Morgunblaðið - 12.10.2007, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.10.2007, Blaðsíða 3
ika u frá eð - f- 20 m og g t Þá og örfu- ðu oka- jár ira um aðir n til an eik- riðja eik- efi á r en ð eim- R- ö a rsta 4, æk- inar Golli MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2007 3 Jón Arnór Stef-ánsson var allt í öllu í sig- urleik Lottom- atica Roma í leik liðsins gegn Eldo Napoli í gær- kvöld. Jón Arnór skoraði 16 stig í 80:69-sigri liðsins en Jón Arnór lék með Napoli á sín- um tíma og varð m.a. bikarmeistari með liðinu. Jón var með frábæra skotnýtingu og hitti úr 3 af 4 tveggja stiga skotum sínum í leiknum. Hann skoraði þrjár þriggja stiga körfur úr fjórum tilraunum.    Aganefnd evrópskaknattspyrnusambandsins, UEFA, hefur stytt leikbann spænska landsliðsinsmannsins Xabi Alonso um einn leik sem þýðir að hann getur tekið þátt í leik Spán- verja gegn Svíum í undankeppni EM sem fram fer á Spáni 17. nóv- ember.    Alonso, sem leikur með Liver-pool, var úrskurðaður í þriggja leikja bann vegna brottvísunar í leik gegn Íslendingum á Laugardalsvell- inum í síðasta mánuði en Alonso var sendur af velli fyrir að traðka á fæti Arnars Þórs Viðarssonar. Spán- verjar áfrýjuðu úrskurðinum og varð aðeins ágengt því UEFA ákvað að refsingin yrði tveggja leikja bann. Alonso er að jafna sig eftir rist- arbrot en Rafael Benítez, knatt- spyrnustjóri Liverpool, greindi frá því í gær að hugsanlega yrði Alonso í leikmannahópi liðsins í grannaslagn- um gegn Everton um aðra helgi.    Gianluigi Buffon markvörðurítalska landsliðsins í knatt- spyrnu verður fyrirliði landsliðsins í fyrsta sinn þegar Ítalir mæta Georgíumönnum í undankeppni EM á morgun. Buffon tekur við fyrir- liðabandinu af Fabio Cannavaro sem er í leikbanni. Heimsmeistar- arnir mega ekki við að tapa stigum en þeir eru í harðri baráttu við Skota og Frakka um tvö efstu sætin. Skot- ar eru í forystu með 21 stig, Ítalir 20 og Frakkar 19.    Sturla Ásgeirs-son skoraði þrjú mörk fyrir Århus GF þegar liðið tapaði fyrir Bjerringbro, 42:34, í 8-liða úr- slitum dönsku bikarkeppninnar í handknattleik í fyrrakvöld.    Dida markvörður ítalska knatt- spyrnuliðsins AC Milan var í gær úr- skurðaður af UEFA í tveggja leikja bann og að auki þarf hann að greiða um 3 milljónir kr. í sekt vegna atviks sem átti sér stað í leik liðsins gegn Celtic í Meistaradeild Evrópu. Fólk folk@mbl.is Þegar leikmenn stigu inná völlinn í Njarðvík gekk Friðrik í miðjuhring- inn til að fara í uppkast við fögnuð áhorfenda. Það gaf tóninn, gestirnir skoruðu fyrst og höfðu síðan 11:10 en þá tóku Njarðvíkingar völdin. Þegar svo Brenton Birmingham tók til sinna ráða í þriðja leikhluta áttu leik- menn Snæfells ekkert svar, náðu að vísu stundum að klóra í bakkann en fengu aldrei að búa til jafnan leik. Var á gráu svæði „Ég ákvað eiginlega í gær að vera með,“ sagði Friðrik eftir leikinn en sem kunnugt er fór hann í hjarta- þræðingu í síðustu viku og óvíst hvort hann yrði með. „Ég var að vísu varkár en reyndi eins mikið og ég þorði, auðvitað reyni ég sem mest en ætlaði að slaka á gagnvart dómurun- um en það gekk ekki alveg. Það var á gráu svæði að spila. Ég mætti á tvær æfingar, þá fyrri fór ég að mestu á hálfum hraða en gaf í á hinni og fann þá að ég gæti jafnvel hjálpað til í korter eða svo. Ég verð með í næstu leikjum nema það komi eitthvað bak- slag,“ bætti Friðrik við. Hann lék í 23 mínútur, skoraði úr tveimur af 5 skotum inní teig og þremur af 6 víta- skotum auk þess að taka 6 fráköst og verja tvívegis skot. Hann var ánægð- ur með að vera með og segir spá um fjórða sæti ekki skipta neinu. „Mér leist vel á þetta hjá okkur í dag og það var gaman að sjá mikið af fólki hér í kvöld og vonandi verður svo áfram í Ljónagryfjunni. Fyrirfram er erfitt að raða liðum í spána, sjálfur átti ég erfitt með að raða í sæti en við höfum alltaf verið í toppbaráttu og ætlum okkur að vera þar.