Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Blaðsíða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1943, Blaðsíða 5
Línuveiðarinn SÆBORG fersf Hinrik Schiöth. Eðvald Valdimarsson. Óli G. Friðriksson. Páll Pálmason. Jóhann Friðriksson. A ðalsteinn Sigmundsson. Hallgrímur B. Hallgrímsson. Línuveiðarinn Sæborg frá Hrísey, er var í flutningum við ströndina, fór frá Seyðisfirði áleiðis til Raufarhafnar 14. nóv. 1942. Og hef- ir ekkert til skipsins spurzt eftir að það fór frá Seyðisfirði. Af öllum sem til þekka, er talið sennilegt að skipið hafi farizt á tundur- dufli. Þar sem mjög mikið hefir verið um tund- urduflarek um þessar slóðir. Með skipinu fórust þessir menn: Jóhann Friðriksson, skipstjóri, frá Gamla Hrauni við Eyrarbakka, fæddur 14. sept. 1913, kvæntur og átti 1 barn um tveggja ára að aldri. Hinrik Valdimar Schiöth, stýrimaður, Hrís- ey, fæddur 7. ágúst 1920, ókvæntur. Edvald Valdórsson, fyrsti vélstjóri, Vest- mannaeyjum, fæddur 10. ágúst 1912. Kvæntur og átti 1 barn. Aöalsteinn Jónsson, ahnar vélstjóri, Hrísey, fæddur 7. maí 1898, kvæntur og átti 2 börn og 1 fósturbarn. Óli G. Friöriksson, matsveinn, Aðalvík, fædd- ur 14. júlí 1914. Átti foreldra á lífi, ókvæntur. Páll Pálmason, háseti, Akureyri, fæddur 28. júlí 1923, ókvæntur. Foreldrar á lífi. Hallgrímur B. Hallgrímsson, fæddur 10. nóv. 1910, kvæntur og átti 1 barn, ársgamalt. Hann var farþegi með skipinu. Auk þess var með skipinu einn erlendur mað- ur. Töpin á sjómönnum okkar og skipum eru nú 5 V I KINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.