Organistablaðið - 01.11.1970, Blaðsíða 8
TÓNLEIKAFERÐ
TIL
SOVÉTRÍKJANNA
Blaðið liefur ibeðiS mig að
segja lítillega frá tónleikaferða-
lagi J)ví, sem ég fór í til Sovét-
ríkjanna í febrúar síðastliðnum.
Geri ég það með gleði, ])ótt ég
renni nokkuð blint í sjóinn með
það, livað af ferðasögunni lesend-
ur blaðsins helzt vildu fræðast
um.
Þriðja fébrúar flaug ég upp frá Keflavíkurflugvelli í inildri ís-
Ienzkri vetrarveðráttu. Kaupmannahöfn bauð aftur á móti upp á það
vetrarveður, sem okkur á Islandi finnst einna leiðast, slap og hrá-
slaga. Fjórða febrúar lenti ég á einum af mörguin flugvöllum, sem
tilheyra Moskva og þá iþurfli ég ekki lengur að kvarta yfir hráslaga.
Frostið var 12 stig og snjór mikill. Sjöunda febrúar skyldi fyrsti kon-
sertinn haldinn í Tallin, höfuðhorg Eistlands. Þangað kom ég, eftir
12 tíina lestarferðalag, daginn fyrir konsertinn. Heldur fannst mér
undirbúningstíminn, sem ég 'hafði á orgelið, stuttur og ekki bætti úr
skák, að tónleikasalurinn var að mestu upptekinn fram til kl. 10
um kvöldið, en þá gat ég loks farið að „registera“ efnisskrána. Dóm-
kirkja ihafði húsið verið, sem tónleikarnir fóru fram í, en var nú orðiö
tónleikahús eingöngu. Orgelið var Hieger KIoss, 80 radda, á fjórum
nótnaborðum, elektriskt. Fárra ára gamalt var orgel þetta, vel „dis-
ponerað“. Nokkuð dró j)ó úr ánægjunni við að spila á það, að frjálsu
kombinationirnar voru ekki í fullkomnu lagi. Uppselt var á tónleik-
ana tveim vikum áður, og sýnir það áhuga fólksins á orgeltónlist, sem
ég furðaði mig alltaf á, hversu almennur var. Nokkuð má, að öllum
líkindum þakka, eða kenna það orgelleysi kirknanna, en fólkið mett-
ast þar ekki af orgeltónleikum.
Frá Tallin flaug ég suður í Georgiu og spilaði tvö kvöld í röð í
Tibilissi höfuðborg Georgiu. 27-radda Sucke orgel, mekaniskt var
8 ORGANISTABLAÐIÐ