“ Sem fyrr segir var Brenton drjúgur en Hörður Vilhjálmsson átti góðan sprett í byrj- un og skoraði alls 15 stig og gaf 5 stoðsendingar. Hræðilegt hjá okkur Jón Ólafur Jónsson átti ágætan leik fyrir Snæfell en var síður en svo sáttur. „Ég get bara sagt um þennan leik að þetta var hræðilegt hjá okkur. Sigur í Powerade-bikarnum gefur okkur ekki neitt, ég veit ekki hvort það steig okkur eitthvað til höfuðs en það var almennt andleysi hjá okkur í dag og við áttum aldrei möguleika á að vinna þennan leik því Njarðvík- ingar börðust fimm sinnum meira en við og uppskáru sigur. Það kom smá kafli þar sem við náðum að stilla sam- an vörninni en alltaf þegar við vorum að klóra í bakkann settu þeir þriggja stiga körfu í andlitið á okkur. Ég hef samt ekki trú á öðru en menn hristi þetta af sér, Powerade-bikarkeppnin er búin og tímabilið byrjað,“ sagði Jón Ólafur eftir leikinn. Justin Shouse var stigahæstur með 23 stig og Sigurður Á. Þorvaldsson með 22 auk þess að taka 9 fráköst eins og Hlynur Bæringsson, sem náði sér samt ekki á strik með stigin. Tindastóll fagnaði sigri „Ég held að við höfum komið Ham- arsmönnum á óvart í þessum leik. Við vorum tilbúnari en þeir, að minnsta kosti varnarlega, en í deild- arbikarleik liðanna fyrir stuttu vor- um við alveg á hælunum. Við vorum betra liðið í kvöld, það er klárt mál,“ sagði Kristinn Friðriksson, þjálfari Tindastóls, eftir sigur á Hamri í Hveragerði. „Það má vera að hrakspár fyrir mót spili eitthvað inn í og menn mæti því ákveðnari til leiks, en við vitum að spáin skiptir engu máli. Þetta er fyrsti leikur í mótinu og það er mikið eftir,“ segir Kristinn sem var mjög sáttur við liðsmenn sína. „Já, ég er nýbúinn að púsla saman liðinu, það kláraðist bara síðasta mánudags- kvöld. Miðað við það þá er ég sáttur við alla mína leikmenn og hvernig liðsheildin virkaði. Við mættum hérna með níu leikmenn og sjö af þeim spiluðu og hópurinn sýndi allur mjög góðan anda.“ Hamarsmenn byrjuðu betur og komust í 14:7 í fyrsta leikhluta en þá hrukku gestirnir í gang. Spila- mennska Stólanna var betri á öllum sviðum og stemmningin mun meiri í þeirra liði. Hamarsmenn náðu aðeins að binda saman vörnina í 2. leikhluta en sóknarleikurinn gekk illa og bar þar mest á George Byrd sem var að- eins skugginn af sjálfum sér. Það var sama til hvaða ráða Ham- arsmenn gripu í síðari hálfleik, Stól- arnir áttu svar við þeim öllum. Do- nald Brown var heimamönnum erfiður viðureignar í sókninni og varnarlega voru Stólarnir þéttir. Marvin Valdimarsson var sá eini sem mætti tilbúinn til leiks hjá Hamri. Hann gaf Hamri vonarneista með þriggja stiga körfu í 4. leikhluta og breytti stöðunni í 60:63. Svavar Birg- isson slökkti þann neista nokkrum sekúndum síðar með þriggja stiga körfu fyrir Tindastól og eftirleikur- inn reyndist þeim auðveldur. „Við spiluðum ekki eins og lið í þessum leik. Menn ætluðu allir að gera þetta upp á eigin spýtur. Það voru allir að reyna að skjóta okkur inn í leikinn, við byrjuðum leikinn þannig og enduðum hann þannig. Við gerðum þetta bara alltof erfitt fyrir okkur. Við spiluðum enga vörn og reyndum svo að fara einn á einn í hvert skipti sem við höfðum bolt- ann,“ sagði Lárus Jónsson, aðstoð- arþjálfari Hamars, eftir leikinn. „Stólarnir eru bara með mjög gott lið og við höfum ekki innstæðu til að vanmeta neitt lið í deildinni. Ef menn halda það, skjátlast þeim rækilega.