Morgunblaðið - 16.09.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.09.2008, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is ARNGRÍMUR Jóhannsson og Hafþór Haf- steinsson, eigendur Avion Aircraft Trading, hafa keypt gamla CL-44 flugvél (Monsa) í Englandi og stefna að því að hún verði varðveitt í Flug- safni Íslands á Akureyri. Loftleiðir notuðu CL-44 vélar um árabil á sjö- unda áratugnum, til farþegaflugs milli Banda- ríkjanna og Lúxemborgar, áður en félagið fór að nota DC-8 vélar. Arngrímur og Hafþór keyptu fyrir nokkrum misserum Gullfaxa, fyrstu þotu Íslendinga, í sama tilgangi og er stjórnklefi hennar kominn í safnið. CL-44 er mun stærri en Boeing-vélin og mikið notuð til fraktflugs. Stjórnklefinn er hins vegar svipaður að stærð og klefi Boeing-vélarinnar í safninu. Ekki er enn fullfrágengið að Monsa-klefinn verði fluttur til Akureyrar en það skýrist á allra næstu dögum. Tvímenningarnir hafa þó gengið frá kaupum á vélinni og stefna að því að selja skrokkinn í brotajárn. Flugsafn Íslands verður tíu ára á næsta ári. Hlutverk þess er að safna, varðveita og sýna muni sem tengjast flugi á Íslandi, sögu þess og þróun og þar eru glæsilegir munir til sýnis. Safn- ið er í nýju 2.100 m² húsi á Akureyrarflugvelli. Stjórnklefi CL-44 líklega á Flugsafnið  Arngrímur og Hafþór hafa keypt gamla Monsu og stefna að því að hún verði varðveitt á Akureyri  Flugsafn Íslands er í nýju húsnæði á flugvellinum og fagnar tíu ára afmæli á næsta ári Í HNOTSKURN »Stjórnklefinn af fyrstuþotu Íslendinga, Gullfaxa, Boeing 727, var fluttur frá Bandaríkjunum til Akureyr- ar í sumar og er nú í Flug- safni Íslands. »Arngrímur Jóhannssonog Hafþór Hafsteinsson keyptu Boeing-vélina og af- hentu safninu til varðveislu. »Verið er að mála Gullfax-aklefann sem verður til sýnis þegar Sjónlistaverð- launin verða afhent í safninu í beinni útsendingu Sjón- varpsins á föstudagskvöldið. Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Safngripur Stjórnklefi Gullfaxa, fyrstu þotu Íslendinga, fyrir utan Flugsafn Íslands í sumar. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Grindavík | Stefnt er að því að nýr framhaldsskóli verði settur í fyrsta skipti í Grindavík haustið 2009. Bæjaryfirvöld kanna möguleika þess að byggja yfir skólann og menningarstarfsemi í bænum. Þá vinnur Fjölbrautaskóli Suðurnesja að undirbúningi Fisktækniskóla Ís- lands í Grindavík. „Við höfum áhuga á að hækka menntunarstigið. Framhaldsskóli er brýnt hagsmunamál fyrir vax- andi sveitarfélag,“ segir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir bæjarstjóri. Lengi hafa verið uppi hugmyndir um að bjóða nám á framhalds- skólastigi í Grindavík en bæjaryf- irvöld talið sig eiga á brattann að sækja gagnvart yfirvöldum menntamála. Í framhaldi af fundi með menntamálaráðherra var ákveðið að skipa sérstaka nefnd til að undirbúa málið og Eyjólfur Bragason var í sumar ráðinn verk- efnisstjóri. Hann er að móta stefn- una og gera drög að námskrá sem lögð verður fyrir ráðuneytið í næsta mánuði. Hugmyndin er að setja á fót þriggja ára mennta- skóla, eins og nú starfar í Borg- arnesi sem þó yrði lagaður að að- stæðum í Grindavík. Eyjólfur segir að Grindavík sé vaxandi staður sem eigi mörg tæki- færi í framtíðinni. Þar sé að finna allt það sem eitt samfélag þurfi – nema framhaldsskóla. Þá valdi það nemendum og foreldrum erf- iðleikum að sækja skóla annað. Fyrirhugað er að framhaldsskól- inn hefji starf í bráðabirgða- húsnæði næsta haust, ef nauðsyn- leg leyfi yfirvalda fást, en jafnframt er á vegum bæjarstjórnar hafin at- hugun á möguleikum þess að byggja mennta- og menningarhús. Þar á skólinn að fá aðstöðu ásamt tónlistarskóla, bókasafni og menn- ingarstarfsemi. Fisktækniskóli Íslands Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Miðstöð símenntunar á Suð- urnesjum hafa í samvinnu við út- gerðarfyrirtæki, verkalýðsfélög, Grindavíkurbæ og fleiri unnið að verkefninu „Fisktækniskóli