Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 23

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 23
Fæðingarsaga frá Malaví Ég var stödd í fallegu litlu þorpi við Malavívatn, í sunnanverðri Afríku. Ég var búin að dvelja í þorpinu í fimm daga, sjá tvær fæðingar og tala við fimm yfírsetukonur. Klukkan var tíu á niðdimmu föstudagskvöldi þegar túlk- urinn minn hún Agnes bankaði hjá mér og sagði „það er fæðing hjá Fanesu“. Hjartað tók kipp, mér fannst ég alveg ótrúlega heppin að fá aðra fæðingu hjá þessari yfirsetukonu sem mér fannst svo æðisleg. Ég hafði meira að segja hugs- að eftir síðustu fæðingu með henni að ég væri alveg til að fæða hjá henni. Ég undirbjó mig í hvelli, fór í síðar buxur og klæddi mig í flíspeysu auk þess sem að ég spreyjaði mig hátt og lágt í tilraun til að verjast moskítóflugunum. Það var pabbinn sem hafði hjólað bæinn á enda til þess að sækja okkur. Við kipptum honum og hjólinu með okkur til baka til Fanesu en þar lét hann sig hverfa, pabbar eiga ekkert erindi í fæðingar á þessum slóðum. Við vorum komnar til Fanesu eftir 20 mínútur. Þetta voru kunnuglegar slóðir, þama var ég búin að sitja og spjalla og fylgjast með Fanesu að störfum síð- ustu dagana. Heimili Fanesu stóð á afgirtri lóð. Þar var einnig lítið eld- unarskýli, tveir kamrar, sturtuaðstaða, hola fyrir fylgjumar og fæðingarskýli. Fæðingarskýlinu var skipt niður í tvö herbergi, innra herbergið ætlað fæðing- um og fremra fyrir konumar að dvelja í fyrir og eftir fæðingu. Þessi herbergi vom ekki stærri en svo að ein til tvær manneskjur gátu legið á gólfinu og svo gátu svona tvær setið í enda herberg- isins. Þarna voru þrír pínulitlir óvarðir gluggar. Það voru engin húsgögn inni í skýlinu, bara bastmottur sem að Fanesa átti. Konurnar komu sjálfar með plast- dúk til að setja á mottuna, og klæði og klúta til þess að liggja á, til þess að þrífa blóð og aðra vökva og vessa sem fylgja fæðingum, til þess að búa til dömubindi og til þess að þurrka baminu og vefja utan um það eftir fæðinguna. Andrúmsloftið var mjög ljúft og gott, þama var hin 19 ára gamla Lamida, sem átti von á sínu öðm bami. Hún átti Eva Laufey Stefánsdóttir; Ijósmóðir; Hreiðri, LSH fyrir 4 ára stúlku sem hafði fæðst fyrir tímann í bænum Monkey Bay sem er skammt frá. Með henni voru frænka hennar, eldri systir og amma sem allar sátu fyrir utan fæðingarskýlið og spjöll- uðu. Það var tilhlökkun í loftinu. Fanesa hafði beðið með að skoða Lamidu þar til ég var komin. Við fómm inn í skýlið og Fanesa skoðaði hana frá toppi til táar og hlustaði á fósturhjar- sláttinn með hlustpípu. Hún þvoði sér um hendur með sápu, fór í hanska og gerði snögga innri skoðun og sýndi mér með fingrunum hversu mikil útvíkk- unin var, hún var svona 4-5 cm. Fanesa fræddi hana um það að bamið yrði lagt í fang hennar um leið og það fæddist og að hún ætti fljótlega að setja það á brjóst. Þetta voru ljúfar og notalegar aðstæð- ur, afskaplega falleg nótt. Ég hlustaði á hitabeltishljóðin sem ómuðu um allt, á krybburnar, froskana og fleiri hljóð sem ég get ekki skilgreint. Svartur kvöldhim- ininn lýstist annað slagið upp af elding- um, það eina sem skyggði á rómantíkina var tónlist frá diskóteki í nágrenninu, en hún hætti upp úr miðnætti. Við sátum þrjár inni hjá Lamidu og spjölluðum við birtu steinolíulampans. Fjölskyldan sat fyrir utan, svona í eins metra fjarlægð, Lamida var einkar lífleg og talaði smá ensku sem að hjálpaði mér. Ég var búin að ákveða inn í mér að þetta yrði hin fullkomna fæðing hjá stórkostlegri yfirsetukonu. Ég var dug- leg að punkta hjá mér það sem gerðist af því að þetta átti að verða upphafssagan í lokaverkefninu mínu. Ég var sannfærð um að fæðingin yrði afstaðin fljótlega upp úr miðnætti. Mér fannst einhvern veginn að fæðingar í Afríku ættu að ganga vel fyrir sig. Þetta var heilbrigð fjölbyrja, sem var studd af fjölskyldu og yndislegri yfirsetukonu - þetta hlaut bara að fara vel, mikið var ég bjartsýn!! Einu merki þess að Lamida væri í fæðingu, voru stöku andvörp (konum á þessum slóðum er kennt að láta á engu bera í fæðingum, það er ekki til siðs að vera með læti). Um klukkan hálf eitt fór hún á klósettið og þá fannst mér á henni að þetta væri nú að versna heil- mikið og hugsaði „þetta fer að koma“. Hún kom til baka og settist aftur hjá okkur, ég kom við kúluna á henni og fann fyrir bylgjuhreyfingum og hugs- aði „gott“. Nú leið annar klukkutími og Lamida fór aftur á klósettið og labbaði svo þaðan inn í innra herbergið, en Fanesa var búin að segja henni að hún ætti að fara þangað þegar hún færi að fæða. Túlkurinn minn var sofnaður og ég ákvað þvf bara að fylgjast með og beið eftir því að Fanesa færi að gera eitthvað, þær töluðu aðeins saman en ekkert var gert. Moskítóflugurnar voru nú farnar að gera sér dælt við mig og nú var það suð þeirra sem ómaði í eyrum mér, nóttin var orðin löng. Um klukkan tvö réttu ættingjarnir inn graut (konum í fæðingu hérna er gef- inn grautur á ca 4 klukkustunda fresti en mega almennt ekki fá vatn). Fanesa spurði Lamidu hvort að hún frnndi fyrir hreyfingum bamsins, sem hún gerði. Rétt fyrir fjögur opnaði Fanesa fæð- ingartólin sín og gerði innri skoðun, hún sagði: „ABUELA - barnið fer að koma en við skulum bíða aðeins, kollurinn stendur ennþá svo hátt“. Svo fór hún að undirbúa sig, opnaði rakvélablað (sern að Lamida hafði komið með til þess að skera á naflastrenginn) og skar niður þrjú bómullarbönd fyrir naflastrenginn, tók til bómul og bakka fyrir fylgjuna og Ljósmæðrablaðið nóvember 2006 23

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.