Morgunblaðið - 15.10.2006, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2006 69
SheerDriving Pleasure
BMWX5
www.bmw.is
VIÐ Höfum opnað lögmannsstofu
Ásdís J. Rafnar
hrl.
Hulda Rós Rúriksdóttir
hdl.
Lára V. Júlíusdóttir
hrl.
Steinunn Guðbjartsdóttir
hrl.
Valgerður Valdimarsdóttir
hdl.
Suðurlandsbraut 6, 4. hæð I 108 Reykjavík I Sími 533 1330 I www.borgarlogmenn.is
Við bjóðum alla almenna lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki, málflutning fyrir héraðsdómi og fyrir Hæstarétti, gerð
lögfræðilegra álitsgerða og umsagna. Við höfum allar fjölþætta reynslu og þekkingu á vettvangi lögfræðinnar og leggjum metnað
okkar í að veita góða þjónustu, þar sem hagsmunir viðskiptamanna eru í fyrirrúmi.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
23
78
9
Sýna og kynna
vörur fyrir konur
SÝNING og fyrirlestrarsyrpa undir
heitinu Konan verður í Laugardals-
höll 20.–22. október nk. Íslandsmót
ehf. sér um framkvæmdina.
Tæplega 20 konur flytja fyrir-
lestra og verða efnistök fjölbreytt.
Fyrirlestrar verða á klukkustund-
arfresti, sá fyrsti hefst kl. 11.30
báða dagana. Nákvæmar tímasetn-
ingar fyrirlestra sjá: www.islands-
mot.is/konan. Fjöldi fyrirtækja
mun sýna og kynna vörur og þjón-
ustu sem höfða sérstaklega til
kvenna á sýningarsvæði Laug-
ardalshallar. Uppákomur verða í
boði sýnenda og fjöldi fyrirtækja
verður með vörur á tilboði.
Sýnendur kynna m.a. fatnað og
fylgihluti, snyrti- og hárvörur,
vörur og þjónustu tengda heilsu og
vellíðan, mat og drykk sérvalið fyr-
ir konur, útgáfu, tónlist, föndur-
vörur o.fl. Þá munu Samtök iðnað-
arins kynna Tískuteymi SI. Eftir
tveggja ára hlé verður nú haldin Ís-
landsmeistarakeppni í förðun og
naglaásetningu. Sigurvegarar
hljóta þátttökurétt á HM í Þýska-
landi. Fyrstu verðlaun eru m.a.
flugfarseðill með Icelandair.
Í tilefni viðburðarins Konan mun
Flugfélag Íslands bjóða konum um
allt land hagstæð nettilboð á flug-
fargjaldi sýningarhelgina, eða dag-
ana 18.–24. október.
Stofnun samtaka
sjúklinga með
endómetríósis
ENDÓMETRÍÓSIS (legslímuflakk)
er sjúkdómur sem fjölmargar
konur á Íslandi hafa þurft að glíma
við vegna langvinnra verkja í
grindarholi, bólguskemmda og
ófrjósemi. Meðferðin er erfið og
leiðir oft til endurtekinna skurð-
aðgerða og tæknifrjóvgunar-
tilrauna til að reyna að vinna á
ófrjósemi sem sjúkdómnum fylgir.
Í nágrannalöndunum eru til sam-
tök sjúklinga og áhugafólks um
sjúkdóminn sem hafa þann tilgang
að vekja athygli á þessum dulda
sjúkdómi, bæta þekkingu almenn-
ings og heilbrigðiskerfisins á hon-
um og ekki síst stuðla að samhjálp
kvenna sem þjást af sjúkdómnum.
Stefnt er að stofnun slíkra sam-
taka um endómetríósis hér á landi.
Haldinn verðu fundur 20. október
nk. í Hringsal Barnaspítala Hrings-
ins kl. 17 (gengið inn um aðal-
inngang kvennadeildar eða Barna-
spítalans). Formaður dönsku
samtakanna mun segja frá sjúk-
dómnum og sjúklingasamtökum á
Norðurlöndum og íslensk kona mun
lýsa reynslu sinni. Farið verður yfir
helstu mál er lúta að stofnun sam-
takanna. Fyrrverandi og núverandi
sjúklingar, aðstandendur og aðrir
áhugasamir eru hvattir til að mæta
og taka þátt í stofnun samtakanna.
Samband
sjóminjasafna
stofnað
TVEIR viðburðir verða í húsnæði
Víkurinnar – Sjóminjasafnsins í
Reykjavík á Grandagarði í dag,
sunnudaginn 15. október.
Haldinn verður stofnfundur Sam-
bands íslenskra sjóminjasafna og
samtímis verður opnuð ljósmynda-
sýningin Í síldinni á Sigló, myndir
Hannesar Baldvinssonar, teknar á
Siglufirði á árunum 1958–62.
Markmið Sambands íslenskra
sjóminjasafna er að skapa umræðu-
vettvang um sjóminjar, efla og
skipuleggja varðveislu sjóminja,
koma á samstarfi um skráningu og
efla rannsóknir á sögu sjómennsku,
siglinga og strandmenningar.
Eftirtalin söfn standa að stofn-
uninni: Byggðasafn Vestfjarða, Ísa-
firði, Síldarminjasafn Íslands, Sjó-
minjasafn Austurlands, Eskifirði,
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka, Vík-
in – Sjóminjasafnið í Reykjavík og
Byggðasafnið að Görðum, Akra-
nesi. Önnur væntanleg söfn eru Sjó-
minjasafnið á Húsavík og Byggða-
safnið á Hnjóti, Patreksfirði.
Myndir Hannesar Baldvinssonar
eru teknar á Siglufirði 1958–62.
Um er að ræða 50 svipmyndir frá
mannlífinu og vinnu kvenna, karla
og barna á síldarbryggjunum fyrir
norðan. Sýningin er samstarfsverk-
efni Víkurinnar – Sjóminjasafnsins
í Reykjavík, Síldarminjasafns Ís-
lands og ljósmyndarans.
HLUNNINDAFÉLAG Borgarfjarð-
arsýslu hefur látið gera kort af
fjalllendinu umhverfis Okið. Félag-
ið er ársgamalt en hlutverk þess er
að stuðla að skynsamlegri nýtingu
skotveiðihlunninda á starfssvæði
sínu. Stefnt er að hóflegri og sjálf-
bærri veiði, í sem bestri sátt við
veiðimenn og landeigendur.
Eitt eftirsóttasta rjúpnaland á
þessum slóðum er í kringum Okið,
frá Kaldadalsvegi og niður í byggð.
Nokkuð er um að veiðimenn kvarti
undan hve erfitt sé að nálgast upp-
lýsingar um nýtingu þessa svæðis.
Óvíst sé hverjir alfriði lönd sín,
hvar landeigendur nýti hlunnindin
sjálfir og hvaða svæði séu í beinni
útleigu. Á umræddu korti sjást öll
landamerki, sem og hvernig nýt-
ingu er háttað. Alfriðuð svæði eru
merkt með tölustafnum 1, svæði
sem landeigendur nýta sjálfir hafa
stafinn 2, og að lokum eru svæði í
beinni útleigu til einstakra veiði-
manna merkt með 3. Kortið er vist-
að á vefsíðu Búnaðarsamtaka Vest-
urlands, www.buvest.is.
Kort af fjalllend-
inu umhverfis Ok