Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÍRSK stemning verður við völd á Næsta bar í kvöld, þegar Rósin okkar, fimm manna hljómsveit, stígur á pall og spil- ar írska þjóðlagatónlist. Í fréttatilkynningu frá hljóm- sveitinni segir að í þetta sinn hafi Rósin okkar valið einhver fallegustu lög Íranna og fært í nýjan búning. „Við spilum á fiðlu, gítar, harmonikku, bothrán-trommu og hörpu.“ Í Rósinni okkar eru: Rósa Jóhannesdóttir, Skarphéðinn Haraldsson, Ari Agnarsson, Sólveig Thoroddsen og Kristján Kristmannsson. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30, en Næsti bar er gegnt Íslensku óperunni. Tónlist Írsk þjóðlagatónlist á Næsta bar í kvöld Rósin okkar TÍMARITIÐ Hrafnaþing er nýkomið út og er að þessu sinni helgað Jónasi Hallgrímssyni. Baldur Hafstað skrifar grein um Jónas og þýsku rómantík- ina, Loftur Guttormsson um Jónas og Íslandslýsingu Bók- menntafélagsins. Ragnar Ingi Aðalsteinsson fjallar um stuðlasetningu í ljóðum Jón- asar og Þórður Helgason um sögu bragarháttar. Fleiri fróð- legar greinar eru í ritinu. Hrafnaþing er gefið út af Kennaraháskóla Íslands og kemur út árlega. Ritstjórar eru Anna S. Þráinsdóttir, Baldur Haf- stað og Baldur Sigurðsson. Fræði Krunkað um Jónas á Hrafnaþingi Á SÝNINGU Gjörninga- klúbbsins í Listasafni Reykja- víkur getur að líta ævin- týralega innsetningu, þrívítt völundarhús. Umsjón með hönnun þess hafði arkitektinn Arnaldur Geir Schram. Á morgun kl. 17 verður málþing í safninu þar sem Arnaldur fjallar um samspil arkitektúrs og lista við tilurð sýningar- innar; hugmyndina að baki inn- setningunni, þróun, hönnun, uppsetningu og sam- starfið við Gjörningaklúbbinn. Að loknu erindi Arnaldar munu Gjörningaklúbburinn og Arnaldur sitja fyrir svörum um sýninguna. Myndlist og arkitektúr Völundarhús Gjörningaklúbbsins Frá sýningu Gjörn- ingaklúbbsins. SALURINN í Kópavogi er klár í vetrarslaginn, en eins og endranær er tónleikaröðin Tíbrá kjarni vetr- ardagskrárinnar. Að sögn Vigdísar Esradóttur verða um 34 tónleikar í Tíbránni í vetur og þar kennir fjöl- breytni að vanda. Vigdís segir að fyrsti hápunktur vetrarins verði að sjálfsögðu opnunartónleikarnir á föstudagskvöld, en þar syngur rúss- neska dívan Irina Romishevskaya við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. „Romishevskaya var nemandi Galínu Pisraenko við Tsjaíkovskí akadem- íuna, en hún var nemandi Richters. Tengdamóðir Richters, eiginkona hans, Galína og Irina hafa allar fjórar kennt í sömu kennslustofu við þenn- an skóla. Þannig mætti ætla að við fengjum hefðina beint í æð, en Irina Romishevskaya er ein mesta mezzó- söngkona Rússa í dag,“ segir Vigdís. Margir söngtónleikar Það er áberandi í vetrardag- skránni að nokkur tækifæri gefast til að heyra heildarflutning verka. Franski píanóleikarinn Désiré N’Kaoua leikur öll píanóverk Ravels síðar í mánuðinum, í október leikur Albert Mamriev allar umritanir Liszts á verkum Wagners og Simon Smith leikur öll píanóverk Hafliða Hallgrímssonar í mars. Söng- tónleikar verða margir í Tíbránni í vetur, bæði með erlendum stór- stjörnum og ungum íslenskum söngvurum. Í hópi þeirra fyrrnefndu eru söngstjörnur Lettnesku óper- unnar: Kristine Gailite, Viesturs Jansons og Martins Zilberts, en í hinum Gissur Páll Gissurarson, Mar- grét Hrafnsdóttir, Hrafnhildur Björnsdóttir og fleiri. Auður Gunn- arsdóttir og Bergþór Pálsson syngja með Jónasi Ingimundarsyni á full- veldistónleikum Salarins 1. desem- ber, en tónleikarnir verða helgaðir Jóni Ásgeirssyni tónskáldi. Jónas Hallgrímsson verður líka heiðraður með sérstökum afmælistónleikum þar sem flutt verða lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð hans. Meðal annarra Tíbrársöngvara í vetur eru Viðar Gunnarsson, Arndís Halla Ás- geirsdóttir, Lubov Stuchevskaya og Tómas Tómasson. Nokkrir góðkunningjar Salarins vitja hans aftur í vetur, þar á meðal píanóleikarinn Lene Circene sem leikur í nóvember, og Jory Vinikour, sem á sínum tíma vígði sembal Sal- arins. Pétur Grétarsson, Kristjana Stefánsdóttir og fleiri verða með tvenna tónleika í vetur, Söngbók djassins. Þeir fyrri verða með