Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 34

Freyr - 01.04.2005, Blaðsíða 34
SAUÐFJÁRRÆKT Afkvæmarannsóknir á Hesti 2004 IEftir Sigurð Þór Guðmundsson, Emmu Eyþórsdóttur, Sigvalda Jónsson og Eyjólf Kristin Örnólfsson, Landbúnaðarháskóla íslands. Árið 2003-2004 voru afkvæmaprófaðir 11 lambhrútar á Til- raunabúinu á Hesti. Allir eru undan heimahrútum nema Svelgur 142 sem er undan Leka 00-880 frá Sveinungsvík. Tveir hrútar eru undan Hyl 01-883 sem var á sæðingarstöð Vesturlands haustið 2004 og fjórir eru undan Frosta 02-913 sem var á sæðingarstöð Suðurlands, þar af tveir albræður, þeir Kaldi 135 og Kuldi 136. Allir hrútarnir eiga ættir að rekja til Læks 97-843 frá Lækjarhúsum. /ETTERNI OG OG ÞROSKI Það má sjá ætterni og ómmæl- ingar hrútanna (töflu 1. Með- alvöðvaþykkt þeirra í septemb- er 2003 var 30,4 mm og fita 2,8 mm. Haustið 2003 vógu þeir 46,2 kg að meðaltali, um vorið höfðu þeir þyngst um 21,5 kg að jafnaði. Ægir þyngdist mest eða um 27 kg, þá Kuldi og Ylur um 23 kg. Minnst þyngdist Eldur, um 16 kg. Veturgamlir vógu hrútarnir að jafnaði 86,7 kg. Þá höfðu þeir þyngst um sumarið 19,1 kg og mest þyngdist Svelgur 28 kg. Enda var hann þyngstur hrútanna þá 104 kg. Minnst þyngdist Ylur 11 kg. Léttastur hrútanna veturgamall var (sar 74 kg. Veturgamall var (sar ekki ásetningshæfur vegna fóta- galla. NIÐURSTÖÐUR Tafla 2 sýnir helstu niðurstöður afkvæmarannsóknarinnar. Sam- kvæmt venju eru einungis hrút- lömb tekin með í afkvæmarann- sókn og byggir þessi niðurstaða á 191 falli sem slátrað var 1. október. Skrokkmál, ómmæl- ingar og stig eru leiðrétt að meðfallþunga lambana sem var 15,84 kg. Þessi hópur er talsvert léttari en síðasti árgangur sem munar 1,0 kg, skýrist það að mestu með árferðismun. Bak- vöðvinn þykknar lítillega á milli ára eða sem svarar 0,28 mm, fita á baki er heldur minni (0,07 mm). Síðufitan minnkar um 0,71 mm. Lærastigin lækka um 0,22 stig og frampartur um 0,27 stig. Þessi lækkun passar síðan nokkuð við að einkunn fyrir gerð lækkar úr 9,87 í 8,75. Tafla 1. Lambhrútar í afkvæmarannsókn 2004. Hrútur Ómmæling Faðir Föðurfaðir Móðir Móðurfaðir Nr. Nafn Vöðvi Fita Lögun Nafn Nr. Nafn Nr Nr. Nafn Nr. 129 Ægir 31,8 4,2 5 Lonti 00-088 Lækur 97-843 6921 Askur 97-835 130 (sar 32,2 2,4 4 Loppi 01-104 Lonti 00-088 7063 Áll 00-868 131 Eldur 29,7 2,6 4 Hylur 01-883 Áll 00-868 6561 Greppur 95-019 132 Ylur 25,5 1,9 4 Hylur 01-883 Áll 00-868 7221 Lækur 97-843 134 Krapi 33,1 3,7 4 Frosti 02-913 Loppi 01-104 6863 Þófi 99-068 135 Kaldi 31,5 3,7 4 Frosti 02-913 Loppi 01-104 6854 Klaufi 99-067 136 Kuldi 29,2 2,1 4 Frosti 02-913 Loppi 01-104 6854 Klaufi 99-067 137 Klammi 28,1 2,6 5 Frosti 02-913 Loppi 01-104 6493 Drussi 96-030 140 Alvis 30,0 2,5 4 Álfur 02-126 Glópur 6976 Skussi 99-073 141 Glói 32,2 2,7 4 Álfur 02-126 Glópur 6829 Náli 98-057 142 Svelgur 31,6 2,1 4 Leki 00-880 Lækur 97-843 6862 Klaufi 99-067 FREYR 04 2005

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.