Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 4

Fálkinn - 01.02.1961, Blaðsíða 4
Jnni á Nausti aldrn pver ámcfjumnar sjóiur. Porrdmaturinn þykirmér þjóhkquv og- cfóiur J| SSAIISST PRENTVER PRENTUM: Umbúðír, eyðublöð og hverskonar smáprent GEFUM BINDANDI VERÐTILBOÐ Skrifstofur, verzlanir og iönfyrirtæki, geriö svo vel og notfærið yður þjónustu okkar PRENTVER Þingholtsstræti 23 ☆ Reykjavík PIPAR c Hinn nýi forseti Banda- ríkjanna, JohnF. Kenn- edy, er hræddur um að hljóta sama viðurnefn- ið og fyrirrennari hans, Eisen'hower: „golfleik- arinn í Hvíta húsinu“. — Óttinn er vissulega ekki að ástæðulausu, því að Kennedy hefur gert mikið af því að leika golf og er slung- inn í þeirri íþrótt. — Helzta sönnunargagnið fyrir þessum kvíða hins nýja forseta, er setning, sem hann sagði, er hann kom of seint til fundar nýlega. — Ég biðst afsökunar á því, hversu seint ég kem, sagði hann og brosti, — en eitt get ég fullvissað ykkur um: Ég var ekki að leika golf! Blaðamenn í Holly- wood veita árlega háð- ungarverðlaun og að þessu sinni hlaut Elvis Presley þau, Formaður dómnefndarinnar var spurður: — Hvað 'hafið þið eiginlega á móti Presley? — Æ, svaraði hann. ■— Upprunalega höfðum við samúð með honum. En þeg- ar hann fór að trúa öllu því, sem við skrifuðum um „snilld" hans og vera merkilegur með sig, þá fór hann að fara í taugarnar á okkur. — Hvað segja nú allir hans mörgu aðdáendur? — Það er ekki svo mikið eftir af * þeim. Ég á tvær frænkur, 13 og 14 ára gamlar, og þær segja, að „þessi Presley" sé ekki annað en gamall jólasveinn, sem þær nenni ekki að hlusta á! Yul Brynner, sem varð á sínum tíma frægur fyrir að krúnuraka sig, er í miklum vanda staddur um þessar mundir. í væntanlegri biblíumynd, á hann að leika Barrabas, og það getur hann ekki gert án þess að hafa hár á höfðinu. — Nú er því spurningin: Á hann strax að láta sér vaxa hár, eða getur hann bjargazt við hárkollu í leik sín- um? Sennilega verður hið fyrrnefnda uppi á teningnum, því að leikstjórinn er sagður hafa megnustu andúð á hárkoll- um í kvikmyndaleik.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.