Ísfirðingur


Ísfirðingur - 12.01.1980, Blaðsíða 1

Ísfirðingur - 12.01.1980, Blaðsíða 1
BMÐ TRAMSOKNA-RMANNA / VESTFJARÐAKJÖRDÆMI 30. árg. Isafjörður 12. janúar 1980 1. tbl. Halldór Kristjánsson: Við áramótin 1979-1980 Enn eru liðin áramót. Sumir segja að þar með sé fylltur einn tugur á öldinni. Auðvitað fyllir hvert einasta ár tug ef talið er frá réttum tíma. Margir verða tíu ára á hverju ári. En að telja tuga- skipti nú eru áhrif frá þeim þjóðum sem kenna tíma við þann tölustaf sem greinir tugina. Auðséð ætti að vera að tugur er ekki fylltur fyrr en komnir eru 10, - árið 80 fyllir tuginn enda teljum við síðan átta tugir og það sem bætist við af 9. tug. Enn eru tveir tugir eftir af öldinni þegar þessu nýbyrj- aða ári lýkur. ★ ★ ★ Dagblöðin hafa spurt menn hvað þeim sé minnis- stæðast frá liðnu ári. Slíkt er alltaf einstaklingsbundið. Flestum munu verða minnis- stæðust svipleg atvik og slys- farir þegar nærri þeim er höggvið, enda þótt ekki séu Kristján Eldjárn í áramótaávarpi sínu nú um áramótin tilkynnti for- seti íslands, Kristján Eld- járn, þjóðinni, að hann hefði ákveðið að gefa ekki kost á sér til forsetakjörs fleiri kjör- tímabil, en þriðja kjörtíma- bili hans lýkur nú í vor. Kristján Eldjárn og kona hans Halldóra Ingólfsdóttir hafa áunnið sér álit og virð- ingu alþjóðar fyrir hin mikil- vægu störf sín. Halldór Kristjánsson áhrifastundir í þjóðarsögu. Þetta minnir þó á það að við eigum okkur hvert um sig umhverfi sem skiptir okkur óendanlega miklu enda þótt lítið sé eftir því tekið. Ör- lagastundirnar eru fyrst og fremst einstaklingsbundnar. Því er rökrétt og drengilegt að meta allar hræringar þjóðlífsins eftir áhrifum þeirra fyrir einstaklingana. ★ ★ ★ Sumarið 1979 er kaldasta sumar sem komið hefur á íslandi síðan farið var að fylgjast með hitastigum af nákvæmni. Sumarið 1882 hefur e.t.v. verið enn kaldara en sennilega er það eina sumar 19. aldar sem hugsan- legt er að hafi verið kaldara en þetta síðasta. Vorkuld- arnir ollu bændum stórfeng- legum kostnaðarauka, eink- um um landið norðanvert. Á landinu norðaustanverðu ollu vetrarveður á sumar- mánuðum vanhöldum og fjársköðum. Það hefur sýnt sig í þessari óáran að menn eru misjafn- lega búnir til að mæta henni. Enginn réði við það að gróður kom seint og lengi þurfti að hafa búfé á gjöf. Enginn réði við það að tún spruttu seint og urðu sums staðar ekki ljáberandi fyrr en sumri var mjög tekið að halla. Þá var óþurrkatíð víða um landið norðanvert. Þá sýndi það sig að Stranda- menn höfðu aðlagað búskap- arhætti sína slíku árferði bet- ur en aðrir. Þeir björguðu yfirleitt óspilltu í hlöður sín- ar því grasi sem loksins spratt úr túnum þeirra. Þeir kunnu öðrum betur að mæta íslenskri veðráttu eins og hún verður verst og leiðin- legust á sumardögum. Sumarið 1979 hefur gefið íslenskum bændum enn eina lexíu til áréttingar því h\'e nauðsynlegt er að geta hald- ið sínum hlut við heyskapinn þó að menn ráði ekki vindi og sól. ★ ★ ★ Að sjálfsögðu verður mönnum tíðrætt um stjórn- málahorfur og stjórnarfar. Framsóknarmenn töldu þeg- ar þing var rofið í haust að líkur væru á stjórnarkreppu eftir kosningar. Sú er líka raunin og sér enginn hve úr rætist. Þó mun vera óhætt að segja að kosningaúrslitin sýni að kjósendur fyrrver- andi stjórnarflokka ætlist til þess að þeir stjórni landinu. Við tilraunir Steingríms Hermannssonar að endur- vekja samstarf þeirra kom í ljós tvennt sem orðið getur