söng- lögum Richards Rodgers, en eftir áramót verður gluggað í söngbók Coles Porters. Nánari upplýsingar um Tíbrá og aðra tónleika má finna á vef Salarins. Tíbrártónleikaröðin hefst með söng rússnesku stórsöngkonunnar Irinu Romishevskayu Hefð og hug- myndaauðgi Í HNOTSKURN » Tónleikaröðin Tíbrá hefurverið burðarásinn í starfsemi Salarins frá upphafi. » Tíbrá er fjölbreytt tónleika-röð, með áherslu á sígilda tónlist. » Frá opnun Salarins í janúar1999 hafa verið haldnir hátt á þriðja hundrað Tíbrártónleikar og skipta flytjendur hundruðum. Í NÓVEMBER kemur Stephanie Wendt píanóleikari í Salinn með sviðsetta dagskrá; hún fer í heimsóksn til Klöru Wieck og Róberts Schumanns, og leikur uppáklædd verk eftir þau og heimilisvininn Jóhannes Brahms. Í heimsókn hjá Klöru MIKIÐ drama vermir tékkneska þjóðleikhúsið um þessar mundir. Vaclav Havel, leikskáld og fyrrum forseti landsins, hefur dregið til baka verk sem taka átti til sýninga þar á leikárinu, þar sem forsvars- menn leikhússins telja sig ekki geta orðið við kröfu Havels um að Dag- mar Havlova, eiginkona skáldsins til tíu ára, fari með aðalhlutverkið. Havel hefur sagt að hann hafi sam- ið verkið sérstaklega fyrir Dagmar og fáist verkið ekki sett upp í þjóð- leikhúsinu með henni í aðal- hlutverki fari hann annað með verkið. Lér og sjálfsævisagan Vaclav Havel var þegar þjóð- kunnur af leikverkum sínum árið 1989 þegar hann leiddi flauelsbylt- inguna í landi sínu. Hann var for- seti landsins til ársins 2004. Lítið hefur verið gefið upp um efni nýja leikritsins annað en að það byggist á hvoru tveggja, leikriti Shake- speares Lé konungi, og sjálfs- ævisögu skáldsins sjálfs. Plottið er sagt hverfast um háttsettan stjórn- málamann sem hyggst draga úr áhrifum sínum og völdum. Frúin var skáldinu innblástur Havel hefur í kjölfar ágreinings- ins verið sakaður um yfirgang og ráðríki, en samkvæmt erlendum fréttamiðlum kveðst hann hafa lof- að konu sinni að þau hefðu sam- starf um uppsetningu verksins, og sagði að hún hefði verið honum mikill innblástur meðan á ritun þess stóð. Dagmar Havlova, sem er kunn gamanleikkona í heimalandi sínu, hefur sjálf dregið sig út úr ráðagerðum eiginmanns síns. Forsvarsmaður þjóðleikhússins sagði reglur leikhússins ekki leyfa ráðningu gestaleikara. Leik- hússtjórinn, Ondrej Cerny, hefur þó lýst sig reiðubúinn að taka aftur upp viðræður við Havel um upp- færslu verksins í sátt. Eiginkonan fær ekki að- alhlutverkið Vaclav Havel deilir við tékkneska þjóðleikhúsið Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is DJASSKLÚBBURINN Múlinn hefur vetrarstarf sitt með tón- leikum á Domo í Þingholtsstræti í kvöld. Dagskrá vetrarins er að vanda fjölbreytt og segja aðstandendur klúbbsins það vera til marks um þá miklu grósku sem einkenni íslenskt djasslíf. Fimmtán tónleikar eru á vetrardagskránni, en að auki hefst fyrsta tónleikakvöld hvers mánaðar á hinum vinsælu Söngvaskálda- kvöldum Domo, á undan Múladags- kránni. Þar koma fram ungir og upprennandi lagahöfundar sem flytja sönglög sín ásamt hljómsveit. Á tónleikum Múlans í kvöld leikur hljóm- sveitin Straight Ahead Quartet. Hljómsveitina leiða gítarsnill- ingarnir Jón Páll Bjarnason og Andrés Þór Gunnlaugsson, en með þeim leika Þorgrímur Jóns- son á bassa og Einar Valur Schev- ing á trommur. Eins og nafn hljómsveitarinnar gefur til kynna þá verður á dagskránni meg- instefnu-djass og leika þeir fé- lagarnir vel valda standarda á sinn hátt og beint af augum. Múlafólk lofar eðal-djassgítarveislu, þar sem kynslóðabilið verður brúað. Tón- leikarnir hefjast að þessu sinni kl. 22, en Söngvaskáldakvöldið kl. 20.30 og er þúsund króna aðgangs- eyrir. Múlinn býður upp á fimmtán tónleika vetrardagskrá Beint af augum í kvöld Jón Páll Bjarnason Í HNOTSKURN » Múlinn er samstarfsverkefniFélags íslenskra hljómlist- armanna (FÍH) og Jazzvakn- ingar. » Klúbburinn heitir í höfuðið áhelsta djassgeggjara þjóð- arinnar, Jóni Múla Árnasyni, sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. TENGLAR .............................................. www.salurinn.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.