19. júní


19. júní - 01.03.1993, Blaðsíða 27

19. júní - 01.03.1993, Blaðsíða 27
Viðtal: Valgerður Jónsdóttir. 1. TBL. 1993 27 „Fleiri konur í eigin atvinnurekstri“ — segir Lilja Mósesdóttir hagfræðingur um þróunina á næstu áratugum lutastörf jukust gíf- urlega í heiminum eftir 1970. Fram að þeim tíma var meiri eftirspurn eftir fóllci en framboð og því var heimavinnandi konum boðið upp á starf hálfan daginn,“ segir Lilja Mósesdóttir hagfræðingur. Hún bætir við að eftir 1970 hafi fyrirtæki fjölgað hlutastörfum til að auka hagræðingu fyrir- tækja og reyna á þann hátt að ná kostnaði niður. Komið hafi í ljós að þeir sem eru í hálfu starfi skili betri vinnuafköstum en þeir sem eru í fullu starfi og því oft hagkvæmara að ráða tvo starfsmenn í stað eins til að ná hámarksafköstum. Síðar sáu fyr- irtækin að hægt væri að bjóða hluta vinnunnar út, þ.e. konur gætu unnið heima hjá sér og sparað fyrirtækinu þar með hús- næði og tækjakost sem fylgdi vinnunni. Þetta hafi verið mögulegt þar sem heimavinna kvenna hafi dregist saman, heimilistæki hafi auðveldað heimilisstörfin og þær átt færri börn en fyrr. Það var ekki fyrr en upp úr 1960 að konur fóru almennt að verða þátttakendur í atvinnulífinu og að sögn Lilju er þróunin alþjóðleg. „Við vitum ekki með vissu hvað olli þessu en líklegt er þó að ýmsar stjórn- valdsaðgerðir hafi stuðlað að aukinni vinnu kvenna, svo sem ákvæði í kjarasamningum og skattfrádráttur eins og tíðkaðist hér á landi þegar helmingur tekna eiginkonu var frádráttarbær til skatts.“ En hvernig heldur Lilja að þróunin verði á næstu árum? „ Það er erfitt að segja. Sumir hafa haldið því fram að konur séu sífellt í sókn á vinnumarkaðinum en það er ekkert sem bendir til þess. Þær gætu allt eins verið að fara í hring. Konur hafa ekki komist í stjórnunarstörf nema að takmörk- uðu leyti, konur eru t.d. ekki bankastjórar en algengt er að þær séu millistjórnendur, sinni með vinnuna með sér, þær eru í auknum mæli verktakar og sinna störfum innan heimilanna um leið, börnum og eða gamal- mennum. „í könnunum á heimilisstörfum hefur komið í ljós að konur vinna að jafnaði um 19 stundir við heimilisstörf en karlar 6 stundir og þessi tímafjöldi breytist ekkert þótt konurnar vinni meira utan heimilanna.“ Konurnar eru því á leið út af hinum hefðbundna vinnumark- aði. „En ég hef enga trú á því að konur hætti að vinna launa- vinnu. Þær hafa einfaldlega ekki efni á því, enda eru karlar ekki lengur fyrirvinnur. Hins vegar gæti komið upp sú staða að til verði tveir samliggjandi heimar á vinnumarkaðinum, annar karlaheimur en hinn kvenna- heimur. Konur hafa ekki sömu félagslegu tengsl og karlarnir, tengsl sem tryggja m.a. aðgang að fjármagni og ráðgjöf. Kon- urnar lifa þannig í „kvennaheimi11 en karl- arnir í „karlaheimi“. Nú eru uppi hug- myndir um lánatryggingasjóð kvenna hér á landi, nokkurs konar banka sem konur gætu skipt við. Og það er hægt að gera ýmislegt fleira til að styðja við bakið á kon- um, í Bandaríkjunum hefur verið komið upp tæknigörðum þar sem konur geta fengið stuðning við hugmyndir sínar án þess að leggja út í mikla fjárhagslega áhættu.“ Lilja segir að um 4000 nýir einstaklingar komi að jafnaði út á vinnumarkaðinn á hverju ári og um 1000 láti af störfum vegna aldurs. Því þurfi um 3000 ný störf árlega næstu áratugi til að koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi ungs fólks. Ársverkum úti á landi hafi fjölgað um 8,1 prósent á tímabilinu 1981 til 1988 en um 23,2 pró- sent á höfuðborgarsvæðinu. Til að treysta stöðu kvenna á vinnumarkaðinum og auð- velda þeim að framkvæma þær hugmyndir svo sem gjaldkerar og deildarstjórar. Víða er verið að endurskipuleggja þessar stöður, fækka millistjórnendum og hækka launin. Þá fara karlmenn að hafa áhuga á þessum stöðum og líklegt er að konum fækki þar af leiðandi. Menntakonur áttu auðvelt með að fá störf hjá hinu opinbera fyrir nokkrum árum en sá möguleiki er nú að lokast." Hún bætir við að um 1970, þegar verið var að fá konur út á vinnumarkaðinn, var reynt að minnka vinnuálag á þeim innan heimilanna, á markaðinn komu straufrí föt og fleira þess háttar sem átti að auðvelda heimilisstörfin. í dag er hins vegar meiri áhersla lögð á vandaðan fatnað sem þarf yf- irleitt að strauja. Meira er gert úr móður- hlutverkinu en áður, nú þurfa flest börn að fara í ungbarnasund, barnanudd og þau eru mun lengur á brjósti en áður sem kall- ar á meiri vinnu móðurinnar. Konurnar eru að fara aftur inn á heimilin en að þessu

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.