Íslands í Grindavík“. Tilgangur þess er að efla grunn- og tæknimenntun í veiðum og vinnslu sjávarafla og endurmenntun á sama sviði. Að sögn Ólafs Jóns Arnbjörnssonar, skólameistara FS, er ætlunin að bjóða ófaglærðu fólki í fiskvinnslu og á sjó að sækja sér menntun sem það gæti nýtt til áfanga í fram- haldsskóla. Veiðarfæradeild FS verður stofninn að Fisktækniskóla Íslands í Grindavík. Þar verður námsefni samið og haldið utan um námið en samið við framhaldsskóla og vottuð fyrirtæki um land allt að annast kennslu og þjálfun. Atvinnufyrirtæki og stofnanir á Suðurnesjum hafa boðist til að leggja fram 20 milljónir kr. á ári næstu þrjú árin, á móti ríkisfram- lagi, til að koma náminu af stað. Gert er ráð fyrir að rekstrar- framlög fáist eftir fjölda nemenda. Ólafur Jón segir að málið sé til at- hugunar í menntamála- og sjávar- útvegsráðuneyti og vonast til að niðurstaða fáist sem fyrst. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Sjávarþorp Samdráttur í sjávarútvegi kemur illa við Grindavík. Aukin menntun er liður í mótvægisaðgerðum sem bæjaryfirvöld vinna að. Menntaskóli undirbúinn  Áhugi er fyrir stofnun menntaskóla í Grindavík  Bærinn vill byggja mennta- og menningarhús  Samhliða er unnið að Fisktækniskóla Íslands á staðnum VEÐURSTOFAN varar fólk við miklu vatnsviðri sem brestur á seint í kvöld og stendur til fyrra- máls. Er fólk hvatt til að huga að niðurföllum og hreinsa vel frá þeim til að forðast flóð. Um er að ræða djúpa haustlægð, 960 hp, sunnan 20 m/sek sem snýr sér í SV-hvassviðri á morgun, miðvikudag, með ört minnkandi rigningu. Út vikuna er síðan spáð SV-roki með nokkurri vætu. Nýtt tungl var í gær og er því stórstreymt um þessar mundir. Skv. upplýsingum frá Almanna- varnadeild ríkislögreglustjóra er fylgst náið með framvindu mála með það fyrir augum að gefa út við- varanir á suðvesturhorninu vegna ágangs sjávar ef þurfa þykir. Gífurlegt vatnsveður á leiðinni FYRIRTÆKIÐ N4 á Akureyri var tekið til gjaldþrotaskipta á dögunum en félag stærsta hluthafans, Extra, heldur áfram úti bæjarsjónvarpinu a.m.k. fyrst í stað, og gefur út Sjón- varpsdagskrá Norðurlands. Öllum átta starfsmönnum N4 var sagt upp en sex endurrráðnir hjá Extra. Þorvaldur Jónsson fram- kvæmdastjóri segir rekstur bæj- arsjónvarpsins hafa verið erfiðan. „Við vonumst til að geta haldið út- sendingum áfram en tíminn verður að leiða í ljós hvort það tekst.“ Bæjarsjónvarpið er ókeypis og hefur ekki notið styrkja þannig að tekjur eru einungis af auglýsingum. Þorvaldur segir fyrirtækið hafa leit- að eftir opinberum styrkjum en ekki fengið hingað til. Hann kveðst hins vegar enn lifa í voninni því starfsem- in sé menningarlega mikilvæg. N4 var stofnað 1. maí 2006 þegar Samver, Extra dagskráin, Smit kvik- myndagerð og Traustmynd samein- uðust. skapti@mbl.is N4 send út á vegum Extra ÖSSUR Pétur Össurarson, sem fannst alvarlega slasaður af ókunnum orsökum við gatnamót Höfðatúns og Laugavegar að morgni 6. september, liggur enn á gjörgæsludeild Landspítalans og er líðan hans óbreytt að sögn læknis. Er hann er tengdur við öndunarvél. Össur hafði hlotið lífshættulega áverka á höfði þegar að honum var komið og kannar lögreglan tildrög atviksins. Óbreytt líðan Hvað búa margir í Grindavík? Vel yfir 2.800 manns bjuggu í Grindavík um mitt ár. Mikil uppbygg- ing hefur verið í bænum og íbúum fjölgað, hefur fjölgað um 680 á tíu árum. Með sama áframhaldi fer íbúatalan yfir 3.000 í lok næsta árs eða byrjun árs 2010. Grindavík er með stærstu sveitarfélögum lands- ins þar sem ekki er starfandi fram- haldsskóli. Hvað eru margir á framhalds- skólaaldri? Um fjörutíu nemendur útskrifast úr grunnskóla Grindavíkur á ári. Hvaða framhaldsskóla sækja ung- lingar úr Grindavík? Flestir eru í Fjölbrautaskóla Suður- nesja í Keflavík. Þangað eru um 30 kílómetrar. Aðrir sækja skóla á höf- uðborgarsvæðinu og nokkrir fara til Akureyrar. S&S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.