Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 28
28 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009 Og eins og sannur listamaður var hann ofurviðkvæmur en var um leið eiginlega dæmdur til að hrífa fólk með sér. 33 » ÚTILISTAVERKIN í Reykja- vík er nú hægt að skoða á net- inu, á vefnum borgarvefsja.is. Þegar þangað er komið er smellt í valglugga efst í vinstra horni og hakað við orðið Lista- verk. Þá koma merki á borg- arkortið, og hvert þeirra tákn- ar eitt listaverk. Ef smellt er á „i“ má nálgast upplýsingar um verkin, staðsetningu, höfunda þeirra og ártöl. Þegar kortið er skoðað kemur í ljós að langflest verkanna eru staðsett í miðborginni og gamla austurbænum. Þrjú verk eru í Breiðholtshverfum, tvö í Grafarvogi, tvö við strandstíginn við Korp- úlfsstaði og eitt verk í Árbæjarhverfi. Myndlist Þekkirðu verkin í þínu hverfi? Vatnsberinn er þekkt kennileiti. ÆVINTÝRAHEIMUR ófétanna heitir ný barna- plata með söngvum eftir Rúnu K. Tetzchner og Ósk Óskarsdóttur. Ósk er höf- undur tónlistarinnar, en Rúna semur söngtextana og málar myndir í plötupés- anum þar sem textarnir eru birtir. Á plötunni er sungið um ófétin, litlar verur sem búa í blómum og fljúga á fiðrildum. „Ófétin minna á blómálfa, en hafa krækiklær,“ segir á plötu- umslagi. Þau slást og rífast, þar til friðarkóng- urinn Indígó og töfradrottningin Marþöll stilla til friðar. Auk höfundanna koma ýmsir tónlistar- menn fram á plötunni auk barna- og unglingakóra Bústaðakirkju. Tónlist Indígó og Marþöll stilla til friðar HÖNNUNARMIÐ- STÖÐ Íslands, verslunin Kraum og Listasafn Reykja- víkur standa fyrir nýstárlegri hönn- unarsamkeppni sem felst í því að hanna nytjahlut með innblæstri eða tilvísun í listaverk eftir Erró. Af því tilefni boða aðstandendur keppninnar til fundar í Hafnarhús- inu miðvikudaginn 21. janúar kl. 12.00 þar sem keppnin verður kynnt og gögnum dreift. Verð- launahafi hlýtur verðlaun að verðmæti 500.000 kr. sem Kraum, Listasafn Reykjavíkur og Sam- tök iðnaðarins leggja til auk þess sem hluturinn verður seldur í Hafnarhúsinu og í verslunum Kraums. Hönnun Hönnunarkeppni innblásin af Erró Dauðadansinn eftir Erró. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is ÓPERA eftir færeyska tónskáldið Sunleif Rasm- ussen verður sýnd á Listahátíð í vor. Uppfærslan er samstarfsverkefni hátíðarinnar og Þjóðleikhússins þar sem óperan verður sýnd. Þjóðleikhúsið er í sam- starfi við Þjóðpallinn, þjóðleikhús Færeyinga um uppfærsluna. Textasmiður er Dánial Hoydal. Hrefna Haraldsdóttir, listrænn stjórnandi Listahá- tíðar, segir að íslenskir og færeyskir listamenn sam- einist í verkefninu. „Þetta er fyrsta færeyska óperan, og hefur aðeins einu sinni áður verið flutt. Það var í Norðurlandahúsinu í Færeyjum 2006. Þarna verða ís- lenskir söngvarar og dansarar og færeyskir leikarar. Leikstjóri uppfærslunnar er færeysk, Ría Tórgarð, Lára Stefánsdóttir semur dansana, Elísa Heinesen afabarn skáldsins er leikmyndahönnuður, hljóðfæra- leikarar verða færeyskir og íslenskir og Bernharður Wilkinson stjórnar,“ segir Hrefna. Efni óperunnar sækir Sunleif í sögu eftir landa sinn, William Heinesen. Sagan heitir á frummálinu Í Óðamansgarði, en í íslenskri