Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 29

Náttúrufræðingurinn - 1996, Blaðsíða 29
Amund helland OG FERÐ HANS TIL ÍSLANDS 1881 LEÓ KRISTJÁNSSON OG KRISTJÁN P. KRISTJÁNSSON rin 1881-82 voru íslending- um þess tíma helst minnis- stœð vegna hafíss og mikilla kulda. I sögu rannsókna á jarðfrœði Islands urðu þau hinsvegar með viðburðaríkari árum. Þá hófust meðal annars þœr athuganir Þorvaldar Thoroddsens sem liggja til grundvallar jarðfrœðikorti hans. Ýmsir merkir erlendir frœðimenn heimsóttu landið á þessum árum og rituðu greinar um athuganir sínar hér. Fer þar einna mest fyrir norska jarðfrœðingnum Amund Helland (1846—1918) sem nú verður sagt frá. Leó Kristjánsson (f. 1943) lauk B.Sc.-prófi í eðlis- fræði frá Edinborgarháskóla 1966, M.Sc.-prófi frá Newcastleháskóla 1967 og Ph.D.-prófi frá Memorial- háskólanum í St. John's í Kanada 1973. Hann hefur ferið sérfræðingur við Raunvfsindastofnun Háskól- ans frá 1971 og vinnur einkum að rannsóknum á bergsegulmagni og jarðsegulsviðsfrávikum. Leó er jafnframt stundakennari við Háskóla íslands og var prófessor í jarðeðlisfræði 1991-1994. Kristján J. Kristjánsson (f. 1943) lauk prófi í bygg- ingaverkfræði frá Tækniháskóla Noregs í Þrándheimi 1966 og hefur verið búsettur í Noregi síðan, að frátöldum árunum 1970-1972, er hann starfaði hjá Hönnun hf. í Reykjavík. Kristján hel'ur m.a. starfað hjá Spr-Trpndelag Kraftselskap, verkfræðistofu A.R. Reinertsen, Statoil, Berdal Strpmme A/S, Prosjekt- ering A/S, Statens forurensingstilsyn og frá 1994 við tæknideild Stjprdal-bæjar. Einnig rak Kristján eigið ráðgjafarfyrirtæki á sviði byggingaverkfræði 1980- 1983. ■ AMUND HELLAND - ÆVIÁGRIP Eftirfarandi æviágrip er byggt á Malm (1916), Sommerfeldt (1916), 0yen (1916) og Norsk Biografisk Leksikon (1934). Amund Theodor Helland (1. mynd), eins og hann hét fullu nafni, fæddist í Bergen þann 11. október 1846, þriðji af sjö börn- um foreldra sinna. Hann var af góðum ættum; föðurafi hans og faðirinn Hans voru velmetnir stórkaupmenn og farskipa- eigendur í Bergen og áhugamenn um andleg og veraldleg málefni. Föðurafinn, sem var mjög kristilega sinnaður og vildi að Amund yrði prestur, hafði verið forseti bæjarstjórnar. Faðirinn sat í bæjarstjórn- inni um tíma og var að auki ræðismaður Portúgals. Móðir Amunds Hellands var sögð „fögur kona, skynsöm og þægileg viðmóts". Árið 1857 varð verslun Hans Hellands gjaldþrota og lést hann tveim árum seinna. Eftir það ólst Amund upp undir verndar- væng afa síns fyrrnefnds. Að loknu stúdentsprófi nam hann forspjallsvísindi og lét prófa sig í níu greinum, þar á meðal heimspeki, náttúrufræðum, norrænu og ítölsku. Fékk hann hæstu mögulega ein- kunn í öllum níu greinunum. Amund Helland innritaðist síðan í bergvidenskab við Háskólann í Kristjaníu (nú Osló) og lauk prófi sem cand.min. 21 árs gamall í júní 1868, með vitnisburðinum Laudabil- is. Náttúrufræðingurinn 66 (1), bls. 27-33, 1996. 27

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.