Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 12.02.1971, Blaðsíða 2

Alþýðumaðurinn - 12.02.1971, Blaðsíða 2
BLAÐINU er akkur í því að íá íþrótíafregnir, sem víðsvegast að á Norðurlandi sem og r.ðrar fréttir. Ólafsfirðingar eru fyrstir tiL liðveizlu við blaðið í þessu efni cg færir blaðið þeim hér með heiía þökk fyrir. Blaðið vill einnig benda velunnurum sínum á sviði íþrótta á Akureyri, að þrð vantarr sjálfboðaliða er taka vildu að' sér að kynna og segja frá hinu fjölbreytta íþróttalífi í bænum. En hér koma fréttir af þrem skíðamóíum í Ólafsfiiíði. GONGUMÓT 30. jan. 1971. Stúíkur 9—10 ára. I Vegalengd 1 km. mín. Ólöf Garðarsdóttir 6.10 Stúlkur 11—12 ára. Vegalengd 1 km. Sigríður Stefánsdóttir mm. 6.53 Drengir 7—8 ára. Vegalengd 1 km. mín. Ásgeir Logi Ásgeirsson 5.52 Kristinn Hreinsson 6.01 Steinar Agnarsson 6.49 Hannes Garðarsson 6.90 Friðgeir Sigurðsson 7.45 Drengir 9—10 ára. Vegalengd 2 km. mín. Gottlieb Konráðsson 9.11 Anton Konráðsson 10.06 Sæmundur Jónsson 10.11 Drengir 11—12 ára. Vegalengd 3 km. mín. Jón Konráðsson 17.00 Kolbeinn Ágústsson 17.06 Jóhann Sigurðsson 17.21 Skarphéðinn Aðalbjörnss. 17.23 Guðmundur Garðarsson 18.58 Drengir 14 ára og cldri. Vegalengd 3 km. mín. Haukur Sigurðsson 14.48 STÖKKMÓT 31. jan. 1971. Drengir 9—10 ára. stig Guðmundur Sigurðsson 145.5 Gottlieb Konráðsson 143.0 Bernharð Hreinsson 142.5 Róbert Gunnarsson 137.0 Sæmundur Jónsson 136.0 Halldór Guðmundsson 134.0 Anton Konráðsson 130.0 Drengir 11—12 ára. stig Jóhann Sigurðsson 149.0 Þröstur Ólafsson 145.0 Skarphéðinn Aðalbjörnss. 144.0 Jón Konráðsson 136.5 Guðmundur Garðarsson 135.0 Valur Hilmarsson 134.0 Reynir Arngrímsson 131.0 Drengir 13—14 ára. stig .Helgi Ástvaldsson 150.0 Þorsteinn Þorvaldsson 150.0 Ómar Aðalbjörnsson 143.5 Drengir 14 ára og eidri. stig Viðar Konráðsson 149.5 Drengir 7—8 ára. stig Haukút Hilmarsson 146.0 Steinar Agnarsson 123.0 Keppendúr voru skráðir 22, en 20 luku keppni. Veður vai' gott...... - GÖNGUMÓT 7. febrúar 1971. Keppni milli Ólafsfirðinga og Akureyringa. Flokkur 13—16 ára. Vegalengd 5 km. mín. Haukur Sigurðsson, Ó 21.16 Kristján Vilhelmsson, A 21.30 Ármann Svei'risson, A 21.36 Birgir Ingvason, Ó 21.51 Trausti Haraldsson, A 22.30 Baldvin Stefánsson, A 22.34 Magnús Vestmann, A 22.50 Þórarinn Ágústsson, A 25.07 Þorsteinn Þorvaldsson, Ó 25.53 Tryggvi Ásgrímsson, A 28.02 Flckkur ll—12 ára. VégálengcT 5 km. mín. Jón Konráðsson, Ó 24.09 Jóhann Sigurðsson, Ó 25.08 Skarphéðinn Aðalbj.s., Ó 26.29 Kolbeinn Ágústsson, Ó 26.35 Flokkur karla. Vegalengd 15 km. mín. Frímann Ásmundsson, Ó 57.26 Halldór Matthíasson, A 60.38 í Húsmæðraskólanum á Ákureyri HUSMÆÐRASKOLI tók til starfa á Akureyri 1945 og var heimangönguskóli. Starfaði hann í því formi, og lengst af undir stjórn frú Helgu Krist- jánsdóttur frá Fremstafelli, næstu sjö árin. Skólanum v-ai' valinn staður við Þórunnarstræti og lóðin ekki skorin við nögl. Skólahús- ið er myndarleg bygging. Árið 1952 og síðan hefur skól- inn starfað sem námskeiðaskóli húsmæðra, þar sem lögð hefur verið áherzla á matreiðslu, sauma og vefnað, hinar sígildu greinar hinnar almennu hús- mæðrafræðslu. Auðvitað lifði sá draumur lengi meðal áhugasamra kvenna á Akureyri og lifir kannski ennþá, að gera skólann á ný að einum hinna hefð- bundnu skóla húsmæðrafræðsl- unnar í landinu, og byggja heimavistir við skólahúsið. Reynslan hefur orðið sú, að námskeiðafyrirkomulagig hefur gefizt mjög vel. Mjög margar húsmæður og verðandi hús- mæður hafa getað sótt þangað fræðslu, er þær gátu ekki veitt sér á reglulegum húsmæðra- skólum. Til dæmis um þetta tóku 340 konur þátt í námskedð um skólans í fyrra. Skólanefnd húsmæðraskólans skipa 5 konur. Formaður 'er Bergþóra Eggertsdóttir, skipuð að hinu opinbera. Fulltrúar Húsmæðraskólafélagsins eru: Sigríður Árnadóttir og Þórunn Sigurbjörnsdóttir, og fulltrúar bæjarins þær Guðný Pálsdóttir og Ragnhildur Jónsdóttir. Á laugardaginn boðaði skóla- nefndin fréitamenn á sinn fund N Viðskiptaskrá fyrir Akureyri ÁGÓÐANUM VARIÐ TIL LÍKNARSTARFSEMI Kiwanisklúbburinn „Kaldbak- ur“ á Akuréýri er að fara á stað með útgáfu viðskptaskrár fyrir Akureyri. í skránni verður stofnunum og fyrirtækjum rað- að niður eftir því hvaða hlut- verki þær- gegna, og á því að vena fljótlegt og handhægt fyrir TILKYNNING FRÁ STRÆTISVÖGNUM AKUREYRAR Vagnarnir aka á tímabilinu febr.