Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 11.03.2009, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 11. mars 2009 15 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is Gildir til 15.03. 2009 20% verðlækkun OTRIVIN nefúði. 741 kr. 593 kr. 20% verðlækkun VECTAVIR frunsuáburður. 1.387 kr. 1.110 kr. 20% verðlækkun STREPSILS munnsogstöflur 24 stk. 890 kr. 712 kr. Íslandsdeild Amnesty Inter- national sýnir í kvöld kvikmynd- ina, Elas da Favela eða Women of the Favela í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, hinn áttunda mars síðastliðinn. Myndin segir sögu sex kvenna sem búa við sára fátækt í Brasilíu og upplifun þeirra af aðgerðum lögreglunnar í júlí 2007 í Complexo do Alemão, norður af Rio de Janeiro, þegar 19 manns létu lífið og 13 særðust. Sýning myndarinnar fer fram klukkan 20 í húsnæði Íslands- deildar Amnesty International að Þingholtsstræti 27, 3 hæð. Að- gangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Favela-konurnar RIO DE JANEIRO Myndin segir sögu kvenna sem búa við sára fátækt í Brasilíu. Öryrkjabandalag Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp halda í kvöld 3. fund í fundaröð sinni í aðdraganda alþingiskosn- inga, að Grand hóteli í Reykjavík frá klukkan 20.00 til 22.00. Menntamál í kreppu – hvað er framundan? er yfirskrift fundar- ins en frummælendur verða Katr- ín Jakobsdóttir menntamálaráð- herra, Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir alþingismaður og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Til umræðu verður meðal ann- ars: Hlutverk menntakerfis á erf- iðum tímum, skólatilboð fyrir alla og fullorðinsfræðsla/símenntun. Að loknum erindum verða pall- borðsumræður og er fundur- inn öllum opinn. Táknmálstúlkar verða á staðnum. Menntamálin í kreppu KATRÍN JAKOBSDÓTTIR Menntamála- ráðherra verður meðal frummælenda á fundinum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.