þýðingu Þorgeirs Þor- geirsonar heitir hún Fjandinn hleypur í Gamalíel. Óperan verður flutt á færeysku en texti byggður á þýðingu Þorgeirs verður á textaskjá. „Sagan er um ungt par, Marselíus og Stellu og við sjáum hvernig þau horfast í augu við leyndardóma lífsins og ástina á sama tíma og þau feta sig eftir drungalegum og heillandi garði brjálæðingsins. Það er ánægjulegt að fá tækifæri til þess að setja upp fyrstu færeysku óperuna á Íslandi og gaman að sjá hvernig listgreinarnar vinna saman í verkinu. Þetta er spennandi og viðamikið verkefni á dagskrá hátíðarinnar.“ Þjóðleikhúsið og Þjóðpallurinn höfðu um tíma lagt drög að samstarfi, þegar hugmyndin að uppfærslu óperunnar kviknaði í vor. Hugmyndin er því ekki sprottin úr umræðum um vináttu þjóðanna í kjölfar kreppunnar. „En þetta smellpassar inn í samtímann og sýnir gagnkvæman áhuga þjóðanna á menning- arlegu samstarfi.“ Fjandinn hleypur í Listahátíð  Fyrsta færeyska óperan, Í Óðamansgarði eftir Sunleif Rasmussen, verður flutt á Listahátíð í vor  Tjóðpallurin og Þjóðleikhúsið hafa samstarf um sýninguna Stella og Marselius Söngvarar í sýningunni verða Eyjólfur Eyjólfsson, tenór, Þóra Einarsdóttir, sópr- an, og Bjarni Thor Kristinsson, bassi. Hér sjást dansarar úr færeysku frumuppfærslunni árið 2006. Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is LISTAMAÐURINN Pétur Már Gunnarsson opnar á fimmtudaginn fyrstu sýningu ársins í D-sal Hafnarhússins, en sá hluti safnsins er helgaður yngri kynslóð listamanna. Um leið opnar Ásmundur Ásmundsson nýja sýningu sína í A-salnum. Sýning Péturs heitir Mæri og er í senn hljóðskúlptúr og áþreifanlegur skúlptúr. Sam- kvæmt lýsingu listamannsins gæti verk hans endað sem þó nokkurt sjónarspil. „Ég er að gera hljóðskúlptúr sem er í raun plötuspilari í yfirstærð,“ segir Pétur sem var á fullu við smíðar þegar blaðamaður hafði sam- band. „Þetta er kringlóttur spegill sem liggur á snúningsfæti á gólfinu. Á honum er ein rispa og svo les plötuspilaranál yfirborðið. Maður heyrir dempað hljóð, sem ég svo rétt magna upp, og svo rispuna.“ Spegillinn er um tveir metrar í þvermál og hafði Pétur ekki enn ákveðið hvort hann ætlaði að nýta sér alla eiginleika hans eður ei. „Hann endurvarpar náttúrlega öllu sem lendir á hon- um. Áhorfendum, loftinu og veggjunum. Það er þessi pæling um mæri. Mér finnst þetta mjög einfalt og skýrt táknmál fyrir skil, eða mörk. Takmarkað svæði. Í þeim tilraunum sem ég hef gert með speglum hef ég komist að því að það er alltaf einhver smábrenglun í þeim. Þó svo að þeir séu alveg sléttir er eins og það sé pínu bjögun í spegluninni. Hann ruglar aðeins með umhverfið.“ Ritstjóri Rafskinnu Pétur útskrifaðist úr Listaháskólanum í Vín í Austurríki fyrir rúmum tveimur árum. Hann hefur þó ekki verið mjög áberandi í listalífinu eftir að hann kom heim. Aðallega vegna þess að hann hefur verið að sinna störfum sínum sem ritstjóri tímaritsins Rafskinnu sem gefið er út í formi mynddisks og fjallar um íslenskt menningarlíf. Það vekur einnig athygli að á heimasíðu Listasafnsins er kynningarmyndin af Pétri tvöföld. Eða svo virðist í fyrstu vera. Í raun er þarna á ferð mynd af Pétri við hlið manns er dó fyrir um hundrað