Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Blaðsíða 36

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Blaðsíða 36
Ávíð o« dreif FRÉTT FRÁ „HINU ÍSLENSKA SJÓRÉTTARFÉLAGI“ Þann 27. september s.l. var gengið frá stofnun félags áhugamanna um sjó- rétt, sem ber nafnið „HiS islenska sjóréttarfélag“. Hlutverk félagsins er að efla íslenskan sjórétt sem fræðigrein og að auka áhuga á greininni og kynna hana. Samkvæmt lögum félagsins hyggst það m.a. ná tilgangi sínum með því: 1) „Að kynna fræðigreinina, almennnt og sérgreint, og nýmæli í sjórétti fyrir félagsmönnum, m.a. með fræðslufundum og/eða umræðufundum. 2) Að örva og styrkja rannsóknir í sjórétti, sjóvátryggingarétti og skyldum greinum, t.d. með því að stuðla að útgáfu íslenskra fræðirita í sjórétti og auknum bókakaupum íslenskra rannsóknabókasafna um sjóréttarleg mál- efni. 3) Að annast útgáfustarfsemi á þessu sviði, t.d. útgáfu erinda, sem haldin verða á fræðafundum, útgáfu prófritgerða í sjórétti við Lagadeild Háskóla íslands (í samvinnu við höfundana), með fréttabréfi, þar sem ýmis nýmæli séu kynnt eða gagnlegum upplýsingum miðlað, og útgáfu athyglisverðra héraðsdóma í sjóréttarmálum (eða úrdrátta úr þeim). 4) Að stuðla að því, að aukinn verði vegur sjóréttarkennslu við Lagadeild Háskóla Islands, eða utan hennar, t.d. með reglubundnum og vönduðum námskeiðum. 5) Að leitast við að auka tengsl íslendinga við erlendar rannsóknarstofnanir í sjórétti. 6) Að efla kynni við erlenda sjóréttarfræðinga eða áhugamenn um sjórétt, t.d. með skipulagningu námsferða eða ferða á ráðstefnur og með sam- skiptum við hliðstæð félög erlendis. 7) Að beita sér fyrir eðlilegri endurskoðun laga og reglna á sviði sjóréttar á komandi tírnurn." Allir íslenskir áhugamenn um sjórétt eiga rétt á að vera félagsmenn. Einnig eiga félög, samtök og stofnanir rétt á aðild. Þessir menn voru kosnir í hina fyrstu stjórn félagsins: Dr. Páll Sigurðsson, dósent (formaður); Jón H. Magnússon, lögfr.; Jónas Haraldsson, skrifstofustj.; Viðar Már Matthíasson, hdl.; Benedikt Blöndal, hrl.; Benedikt Sigurjónsson, fyrrv. hæstard.; Einar Hermannsson, skipaverkfræðingur. i varastjórn voru kosnir þeir Gunnar Felixson, aðstoðarforstjóri, og Bjarni Kr. Bjarnason, borg- ardómari. 206

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.