Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1941, Blaðsíða 11

Ægir - 01.07.1941, Blaðsíða 11
langt tímabil, áður en hér kemur sögu, haft liug á að koma upp fiskverkunar- stöðvum hér á landi og jafnframt að reka hér verzlun. En þar sem fullkomið verzlunarbann lá á landinu, gátu þeir ekki lálið skríða lil skara með þessa fyrirætlun sína, fyrr en því var að fullu afléti. En svo skjótt sem verzlunin var gefin frjáls við allar þjóðir, kom fvrrnefnd íyrirsþurn til Alþingis, þar se.m þess er farið á leit, að íslendingar eða fulltrúar þeirra, veili samþykki silt til að leyfa útgerðarmönnum frá Dunkerque að reisa fiskverkunarstöð i Dýrafirði. í fyrirspurninni voru þau mannvirki, sem i ráði var að reisa þarna, skilgreind á þessa lund: 1. „Að reist verði þar ibúðarliús handa þeim mönnnm, er þarf til að verka fislc- inn, á að gizka 4—500 nianns. 2. Að reist verði þar forðabúr og geymsluhús, þar sem í verði geymt mat- væjli, fiskur og salt. 3. Að reistir verði pallar og staurar, er naglar verði í reknir til að þenja út fisk- inn á og þurrka hann.“ I þessum þremur atriðum fólust óskir Frakka, að svo miklu leyti sem þær lágu fyrir AJþingi. En til þess að tryggja það, að íslendingum yrði engin liælta búin af þeim mönnum, sem fluttir yrðu lil lands- ins, áskyldu Frakkar sér að láta herskip liggja í Dýrafirði frá þeim tíma að fólkið vrði flutt hingað og þar til verkun fisks- ins yrði lokið, og það héldi heim aftur að líðandi hausti. Yfirmenn og skipshöfn herskipsins óttu að bera alla ábvrgð á fólki því, sem ynni að fiskverkuninni og jafnframt þeim fiskimönnum, sem þarna legðu afla sinn á land. Var tekið fram, að hafður vrði jafn strangur agi á verka- l'ólki þessu og tíðkasl um borð i herskip- um Frakka. Þá áttu yfirmenn herskips- ins einnig að sjá svo um, að aðkomu- fólkið bryti í engu lög landsins. Þá er ekki látið ógetið um þær líkur, sem fyrir því væru, að íslendingar gætu Iiagnast af þessum viðskiptum. Er gerl ráð fvrir, að Íslendingar geti sjálfir feng- ið þarna vinnu við fiskverkun, að bænd- ur geli selt i verkunarstöðvunum ýmsar búsafurðir, einkum kjöt. Þá er gerl mik- ið úr því, að Frakkar setja þarna á stofn verzlun, er verða muni landsmönn- um til mikils hagnaðar. Þangað mundi ckki einungis verða flultar framleiðslu- vörur Frakklands lieldur einnig nýlendu- vörur, mundi Iivorutveggja „geta orðið látið með mjög sanngjörnu verði, þar sem hægðir væiru svo miklar við inn- flutningimi, og sú verzlun mundi verða tilefni til verzlunarsamhands milli Frakklands og íslands, sem hvorum- tveg'gju vrði að verða til mikils hagnað- ar“, eins og segir í orðsendingu Frakka lil Alþingis. Ekki veit ég með vissu, livar Frakkar liafa ætlað sér að setja upp þessa verk- unarstöð í Dýrafirði, en hvgg að þeir Iiafi Iielzt liaft augastað á Haukadal. Undirtektir íslendinga við þessari málaleitun voru ekki á einn veg, enda tæpast að vænla þess. Allmargir litu svo á, að það gæti orðið þjóðinni til mikils hagnaðar að levfa Frökkpm að verka fisk í landinu, einkum ef landsmenn gætu sjálfir liaft arðvænlega atvinnu við þá framleiðslu og auk þess selt þeim inn- lendar afurðir, en liitt num þó liafa orð- ið þvngra á metunum, að fyllsta von þótti standa til þess, að með þessuni nýju innflytjendum skaiiaðist hetra verzlun- arfyrirkomulag. Vörurnar, sem þeir flyttu til landsins yrðu fjölbrevttari, betri að gæðum og ekki sízt ódýrari en áður hafði þekkzt. Ekki var íiema eðlilegt, að liugur nokkurs hluta landsmanna beind-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.