“ Friðrik lætur aðgerð á hjarta ekki stöðva sig Ljósmynd/Víkurfréttir Léttur dans Hlynur Bæringsson, leikmaður Snæfells, gefur aldrei neitt eftir í baráttunni undir körfunni. MEÐ Friðrik Stefánsson í broddi fylkingar yfirbuguðu Njarðvík- ingar Snæfell auðveldlega í Ljóna- gryfjunni í Njarðvík í gærkvöldi og 84:71 sigur var öruggur því nýbak- aðir Powerade-bikarmeistarar úr Stykkishólmi náðu aldrei takti í leiknum. Brenton Birmingham fór á kostum með 27 stig fyrir Njarðvík en vörnin skipti þó sköpum, Njarð- víkingar vörðu alls 11 skot gest- anna. Í Hveragerði tapaði Hamar fyrir Tindastól 76:81. Eftir Stefán Stefánsson og Guðmund Karl ÞAÐ er skoðun dr. Hassan Moustafa, forseta Alþjóðahand- knattleikssambandsins, IHF, og stjórnar hans, að ekkert sé hæft í þeim ásökunum fyrrverandi framkvæmdastjóra IHF, Frank Birkenfelds, að brögð hafi verið í tafli þegar Danmörk vann Suður-Kóreu í úrslitaleik í handknattleikskeppni kvenna á Ólympíuleikunum í Aþenu fyrir þremur árum. Birkenfeld setti fram fullyrðingar þess efnis í tímaritsviðtali skömmu eftir að hann hætti störfum hjá IHF. Sagði hann að augljóst hefði verið að brögð hefðu verið í tafli í tvíframlengdum úrslitaleiknum og dómarar leiksins hefðu komið málum þannig fyrir að Danir hefðu ekki getað tapað. Vegna þessa óskaði danska handknatt- leikssambandið eftir skýringum á orðum Birkenfelds hjá for- seta IHF. Moustafa segir í bréfi til danska sambandsins að ekk- ert óeðlilegt hafi verið við framkvæmd leiksins. „Skoðun sú sem Birkenfeld setti fram í viðtali fyrir skömmu vegna leiksins lýsir hans persónulegu skoðun, ekki stjórnar IHF.“ Ekkert óeðlilegt Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is FH-ingar hafa boðið Sigurvini Ólafssyni nýjan samning við fé- lagið en samningur hans við Hafnarfjarðarliðið rennur út um áramótin. Sigurvin, sem er 31 árs gamall miðjumaður, kom til FH frá KR árið 2005 og hefur spilað 23 leiki með liðinu í Landsbankadeildinni og skorað í þeim fjögur mörk. Sigurvin á sér það til frægðar að hafa orðið Íslandsmeistari fimm sinnum með þremur liðum, með ÍBV 1997 og 1998, með KR 2002 og 2003 og með FH 2006. Auðun Helgason rennur út á samningi við FH í lok næsta mánaðar og herma heimildir Morgunblaðs- ins að FH-ingar hyggist einnig bjóða honum nýjan samning sem og Heimi Snæ Guðmundssyni, sem var í láni hjá Fjölni í sumar. Atli Viðar Björnsson kemur einnig til baka til FH frá Fjölni en hann er samningsbundinn FH-ingum út næsta ár. Sigurvin með tilboð ÖRN Ævar Hjartarson úr GS lék á 79 höggum á öðrum keppn- isdegi á úrtökumóti fyrir sænsku atvinnumótaröðina og er hann samtals á 18 höggum yfir pari eftir að hafa leikið á 83 höggum í gær. Örn Ævar er í 47.-55. sæti af alls 84 keppendum á Elisafarm-vellinum en hann er úr leik og fær ekki að leika á lokadeginum í dag. Sigurþór Jónsson úr GR er hinsvegar búinn að tryggja sér keppnisrétt á næsta ári á sænsku mótaröðinni en hann er í 2.-3. sæti á Elisafarm-vellinum á samtals 3 höggum yfir pari. Hann lék á pari vallar í gær og er samtals á þremur höggum yfir pari. Það voru sviptingar í Madrid á Spáni þar sem Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék á þremur höggum yfir pari, 75 högg- um. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Birgir byrjaði skelfi- lega í gær og var á 6 höggum yfir pari eftir aðeins 5 holur. Hann sneri taflinu sér í hag og fékk 5 fugla og lagaði stöðu sína veru- lega. Á lokaholunni, þeirri 18., fékk Birgir skramba (+2). Kylfingar í baráttu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.