Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 110

Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 110
70 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR Bretinn Ian Usher tók upp á því í fyrra sumar að selja líf sitt á uppboðssíðunni eBay. Mánuði síðar lagði hann af stað í ferðalag um heiminn þar sem hann var ákveðinn í að uppfylla hundrað mark- mið sem hann hafði sett sér á jafnmörgum vikum. Ian er nú staddur hér á landi þar sem hann hyggst sjá ísjaka á Jökulárslóni og hin margrómuðu norðurljós. Sara McMahon hitti þennan geðþekka Breta á Tíu drop- um í miðborg Reykjavíkur. „Ég var nýskilinn við eiginkonu mína og langaði að breyta til. Ég ákvað að selja líf mitt og leggja af stað í tveggja ára ferðalag þar sem ég myndi reyna að uppfylla gamla drauma og önnur markmið sem ég hafði sett mér,“ útskýrir Ian. Hann segist upphaflega hafa ætlað að selja líf sitt í einum heildarpakka en það gekk ekki upp. „Kaupand- inn átti að fá húsið mitt, sjóskíðin, bílinn, öll húsgögnin, fötin mín og jafnvel vinnuna mína. Það gekk þó ekki upp og í staðinn skipti ég eigunum upp og seldi hingað og þangað.“ Disney keypti söguna Ian hafði verið búsettur í Perth í Ástralíu í sjö ár þegar hann ákvað að leggja af stað í þessa langferð og ákvað að fyrsta markmiðið sem hann skyldi uppfylla væri að fara á snjóbretti í eyðimerkurborginni Dúbaí. Skíðabrekkan var í miðri verslunarmiðstöð og segir Ian að þetta hafi verið einstök upplifun. Hann segir fjárhaginn ágæt- an þrátt fyrir stanslaus ferða- lög undanfarið eitt og hálft ár. „Ég fékk summu frá Disney sem tryggði sér kaupréttinn að sögu minni í átján mánuði. Það þýddi að ég get ekki selt sögu mína neinum öðrum þessa átján mán- uði. Ég hef því ferðast um í boði Disney-samsteypunnar undanfar- ið ár en sá peningur er næstum uppurinn og nú þarf ég að fara að eyða eigin fé, sem er mun sárs- aukafyllra,“ segir Ian og hlær. Hann hefur kynnst fjölda fólks á ferðum sínum um heiminn og segir það hafa komið sér á óvart hvað fólk sé almennt hjálplegt. „Ég hef verið heppinn því upp- boðið á eBay vakti nokkra athygli og margir höfðu samband við mig í kjölfarið og buðu fram aðstoð sína. Sumir vildu leyfa mér að gista hjá sér á meðan aðrir vildu sýna mér heimaborg sína. Ég er mjög þakklátur öllu þessu fólki og held að þeirra vegna hafi ég feng- ið aðra sýn á staðina sem ég hef heimsótt heldur en til dæmis hinn almenni ferðamaður. Ég hef líka eignast marga góða vini í leið- inni,“ segir Ian. Heldur jól með fjölskyldunni Ian hefur nú þegar uppfyllt sextíu og sjö markmið af þeim hundrað sem hann setti sér í upphafi ferð- arinnar. Nái hann að upplifa norð- urljósin og ísjakana hefur hann uppfyllt sextíu og níu markmið. Eftir Íslandsdvölina heldur hann heim til Bretlands þar sem hann mun eyða jólunum með fjölskyldu sinni. Í byrjun næsta árs heldur hann svo til Suður-Ameríku þar sem hann ætlar meðal annars að upplifa kjötkveðjuhátíðina í Ríó og ferðast um slóðir Inkanna. Ian lýkur ferðalagi sínu 4. júlí á næsta ári, en þá hefur hann farið tvisvar sinnum í kringum hnöttinn. Spurður hvort hann kvíði því að snúa heim tómhent- ur segist hann lítið hafa hugsað út í það. „Ég veit ekki hvar heima er lengur. Ég er ekki viss um að ég muni snúa aftur til Ástralíu þegar þessu lýkur. Ég hafði hugsað mér að reyna að skrifa bók um ferða- lagið og hef verið í viðræðum við útgefanda í Bretlandi þannig að það getur hugsast að ég snúi aftur heim til Bretlands.