Organistablaðið - 01.03.1995, Blaðsíða 22
Dr. Orthulf Prunner
Lokaritgerð Dr. Orthulf Prunner vegna náms við Tónlistarháskólann í Vínarborg.
Ritgerðin heitir „Die Orgellandschaft Islands von den Anfángen bis zur Gegenwart“,
„Orgellandslag íslands frá byrjun til nútíðar". Með hugmyndinni „Orgellandslag" er átt
við að orgel sem eru staðsett á áveðnum stað, mynda menningarlegt landslag, eins og
landslag er myndað úr fjöllum, hæðum o.s.frv. er orgellandslag myndað úr orgelum.
Þetta „landslag" er breytanlegt og gefur innsæi í ýmsa þætti menningarlífsins á við-
komandi tíma. Þess vegna er nauðsynlegt að deila tímanum niður í tímabil sem
afmörkuð eru af mikilvægum eða áberandi hljóðfærum (sem heimildir segja til um eða
sem eru til í raun og veru).
Þannic ER EÐLILEGT AÐ AFMARKA TÍMABIL í EFTIR-
FARANDI KAFLASKIPTINCU I
1 . KAF L I
1329 (elsta heimild um orgel á íslandi, þ.e.a.s. orgel Arngríms Brandssonar) til 1926
(elsta orgel á íslandi sem er í notkun. Orgel Fríkirkjunnar í Reykjavík).
2 . K A F L I
1926 til 1950 (orgelið í Landakotskirkju sem er enn þann dag í dag meðal merkustu
hljóðfæra Iandsins).
3 . K A F L I
1950 til 1961 (orgel Akureyrarkirkju).
4 . K A F L I
1961 til 1992 (orgel Hallgrímskirkju í Reykjavík).
22 ORGANISTABLAÐIÐ