Akranes - 01.10.1953, Blaðsíða 23

Akranes - 01.10.1953, Blaðsíða 23
svo nýtt hús út við núverandi Heiðar- braut, 6,4X7 m, en auk þess inngangs- skúr við norðurgafl. Þetta er timburhús, byggt ofan á steinsteyptan kjallara. Gamla húsið er bakhús, en bæði standa þau enn i dag og eru notuð til íbúðar. Klöpp er eitt þeirra býla, sem byggð voru á kirkjulandinu og fylgdi allstórt land sem að mestu leyti var notað til kart- öfluræktar. Lengi höfðu þau Klapparhjón einnig nokkrar kindur og hirtu allt sitt vel, hygg ég því, að þau hafi búið snyrti- lega í sveit og farið vel með skepnur sín- ar. Hér stundaði Jón sjó- og landvinnu jöfnum höndum, en siðari árin þó ein- göngu landvinnu. Sumir munu ef til vill hafa talið, að Jón á Klöpp hafi verið fremur mislvndur og lundstirður. Ef til vill hefur eitthvað verið til í þessu, en ekki svo, að orð væri á gerandi, það þykist ég vel geta dæmt um, því lengi stundaði hann vinnu hjá okkur félögum. Bæði voru þau hjón hinar prúðustu manneskjur, trygg og vinföst. Eina dóttur áttu þau bama, Herdisi, er áreiðanlega var augasteinn þeirra, enda afbragðsstúlka á alla lund og foreldrum slinum mjög góð dóttir. Herdís giftist aldr- ei; hún var hér mörg ár hjúkmnarkona á vegum Hjúkrunarfélags Akurnesinga. Hún var einnig um mörg ár verzlunar- stúlka við kjötverzlanir i bænum og leysti þessi störf af hendi með framúrskarandi samvizkusemi og dugnaði. Herdis var stofnandi Ungmennafélags Akraness og góður og starfssamur félagi þar, t. d. við skurðgröft og jarðræktarvinnu félagsins, sem og öll hugðarefni þess. Herdís var lengi við saltfiskverkun og sýndi þar sem annars staðar, að hún var vikingur til vinnu, framúrskarandi trú og dygg. Jón á Klöpp andaðist 19. nóvember 1943. Herdís 1. ágúst 1944, en Valgerður, 28. júlí 1949. Valgerður arfleiddi systur- dóttur Jóns, Rannveigu Árnadóttur að eft- irlátnum eigum sinum. Á hún því bæði húsin nú, en áður leyfðu þau Rannveigu og manni hennar, Björgvin Stefánssyni að byggja á lóðinni, hið næsta við Klöpp. Þar í milli var einlæg vinátta. Þegar þau mæðgin flytja í hið nýja hús, er það í manntalinu kallað Stóra-Klöpp, en hið gamla Litla-Klöpp. Síðan hefur þetta fólk búið i gamla húsinu: Agnar Bragi Guðmundsson, f. 11. okt. 1875, að Refsteinsstöðum í Víðidal í Húna- vatnssýslu. For: Guðmundur Frimann Gunnarsson, ættaður af Vatnsnesinu, hálf- hróðir Ölafar skáldkonu á Hlöðum, og kona hans Ingibjörg Árnadóttir 'frá Kirkju- hvammi á Vatnsnesi. Systkini Braga voru 7» sem til aldurs komust. Þau fóru öll til Ameríku og eru dáin. Bragi óslt upp hjá foreldrum sínum til 11 ára aldurs. Agnar Bragi kvæntist konu þeirri, er Guðrún hét Sigurðardóttir Hjálmssonar af Hafnaætt. Þau hjón byrjuðu búskap á Hnjúkum á Ásum, og voru þar li tvö ár, þá fóru þau að Smyrlabergi í sömu sveit og voru þar í þrjú ár. Þá fóru þau að Fremsta-Gili í Langadal og bjugg.u þar í 14 ár. Þar byggðu þau steinhús og gerðu á jörðmni miklar umbætur. Reistu sem sagt allt úr rúst. Þaðan var haldið að Blöndubakka, rétt hjá Blönduósi, þar voru þau i tíu ár, en síðan á Blönduósi i tvö ár. Þaðan fluttu þau svo hingað á Akranes 1935, fyrst að Tjörn, en svo að Klöpp og voru þar í tvö ár, en fluttu þaðan til Reykjaviíkur, þar sem þau áttu heima síð- an. Konan er dáin, fyrir nokkrum árum, og Bragi andaðist 2. desember síðastiiðinn. Hann taldi sig hafa verið mikinn láns- mann i lífinu, haft mikið barnalán og átt óvenjulegan lifsförunaut.“ Ef ég hefði verið jafnoki hennar," segir Bragi, „hefði þetta þó allt verið enn betra, og við gert enn meira gagn.“ Þessi börn þeirra hjóna eru á lífi: 1. Guðmundur Frímann, búsettur á Blönduósi, kvæntur Sigurunni Þor- finnsdóttur, og eiga 3 börn. 2. Sigurbjörg Ásta, gift Einari Bach- mann, rafvirkja. Þau áttu 2 höm, skildu samvistir. Þau fóru vestur um haf og þar er hún enn, en Einar er korninn heim aftur. 3. Ingibjörg Kristín, gift Aðalsteini And- réssyni. Þau eru búsett í Reykjavík og eiga 2 börn. 4 Sigtryggur Levii, kvæntur Þórunni Ste- fánsdóttur. Þau eiga tvö börn, en hann átti og eitt áður en hann kvæntist. 5. Hannes Hafstein, kvæntist Gróu Dag- mar. Þau búsett í Reykjavák og eiga 3 börn. 6. Guðmann Svafar, kvæntur Þórunni Þórðardóttur. Þau eru búsett á Blöndu- ósi og eiga 2 dætur. 7. Aðalsteinn Bragi, stýrimaður, kvæntur Steinunni Jónsdóttvu:. Þau búsett í Reykjavík og eiga 6 börn. Eitt bam átti hann og áður en hann kvæntist. 8. Edvald Ari, bílstjóri í Reykjavik, kvæntur Rögnu Magnúsdóttur. Þau eiga 3 drengi. Skömmu eftir síðustu aldamót var mik- il harka í póliííkinni ekki síður en nú, og höfðu sumir þá mikinn átrúnað á foringj- um flokkanna og fylgdu þeim á hverju 131 AKRANES

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.