu lífið þegar öflug sprengja lagöi skrifstofu stærstu samtaka gyðinga í Argentínu í rúst í gær. „Óbreyttir borgarar hafa enn einu sinni orðiö fórnarlömb djöf- ullegra hryöjuverka - í þetta skipt- ið skrifstofur gyðingasamtakanna í Argentínu sem eru enn ab ná sér eftir árás hryöjuverkamanna á sendiráð ísraels [fyrir tveimur ár- umj," sagbi Rabin, forsætisráð- herra ísraels í yfirlýsingu vegna atburbarins. ■ Barnsræningi bibur foreldra afsökunar London, Reuter Konan sem rændi nýfæddu stúlkubarni af sjúkrahúsi í Nottingham fyrir hálfum mánuði, hefur beöiö foreldra Abbiar Humphrie, stúlkunnar sem var rænt, opinberlega af- sökunar. Julie Kelley, 22 ára að aldri, var í gær ákærð fyrir að hafa numib Abbie á brott af sjúkra- húsinu aðeins nokkrum klukkustundum eftir fæðingu hennar. Breska lögreglan hóf þegar leit að barninu sem bar loks árangur á laugardaginn var. Unga konan sem hafbi barn- ib á braut hafði á síðustu mán- uðum látið eins og hún væri ófrísk. Nágrannar hennar komu af fjöllum þegar þeir fengu að vita að hún væri sú sem leitað hefði verið að. Eiginmaður ungu konunnar varð fyrir áfalli en hann hafði eins og nágrannarnir haldið að Julie væri ófrísk og taldi barnib skilgetið afkvæmi sitt og eiginkonunar. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.