árum. „Þessi maður heit- ir Þórður Diðriksson og ég er tvífari hans. Hann fluttist vestur í kringum 1850 og tók upp mormónatrú,“ útskýrir Pétur en vinkona hans benti honum á svipinn eftir að hafa rek- ist á mynd af Þórði í fræðibók. Pétur segir það við hæfi að nota þessa mynd af tvífara sín- um við hugtakið mæri. „Við höfum þróast í svona svipaðar áttir útlitslega. Við erum svona sinn á hvorum stað á tímalínu. Svo er einhver ás sem liggur einhvers staðar á milli í tíma.“ Hljóð af spegli Pétur Már Gunnarsson undirbýr sýninguna Mæri sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur á fimmtudag Morgunblaðið/Ómar Pétur Már Gunnarsson Stendur í ströngu við að klára verk sitt Mæri fyrir fimmtudag. Um er að ræða hljóðskúlptúr í þeim skilningi að hann gefur frá sér sitt eigið hljóð. SVENSK Film- industri, stærsti kvikmyndafram- leiðandi Svíþjóð- ar, hefur tapað rétti sínum á kvik- myndum Ingmars Bergmans í Bandaríkjunum til Isis-kvik- myndahússins í Colorado. Isis eignast þar með sýn- ingarrétt á öllum myndum sænska meistarans í Bandaríkjunum, en dómnum samkvæmt kemur yfirtaka réttarins á móti skuld Svensk Film- industri við Isis og vanefnda á samn- ingi. Málið má rekja aftur til ársins 1997 þegar SF og Isis gerðu með sér sam- komuleg um umfangsmiklar fram- kvæmdir við að breyta Isis í stórt kvikmyndahús með mörgum sölum. SF ætlaði að leigja kvikmyndahúsið, en þegar samstarfsaðili sænsku kvik- myndaframleiðandanna við verk- efnið, Resort Theaters of America, varð gjaldþrota taldi SF grundvöll samningsins við Isis brostinn. Isis fór í mál við SF og vann 8,9 milljónir dala í bætur, sem SF neitaði að greiða. Í kjölfarið fékk Isis réttinn að mynd- unum skráðan sem sinn, hjá Banda- rísku einkaréttarstofnuninni. Svíar tapa gullkálfi Bíóhús í Colorado fær amerískan rétt að myndum Bergmans Ingmar Bergman MÁLVERK eftir Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússa, seldist fyr- ir andvirði 140 milljóna króna á uppboði í Pétursborg um helgina. Uppboðið var haldið til styrktar krabbameinssjúkum börnum og það var galleristinn Natalía Kurni- kova sem keypti. Verkið sýnir frostrósóttan kofaglugga, en að öðru leyti fer fáum sögum af færni listmálarans. Pútín málar Kát Kurnikova við Pútín-verkið Sunleif Rasmussen er kunnasta tónskáld Fær- eyinga í dag. Árið 2002 hlaut hann Tónlist- arverðlaun Norðurlandaráðs fyrir fyrstu sin- fóníu sína, Oceanic Days. Sunleif Rasmussen er íslenskum tónleikagestum einnig vel kunn- ur og verk hans hafa verið flutt hér, meðal annars af Caput. Sunleif sækir neistann í tónlist sína víða. Sjálfur er hann góður djasspíanisti, lærði tón- smíðar í Noregi og Danmörku, og hefur líka verið viðriðinn IRCAM raftónlistarmiðstöðina í París. Það verður þó ekki hægt að segja ann- að en að tónlist hans sé fyrst og fremst þjóðleg og færeyskur undirtónn er víða í verkum hans. Færeysk náttúra, kraftur, ljóðræna og dulúð hefur haft gríðarleg áhrif á tónsmíðar hans, en einnig verk stórskálds Færeyinga, Williams Heinesen. Eftirminnilegir eru tón- leikar Caput 2002, með verkum eftir Rasm- ussen við ljóð eftir Heinesen. Áhrif náttúru og skáldskapar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.