Víðir - 04.07.1931, Blaðsíða 3
Víöir
3
iTil minnis.
Bœjarfógetaskrifstofan
opin kl. 1—3 og 5'|2—6V2
Bœjarstjóraskrifstofan
opín kl. 1 — 2 og 5—7
Bœjargjaldkeraskrifstofan
opin kl. 1—2 og 5—7
Héraðslœkttir
kl. 1—3 og 6--7 Simi 29.
P. V. G. Kolka
kl, 1 —2 og 6^/2—7Vj virka
daga og kl. 3—4 sunnudaga.
Sfmar 61 og 161.
Rjarl Jónasson
á Lundi k). 11 —12 og 4—6
virka daga og k). 1—2 sunnu-
daga Símar 151 cg 17.
Leifur Sigfússon, tannlœknir
k'. 1—5 og oft k). 11 —12 og
6—7 Simi 125.
Sjúkrahúsið
Heimsóknartimi kl. 3—4 al)a
daga.
Pósthúsið
opið kl. 10 —12 og 1—6.
Útvcgsbanki Islands h. f.
opin kl. 11—12 og’ 1—3.
Landssíminn
opinn kl. 8 f. h. til 9 e. h.
virka daga og kl. 10 f. h. til
8 e. h. sunnudaga.
Ljósmyndastoja K O.
opin kl. 1—7 virka daga og
1—3 sunnudaga.
Bókasafnið
opið sunnud., þriðjud., flmtud.
og laugar. kl. 5—7, útlán á
sama tima.
Baðhúsið
opið k). 9—12 og 1—7 alla
daga neina laugardaga. Sími 85.
harðstjórarnir rússnesku leiðina
tii að afla Kommúnismanum
fylgis.
Öllum ber saman um, sem til
þekkja, að úr rússneska Komm-
únismanum sé oröin haröstjórn,
verri og böðulslegri gagnvart
þjóðinni, sérstaklega bændum
og verkamönnum, heldur en
harðstjórn keisaratímabilsins.
1927 voru rússnesku bændurn-
ir fengnir til stuðnings byltinga-
mönnum og þeim iofað gulii og
grænum skógum. Alt gekk vel
meðan verið var að brytja niður
jarðir stóreignamannanna og út-
hluta þeim til bænda. En nú er
komiö annað hljóö í strokkinn.
Bændurir eru nú ofsóttir af hin-
um fyrri samherjum sínum.
Kommúnistarnir reka þá nauðuga
viljuga í hnappheldu rikisbúskap-
arins, þar ar bóndinn ekki annað
en ánauðugur þræll, sem er skip-
að fyrir hvað hann eigi að vinna
og af mörkum að láta og úthlut-
að lifsviðurværi af skornum
skamti.
Um frelsi og sjálfstæða ákvörð-
un fyrir bóndann eða skildulið
hans er ekki að ræða alt slíkt
er marið undir járnhæl yfirboð-
aranna, Kommúnistanna, óðar en
á því bólar.
í öðrum löndum álfunnar
gengur viðieitni ríkisvaldsins í þá
átt, að gera bændur sem óháð-
asta og sjálfstæðasta, með því
þykir sýnt, að þeir njóti best
krafta s'nna, og framieiðsla þeirra
og búskapur gangi vel.
í landi Kommúnistanna er þetta
alt öfugt, þeir gera bændastétt
stna að kotbændum og það sem
verra er, taka frá þeim alla löng-
un til sjálfsbjargarviðleitni með
því að svifta þá yiirráðum yfir
eigum sínum og gera þá að blá
fátækum og hungruðum þrælum
ríkisvaldsins.
Atle'ðingin er sú, sem raun
ber vitni um. Framleiðslunni
stórhrakar þrátt fyrir dráttar-
vélar og nýtískutæki, verkfræð-
inga og verksmiðju-búskap.
Kommúnistarnir sem öllu ráða
í Rússlandi hafa með aðförum
sínum tekið vinnugleðina og
starfslöngunina frá bændum.
Vinnan er orðin nauðungarvinna
unnin af þrælsótta. það gerir
gæfumuninn.
Bæjarvinnan.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var í einu hljóði samþykt, að
leggja fyrir bæjarstjóra, að taka i
bæjarvinnuua og í vinnuna við
olíugeymirinn, aðems hér búsetta
fjölskyldumenn, og skyldi hlið-
sjón einnig höfð af þvi, við út-
hlutun vinnunnar, hversu þungt
heimili menn hetðu.
Vinnan við oliugeyirinn heyrir
að því leyti til undir bæjarstjórn,
að félagið er vinna lætur, eða
vinnuformaður þess, er skyldur
til að ráða menn sína í samráði
við bæjarstjórn. þetta var eitt
af skilyrðum bæjarstjórnar fyrir
leyfi til að byggja á þessum stað,
og gert tii þess, að þeir fengju
helst vinnuna sem mesta þörf
hefðu fyrir hana.
Knattspyrna.
þeir sem vita hve fögur íþrótt
knattspyman getur verið, þegar
hún er vel æfð, munu hafa orðið
fyrir vonbrigöum er þeir sáu
síðasta kappleik á milli BTýs“ og
»þórs“
það er ekki ætlun mín með
þessum línum að hnýta í félögin
fyrir þennan kappleik, en að eins
benda þeim á það, að ef þeir
vilja ná góðum árangri á komandi
tíma, þá veiti þeim ekkl af að
þjálfa sig betur.
KnattHpyrnumenn hér í eyjum,
hafa sýnt það á kappmótum í
Reykjavík, að þeir eru með bestu
knattspyrnumönnum Iandsins. þá
vantar eigl annað en herslumun-
inn, og hann er ekki mikill, til
þess þeir séu þeir bestu.
Ég hefi heyrt sagt, að II fl. K.