næsta örlagaríkt og skylt er að hugleiða. Annað var það að Alþýðu- ílokkurinn lagði sig fram um að skaprauna Alþýðubanda- lagsmönnum og rýra þeirra hlut meðan á umræðunum um stjórnarsamstarf stóð. Hitt er það að Alþýðu- bandalagið lýsti sig ósam- mála tillögum hinna flokk- anna um efnahagsmál en hafði þar ekki sjálft annað til málanna að leggja en að „gera skyldi áætlun“ um hjöðnun verðbólgunnar á komandi árum. Hvernig sú áætlun ætti að vera er hulinn leyndardóm- ur eða einkamál Alþýðu- bandalagsins. Eins og nú standa sakir Þakkarorð Niðurstöður alþingiskosninganna í desember s.l. urðu Framsóknarmönnum hag- stæðar. Sigurinn vannst með samstöðu hinna mörgu, sem aðhyllast stefnu og markmið Framsóknarflokksins. Þeir vörðu flokkinn og sóttu fram um land allt. Við viljum hér með færa þakkir fyrir þær samveru- og baráttustundir sem við áttum með ykkur að undirbúningi kosninganna. Þær gleymast ekki. Kosningasigrum fylgir ábyrgð. Verkefnin bíða. Haldist samstaða kosning- anna tekst að koma mörgum málum áleiðis. ,,Þetta land á ærinn auð, ef menn kunna að nota ’ann.“ Megi vestfirskar byggðir blómgast til hag- sældar landi og þjóð. Við óskum öllum Vest- firðingum gæfu og gengis, árs og friðar. Steingrímur Hermannsson Ólafur Þ. Þórðarson virðast þessir A - Flokkar þurfa rækilega áminnirígu ef þeir eiga að fást til samstarfs um að stjórna. ★ ★ ★ Þjóðnýting er sjaldan nefnd í stjórnmálaumræðum þessara ára. Fyrii' 50 árum var hún stefnumál vinstri manna. Þá vildu þeir gera atvinnutækin almennings- eign með einum eða öðrum hætti. Þá var stofnað Sam- vinnufélag ísfirðinga og lagður grundvöllur að bæjar- útgerð Hafnarfjarðar. Segja má líka að samvinnuhreyf- ingin hafi þjóðnýtt veruleg- an hluta verslunarinnar. Svo kom bæjarútgerð Reykjavík- ur og sjálfstæðismenn létu togara hennar bera nöfn borgarstjóra sinna, manna sem trúðu því að það væri ólán að hafa atvinnurekstur í höndum ríkis eða bæjarfé- laga- Þjóðnýting var stefna vinstri manna. Það var deilt um hana. Sumir hafa enn ótrú á henni. Þó telja flestir nú að það sé ágætt að hafa til samanburðar fyrirtæki sem treysta megi að sýni af- komu sína eins og hún er. Hins vegar hefur áhugi vinstri manna fyrir þjóðnýt- ingu d.ofnað. Félög þeirra gera yfirleitt ekki kröfur til þess að fá aðstöðu til að rcka atvinnu og bera ábyrgð á rekstri og njóta ávaxtanna. Það er kannski haft í hótun- um í kaupdeilum en þeim hótunum er ekki fylgt eftir af neinni alvöru. Um þetta verður ekki fjöl- yrt hér. Aðeins er bent á þetta í trausti þess að menn leiði hugann að þessum mál- um sjálfum sér til glöggvun- ar. ★ ★ ★ Þeir sem búa við sunnan- verðan Faxaflóa segjast stundum búa við skertan kosningarétt. Alþingi í fyrra gat hæg- lega breytt reglum um út- hlutun uppbótarþingsæta þannig að þau lentu öll í fjölmennustu kjördæmun- um. Prósentureglan er ekki bundin í stjórnarskrá. Þessu mátti breyta fyrir kosning- arnar1978. Hefði sú breyting verið gerð hefði Reykjavík nú 20 þingmenn og Reykjaneskjör- dæmi 8. En þá væru þeir Eyjólfur Konráð og Karvel ekki á þingi. Og hvernig færi þá um Sighvat og Eið í næstu kosningum? Á hitt má svo enn mirína að ef menn meta atkvæðis- réttinn eða vægi atkvæðis síns einhvers þá er þeim frjálst að vera þar sem það verður mest. Það væri margra hluta vegna heppi- legt og þjóðarbúskapnum hollt að nokkur þúsund Framhald á 2. slðu Gleðilegt nýtt ár!

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.