—maí. Ráðhústorg — Glerárhverfi: Kl. 14.20-14.50 16.50- 17.20 15.20- 15.50 17.50 — 18.20 16.20 Ráðhústorg — Innbær: ICl. 14,35-15.35-16.35 17.35-18.35 Ráðhústorg — Brekka: Kl. 15.05- 16.05- 17.05- 18.05 Ráðliústorg — Sjúkrahús: Kl. 15.05- 16.05 STRÆTiSVAGNAR AKLíREYRAR í skólanum, skýrði starfsemi skólans og sýndu húsakynni. En tvær kennslustofur og stórt eldhús hefur Gagnfræðaskólinn til sinna nota. Verið er að gera margvíslegar endurbætur á kjallara hússins. Námskeið þau, sem nú standa yfir í Húsmæðraskólanum og á hans vegum eru: Saumanámskeið: ' Kennari Ingunn Björnsdóttir, fastur kennari. Hálfsmánaðar nám- skeið tvisvar í viku (kvöldnám- skeið) og geta konur komið með sniðnar flíkur eða fengið sniðið, ef þær vilja. Fimm vikna námskeið bæði kvöld og dag- námskeið. Matreiðslunámskeið: Þriggja daga námskeið fyrir húsmæður. Fimm vikna námskeið fyrir ungar stúlkur. Þau verða þrjú kvöld í viku. Einnig fyrirhuguð sýnikennsla í matreiðslu. Kenn- ai’i er frk. Guðrún Sigui'ðar- dóttir. Vefnaðarnámskeið: Kennari Ólöf Þórhallsdóttir. Dag- og kvöldnámskeið. Einnig nám- skeið fyrir grindvefnað. Föndurnámskeið: Frú Ragn- heiður Valgarðsdóttir mun á næstunni verða með föndur- kennslu. Þá munu og verða á næst- unni leiðbeiningafyrirlestrar um ýmis efni, svo sem heilsu- vernd, mataræði, hjúkrun í heimahúsum, meðhöndlun þvottaefna o. fl. Einnig eru með vorinu fyrirhuguð garðyrkj u- námskeið sem verður á vegum Sambands norðlenzkra kvenna. Húsmæðraskólinn er rekinn af bæ og ríki. Námskeiðin eru öll samtímis og komast því magar konur að, er þessara kennslugreina vilja njóta. Skóla nefnd hefur áhuga á að koma á fimm mánaða námskeiði, til þess að búa konur undir nám í Húsmæðrakennaraskóla ís- lands. þá, sem á upplýsingum burfa að halda, að fletta upp í skránni og fá þar svör við spurningum sínum. Símanúmer allra fyrir- tækja verður þarna að finna og eins fleiri upplýsingar. Öllum er frjálst að fá að vera með í skránni, sem vilja, en þar sem undirbúningur undir prentun er að komast á lokastig, skal þeim forrsvarsmönnum fyrir- tækja, sem ekki hefur þegar verið haft samband við, og vilja vera með, bent á að setja sig þegar í stað í samband við ein- hvern „Kiwanis“-félaga. Þátttaka hefur verið mjög góð, en þó munu einhver fyrir- tæki enn vera eftir. Viðskiptaskránni verður síð- an dreift endurgjaldslaust inn á hvert heimili á Akureyri og nági'enni, en stofnanir og fyrir- tæki greiða gjald fyrir nafn sitt í skránni. Allur ágóði af þessu starfi Kiwanisklúbbsins „Kaldbaks" rennur eins og áður til líknar- starfsemi. Ei' því skorað á sem flesta að vera með, þannig fá þeir ódýra, góða auglýsingu og styðja um leið gott málefni. Núverandi formaður klúbbs- ins er Baldvin Jóh. Bjarnason, kennari. KVEÐjA flutt við útför hans í Akureyrarkirkju 5. febrúar 1971 Nú hefur verið lagt á hulin mið og horfið er að baki vetrarsvið. Og handan skýja fagur röðull rís og rósir nýjar græðir vorsins dís. Þér hugir vina fylgja um Fögrubrú — þeir fylgja þér í heitri þökk og trú. Þín minning okkur yl og blessun ber, svo bjartan geisla döggvað auga sér. Þú lyftir merki vor- og vökumanns, að verkalaunum hlauztu- dýran krans. Þér vitni allir báru á eina lund, að aðal DRENGS þú bærir hvcrja stuná. Þú hörpu lífsins liöndum mildum straukst og heimi fögrum tíðum upp þú laukst með hugarhlýju, er æ var söm við sig og sumargróður breiddi í kring um þig. Við brúði þinni brosir fagurt ljós, hún ber við hjarta minninganna rós. Nú beð þinn signir mildust bróðurmund og mynd þín Ijúf fær yljað systurlund. Þér fylgir vinarkveðja klökk og heit, þá hvíla búin er í friðarreit. Nú eru rofin tímans rökkurtjöld og reifar árdagssól þinn hreina skjöld. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlasíöðum.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.