Organistablaðið - 01.03.1995, Blaðsíða 17
Litið til liðinna daga
(nokkur minningarorð um Sigfús Einarsson tónskáld)
Undirritaður er einn af þeim mörgu skólamönn-
um sem hafa á starfsferli sínum unnið samfellt
með sóknarnefndum og kirkjukórum í sóknum,
þar sem þeir hafa starfað.
Eftir að ég varð að flytja til Reykjavíkur haustið
1960 og kenndi við Kennaraháskóla Islands
síðustu 17 starfsár mín, var ég öll þau ár og
nokkru lengur félagi í krikjukórum Langholts-
og Breiðholtssókna.
A síðari hluta þess árabils var ég eitt sinn kosinn
formaður Kirkjukórasambands Reykjavíkur-
prófastsdæmis og var það ný reynsla sem mér
þykir vænt um og met mikils.
Einn af þeim ágætu mönnum sem ég kynntist
og starfaði með á þessum árum var, okkar mikil-
hæfi og þjóðkunni söngmálastjóri, Haukur
Guðlaugsson.
Sigfús Einarsson £ptjr ag Ljörtímabil mitt rann út höfurn við
Haukur haft samband öðru hverju, enda alltaf jafn ánægjulegt að hitta hann.
Við hittumst síðast á einkar geðþekkum vinnustað hans og var það mér ógleymanleg
heimsókn. Eitt af því sem hann minntist þá á við mig var það hver hafði verið söng-
kennari í Kennaraskólanum þá vetur sem ég var þar við nám. Þegar ég tjáði honum að
það hefði verið sjálfur tónsnillingurinn og tónskáldið Sigfús Einarsson mæltist hann til
að ég sendi sér ofurlítið greinarkorn þar sem ég rifjaði upp kynni mín af honum, en þó
alveg sérstaklega sem söngkennara og söngstjóra.
Þótt margt væri að sjálfsögðu farið að mást út af sviði minninganna eftir næstum 60 ár,
kvaðst ég fús til að verða við þeim tilmælum söngmálastjóra að rifja upp það sem ég
örugglega myndi um þetta. Raunar vildi líka svo til að viss atriði kynna minna við
þennan öðlingsmann hyrfu mér aldrei úr huga, því að hann hafði haft djúp og mikilsverð
áhrif á starfsferil minn. Mun ég að sjálfsögðu drepa á það síðar.
Sigfús Einarsson var söngkennari skólans báða námsvetur mína 1934-1936. Hann var þá
orðinn aldraður maður, tæplega sextugur, fæddur 1877, og bar augljós merki þess. En
hann var einstaklega geðþekkur og virðulegur maður og traustvekjandi. Ég fullyrði að
1 7 ORGANISTABLAÐIÐ