Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTAÞJÁLFUN kynþroskaskeiðinu hefst framleiðsla kvenhormóna sem valda því að tíðir hefjast hjá stelpum. Þjálfarinn þarf að hafa kunnáttu til þess að geta leiðbeint, útskýrt og rætt í einlægni um alla þessa líffræðilegu þætti og vandamál sem þeim geta fylgt. Utskýrið það tíma- bundna forskot sem bráðþroska ungl- ingar geta náð í íþróttum og þau vandamál sem geta komið til vegna þess, bæði fyrir þeim sem eru sein- þroska og ekki síst fyrir þeim sem njóta þessa forskots tímabundið vegna stærri og sterkari vöðva, en ekki ástundunar við æfingar eða meiri hæfileika. Kraftþjálfun Eins og áður sagði verður líkami unglinganna á kynþroskaskeiðinu hæfari til kraftátaka vegna stærri vöðva. Aherslan á þesskonar æfingar eykst því hlutfallslega frá því sem áður var. Farið þó varlega í kraftþjálfunina og hafið sem reglu að unglingamir vinni sem mest með eigin líkama, framkvæmi æfmgamar með réttri tækni og að æfingar sem valda miklu álagi á hrygginn, s.s. lyftur upp fyrir höfuð, mæti afgangi meðan unglingamir em að vaxa. Hafið æfing- amar einfaldar í framkvæmd, leggið fyrst áherslu á kraftþolið, og að endur- tekningamar séu margar og mótstaðan lítil. Síðar ætti að auka vægi snerpukrafts og þá er lögð áhersla á hraða hreyfinga í æfingunum, endurtekningunum fækkað og mótstaðan áfram lítil. Ahersla á þjálfun hámarkskrafts ætti að hefjast eftir að lengdarvexti lýkur. Þolþjálfun Vegna stærri öndunarfæra eykst þolhæfni unglinganna á kynþroska- skeiðinu og er mjög mikilvægt að þjálfa þolþáttinn á meðan á þessu þroskaferli stendur. Oft eiga unglingar, sérstaklega stúlkur, erfitt með þolæfingar vegna skyndilegrar þyngdaraukningar á þess- um aldri. Reynið að útskýra mikilvægi þolæfinganna, þó erfiðar séu, og að verið sé að leggja grunninn að góðu þoli það sem eftir er ævinnar. Áhersla á loftháðar æfingar ætli að vera í fyrir- rúmi. Loftháðar æfingar eru t.d. hlaup og hlaupaleikir af ýmsu tagi sem standa yfir í langan tíma, frá 5-10 mín. upp í 20-30 mín. Hraðinn í hlaupunum ætti að vera þannig að ekki myndist mjólkur- sýra í vöðvum viðkomandi. Áhersla á loftfirrta þjálfun ætti alls ekki að vera mikil, þó svo að í lagi sé að kynna hana lítillega á þessum árum. Liðleikaþjálfun Áhersla á liðleikaþjálfun ætti að vera mikil meðan vöðvarnir eru í örum vexti og fyrstu verulegu kraftþjálfunaræfing- arnar eru lagðar fyrir. Liðkandi upp- hitunaræfingar í upphafi hvers æfing- atíma og teygjuæfingar til þess að auka liðleika í lok hverrar æfingar ætti að vera ófrávíkjanleg regla. Leggið áherslu á liðleikaæfingarnar þegar vöðvamir eru heitir og að rétt sé farið að við teygju- æfingar og beitingu líkamans. Sé lið- leikaþjálfuninni sinnt vel á vaxtar- skeiðinu eru minni líkur á meiðslum, viðkomandi þolir meira álag í þjálfun og á auðveldara með að framkvæma tækni- lega flóknar hreyfingar og æfingar og meiri likur eru til þess að viðkomandi eigi auðvelt með að viðhalda nægilegum liðleika undir miklu æfingaálagi á fullorðinsárum. Tækniþjálfun Hlutfall tækniþjálfunar af heildar- þjálfuninni minnkar við aukna áherslu á kraft og þolaukandi æfingar. Tækni- þjálfunin ætti að miðast við að viðhalda áður lærðri tækni. Ört stækkandi vöðvar þurfa að laga sig að fióknum hreyf- ingum. Gefið ykkur góðan tíma við tækniæfingamar og gefist ekki upp þótt á móti blási um tíma. Reynið ætíð að tengja kraft- og tækniæfingar saman þannig að léttar tækniæfingar komi inn á milli kraftæfinga, t.d. meðan á hvfid stendur. Sérhæfing hefst - fjölþætt þjálfun áfram Þegar hér er komið á þroskaskeiðinu er mjög líklegt að í ljós komi hvar hæfi- leikar einstaklinganna liggja til árangurs í íþróttum. Það er þjálfarans að hjálpa unglingunum við að meta stöðu sína og ákveða hvert skal stefna. Unglingamir ættu að einbeita sér meira að ákveðinni íþróttagrein eða greinaflokki en halda áfram að æfa margar greinar á meðan til þess að tryggja fjölbreytta þjálfun sem er bráðnauðsynleg á þessum ámm eins og áður. Þjálfarinn þarf að hjálpa ungl- ingunum við að meta hæfileika sína til hámarksárangurs í íþróttum og í hvaða greinum viðkomandi er líklegastur til þess að ná árangri í. Það verður síðan einstaklingsins sjálfs að velja endanlega grein. Það ræðst oft af félagsskapnum, starfi í viðkomandi iþróttadeild og gæð- um þjálfunarinnar fremur en hæfileikum til þess að ná langt í viðkomandi íþrótta- grein. Enn og aftur, þjálfarar og leiðbein- endur, takið tillit til einstakra þarfa og verið til staðar fyrir unglingana, bæði í gleði og sorg. i TTTT ? Skinfaxi 7

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.