“ - sm Ian seldi líf sitt á eBay og vill sjá norðurljósin á Íslandi SELDI LÍF SITT Á EBAY Ian Usher seldi líf sitt á uppboðssíðunni eBay og hefur ferðast um heiminn undanfarið eitt og hálft ár. Disney keypti réttinn að sögunni og hann er í viðræðum við breskan útgefanda um að skrifa ferðasöguna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þegar nafninu Ian Usher er slegið inn í leitarvél Google birtist fjöldinn allur af tenglum inn á vefsíður tímarita víða um heim. Meðal þeirra sem hafa fjallað um manninn sem seldi líf sitt má nefna BBC News, The Daily Mail, Huffington Post, The Sun og The Enquirer. Málið vakti gríðarlega athygli bæði í Ástralíu og Bretlandi á sínum tíma, enda þótti uppátækið óvenjulegt. Þessi athygli hefur þó verið Ian til framdráttar því eins og kemur fram í viðtalinu sýndi Disney-samsteypan áhuga á að kaupa kvikmyndarétt- inn að sögu hans auk þess sem Ian hefur verið í viðræðum við bókaútgefanda í heimalandi sínu, Bretlandi. IAN Í HEIMSPRESSUNNI Eins og fram kemur í Fréttablað- inu í dag er Sigur Rós víða með plötur á listum yfir bestu plötur áratugarins. Jónsi kemur sterk- ur inn sjálfur með Alex Somers kærastanum sínum, en þeir eru valdir sætasta parið af tímaritinu Out, vinsælasta tímariti samkyn- hneigðra í Bandaríkjunum. Í nýjasta tölublaðinu má sjá hvaða hundrað manns segir að hafi bjargað árinu, að mati Out. Í umsögn er farið fögrum orðum um verk Jónsa og Alex, hvort heldur plötuna Riceboy Sleeps eða myndverk þeirra, sem hafa verið sýnd víða um heim. Þá er væntanlegar sólóplötu Jónsa, Go, getið, sem hann vann með Nico Muhly. Nico var sjálfur á lista Out yfir bestu tónlistarmennina árið 2007. Aðrir sem prýða lista Out í ár eru meðal annars eitís-stjarnan Cyndi Lauper, sem er „banda- maður ársins“, kvikmyndaleik- stjórinn Pedro Almodóvar, sem er „mesti daðrarinn“, grínistinn Wanda Sykes sem er skemmti- kraftur ársins og Idol-stjarnan Adam Lambert, sem valinn var „út úr skápnum“ árins. Jónsi og Alex sætastir Í GÓÐUM HÓPI Á ÁRSLISTA OUT Samkvæmt aðaltímariti samkynhneigðra í Banda- ríkjunum eru Jónsi og Alex sætasta parið. KRINGLAN Sími: 553 8050 Sími: 551 8519SMÁRALIND 99003 00017 Stærðir: 36 - 41 39404 01001 Stærðir: 41 - 46 9.995 99004 00001 Stærðir: 40 - 45 68153 55878 Stærðir: 36 - 42 9.995 24.995 24.995 Katmandu TILVALIN JÓLAGJÖF Golfskór Dömuinniskór Herrainniskór Útivistarskór Viðtal sem var tekið við John Lennon og Yoko Ono árið 1968 hefur loksins verið birt í heild sinni, 41 ári síðar. Það voru breski háskólanem- inn Maurice Hindle og skólafélagi hans sem tóku viðtalið, sem hefur nú verið birt í blaðinu New States- man. Það var John Lennon sjálfur sem sótti nemana tvo á lestarstöð skammt frá heimili sínu í Surrey. „Fyrir utan Weybridge-stöðina stöðvaðist Mini Cooper-bíll með skyggðum rúðum sem leit út eins og bíll úr The Italian Job-myndinni,“ sagði Hindle. „Í bílstjórasætinu var Lennon. Við tróðum okkur í aftur- sæti bílsins og John keyrði okkur upp holóttan einkaveginn sem leiddi að heimili hans.“ Viðtalið stóð yfir í sex klukku- stundir. Í því ræddi Lennon um þá gagnrýni sem hann og Bítlarn- ir höfðu fengið fyrr á árinu frá sósíalistanum Tariq Ali. Þar gagn- rýndi Ali meðal annars lagið Revolution og þótti það áhrifaminna en margir vildu meina. Lennon þótti lítið til skrifa Alis koma og taldi að hann þyrfti að breyta um hugsunarhátt ef hann vildi breyta samfélaginu til hins betra. Týnt viðtal við Lennon birt JOHN OG YOKO Viðtal við John Lennon og Yoko Ono frá árinu 1968 hefur loksins verið birt í heild sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.