R. komi frá Reykjavík um mið-
jan þennan mánuð, og ætli hann
að keppa hér við II fl. úr „þór“
og „Týr“. þetta er besti II fl.
landsins og má því búast við að
Vestmannaeyingar bíði ósigur. þó
er það ekki víst. þeir eru marg-
ir mjög efnilegir knattspyrnu-
menn, piltarnir sem eru í öðium
Hokk „þórs" og »Týs“ og er ég
illa svikinn, ef þeir reynast ekki
þrautseygir eins og endra nær.
Ungu menn! sem eruð með-
Iimir í II fl. „Týs“ og „þórs“,
æflð nú af kappi/ Æfið sérstak-
lega samspilið. Búið ykkur vel
undir kappið að öllu leyti og
hver veit nema þið vinnið. Hafið
þið það hugfast, að ef þið vinn-
ið K. R. þá eruð þið, besti II
flokkur landsins.
Svo kemur þjóðhátíðin, þá
kemur knattspyrnufelagið „Vík-
ingur“ hingað til Vestmannaeyja
þá verður úrvalslið Vestm. ,
eyja að ganga fram á völlinn og
sigra. Annað má ekki ske, því
þetta félag hafa Vestmannaeying-
ar unnið áður.
Knattspyrnumenn æfið af fjöri,
þá er sigurinn vís.
Munið það, að nú er ykkur
falið að halda uppi sæmd Hyj-
anna.
Z.
Fangavinna.
Ástralskir verkamenn neita að
snerta á rússneskum vörum.
í útvarp^fréttum hefur verið
skýrt frá því nú hina síðustu*
daga að skip kom frá Rússlandi
til hafnar einnar í Ástralíu með
víðarfarm. Verkamenn neituðu
að vinna þó ekkert bæri á milli
með kaupið, og er þeir voru
spurðir að ástæðum var svarið
það að þeir fengjust ekki til að
hreyfa við affermingu á vörum
sem fangar eða ófrjálsir menn
heföu unnið að.
Fregninni fylgdi og það, að
jafnvel þó með einhverjum ráðum
tækist að koma timbrinu á land
myndu trésmiðir neita að vinna úr
því, af sömu ástæðum og að
framan greinir.
þetta ásamt fleiru af líku tagi
sýnir að sannleikurinn um
ástandið t Rússlandi er farinn að
koma í ljós víðsvegar.
Tilgangur rússnesku ráðstjórnar-
innar er sá, að eyðileggja at-
vinnu fólksíns í öðrum löndum
með undirboði á allskonar vör-
uin, og koma þannig af stað
atvinnuleysi, örbyrgð og bylting-
um.
Harðstjórn kotnmúnistannabýð-
ur heiminum ódýra vöru og
ódýrara eu hægt er að fá annars-
staðar, en þetta er gert á kosnað
verkalýðsins rússneska, sem er
látinn vinna fyrir svo lágt kaup
að hvergi eru dœmi ti) annars-
staðar. En harðstjórn og kúgun
Kommúnistaioringjanna hefur
vamð verkamenn af því að
mögla. þeir eiga elnskis úrkosti.
þeir eru ekkert annað en
ánauðigir menn, fangar í nauð-
ungarvinnu.
þetta er það ástand sem
apakettirnir, kommúnistafor-
sprakkarnir úti á íslandi, eru að
lofa, og ginna unglinga og
fáfróðasta hluta verkafólks til
að hylia.
Lítið vita þeir unglingar sem
eru að státa með Bolsamerkið t
hnappagatinu, merki ráðstjórnar-
innar rússnesku, að þeir eru að
hampa merki þess ríkis, sem
hefur gert þegna sina að þrælum
og lætur verkalýðinn sveitast
fyrir sultarlaun, til að geta fleygt
afurðum landsins á heimsmarkað-
inn, langt undir því verði, sem
önnur lönd geta boðið.
Hrammur rússnesku böðlanna
er með þvi að seilast til verka-
manna allra þjóða, og neitun
verkamannanna í Ástriíu er vörn
þeirra gegn því böli sem þeir
sjá yfirvofandi ef aðferð Komm-
únistanna skyldi heppnast.
Iþróttamenn!
þið haldið á hverju ári þjóð-
hátíð i Herjólfsdai. En eins og
þið vitið, þá er margt þar öðru-
vísi en á að vera, t. d. hve mik-
ið er af grjóti í sjáltum dalnum,
þar sem tjöidiu eru vön að vera og
annarsstaþar á skemtisvæðinu.
Vilduð þið nú ekki gera ykk-
ur þann sóma, að fara nokkrum
sinnum eftir knattspyrnuæfingar
eða þau kvöld er þið æfið ekki
og hreinsa svolítið til í dalnum.
Eg skal koma með.
Gamall knattspyrnuinaður.
Símfregnir.
Innlendar,
F. B. R.vík 3. júlí 1931
þann 27 júní urðu skipverjar
a M.b. Gamminum er var á leið
austan frá Geirsliólma vestör að
Horni, varir við skipsbómu, sem
stóð upp á endann og var föst.
þeir mældu dýpið beggjamegin
bómunnar og var það 24 og 26
metrar. Skipverjar tilkyntu vita-
málastjóra, sem fahð hefir Óðni
að rannsaka þetta nánar. Kafari
verður sendur vestur. Ýmsa
hluti rúmfatnað klukku og fleira
hefir nýlega rekið á þaraláturs-
nesi. Talið er að norska skipið
Ulv hafi farist á þessum slóðum.
Úlendar.
F. B. 3. júlí 1931
Grav Zeppelin kom í morgun
kl. 6,15 Friedriekshavn.
Harald Hoeffding prófessor
andaðist t gær.
JSasié
cfluglýsié é ^JÍéi