Fréttablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 52
3. maí 2012 FIMMTUDAGUR36
Í dag heldur Helga Kress, fyrrum prófessor
í bókmenntafræði við Háskóla Íslands,
hádegisfyrirlestur sem ber heitið „Veiðileyfi
á konur? Um (mis)notkun persónulegra heim-
ilda í verkum nokkurra karlrithöfunda sam-
tímans”.
Fjallað verður um konur sem aðal persónur
og/eða sögumenn í sögulegum skáldsögum
eftir íslenska karlrithöfunda sam tímans. Lögð
verður áhersla á raunverulegar fyrir myndir
þeirra, einkum í skriflegum heim ildum,
vinnubrögð höfundanna við úr vinnsluna, við-
tökur bókanna og ófagleg viðbrögð við gagn-
rýni.
Helga mun meðal annars fjalla um bók-
ina Enn er morgunn eftir Böðvar Guðmunds-
son. Aðalsögupersónur hennar byggja á for-
eldrum Helgu, þeim Bruno Kress og Kristínu
Thoroddsen. Í kjölfar útgáfu bókarinnar
krafðist Helga þess að hún yrði dregin til
baka af markaði, því Böðvar hefði byggt hana
á trúnaðarupplýsingum sem Helga veitti
honum þegar þau voru hjón.
Aðrar skáldsögur sem Helga ætlar að ræða
um eru Slóð fiðrildanna, Sakleysingjarnir
og Málverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson og
Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason.
Sögusvið skáldsagnanna sem um ræðir
er Ísland og Evrópa á tímum síðari heims-
styrjaldar með sérstakri áherslu á nasismann,
auk þess sem þær teygja sig aftur á bak og
áfram í tíma og er þannig ætlað að vera „ald-
arspegill“ með íslensku konuna sem tákn-
mynd þjóðernis í miðju.
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 101 í Odda á
milli klukkan 12 og 13 í dag. - hhs
Veiðileyfi á konur í íslenskum bókmenntum
HELGA KRESS BÓKMENNTAFRÆÐINGUR
Í skugga stríðs er yfirskrift rúm-
lega vikulangrar kvikmynda-
hátíðar sem hefst í kamesi
aðalsafns Borgarbókasafns,
Tryggvagötu, föstudaginn 4. maí.
Hátíðin er haldin í samstarfi við
Goethe-Institut og er um að ræða
myndir sem gefa nokkra innsýn
í þýska kvikmyndagerð þessa
tímabils, bæði í vestri og austri.
Meðal mynda á hátíðinni verða
Die Mörder sind unter uns frá
1946, Der Hauptmann von Köpe-
nick frá 1956, og Abschied von
gestern (Anita G.) frá 1966 í leik-
stjórn Alexanders Kluge.
Hátíðin stendur til sunnu-
dagsins 13. maí. Aðgangseyrir er
enginn og allir velkomnir. Allar
myndirnar eru með þýsku tali og
enskum texta.
Í skugga stríðs
STJÓRNANDI Garðar Cortes stjórnar
Óperukórnum í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óperukórinn í Reykjavík undir
stjórn Garðars Cortes leggur
land undir hjól og heimsækir
nágrannabyggðalög við Borgar-
fjörð. Fyrsta stoppistöð er Akra-
neskirkja, þar sem kórinn tekur
þátt í messusöng sunnudaginn 6.
maí klukkan 11. Í framhaldi af
því heldur kórinn tónleika í Vina-
minni, safnaðarheimili Akranes-
kirkju, klukkan 12.30 og aðra í
Borgarneskirkju klukkan 16.
Meðal efnis á dagskrá má
finna syrpu úr Meyjarskemmu
Schuberts og einsöng og kóra úr
West Side Story, Kátu ekkjunni
og Carmen og íslenskar perlur,
meðal annars eftir Jón Ásgeirs-
son og Halldór Kiljan Laxness.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
Leggur land
undir hjól
Í tilefni af lokadegi vor sýningar
Listaháskóla Íslands efna
útskriftarnemendur og kennarar
myndlistardeildar til Málhófs í
Hafnarhúsinu sunnudaginn 6.
maí.
Á Málhófinu verða viðraðar
ýmsar spurningar sem snúa að
nýútskrifuðu myndlistarfólki,
svo sem hvernig fagurumhverfi
blasir við, hvað hefur námið
skilið eftir sig og hvað blasir við?
Fjórir fulltrúar nemenda og
fjórir fulltrúar starfandi mynd-
listarmanna, nýútskrifaðra sem
reynslumeiri, og fólks af vett-
vangi íslenskrar samtímamynd-
listar flytja örstutt erindi og lýsa
eigin sýn á stöðu mála. Í fram-
haldinu verða opnar umræður.
Málhóf hefst klukkan 13.30 í
fjölnotasal Hafnarhússins. Allir
eru velkomnir.
Málhóf mynd-
listarfólks í
Hafnarhúsinu
ÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Það er geggjað grín og leiftrandi spenna framundan á Stöð 2.
Ekki missa af Spurningabombunni sem hefst 18. maí.
Tryggðu þér áskrift í síma 512 5100 eða á stod2.is
GAMAN DRAMA FJÖLSKYLDA
#STÖÐ2
SPURNINGABOMBAN
SNÝR AFTUR Í MAÍ
HOW I MET YOUR MOTHER
TWO AND A HALF MEN
MIÐ-ÍSLAND
BIG BANG THEORY
NEW GIRL
TWO BROKE GIRLS
Ný gamanþáttaröð sem hefur
slegið öll met vestanhafs.
Hefst 9. maí
GREY’S ANATOMY
HOMELAND
GAME OF THRONES
GOSSIP GIRL
SILENT WITNESS
THE KILLING
Mögnuð endurgerð á dönsku
þáttunum Forbrydelsen.
Hefst 13 maí
THE SIMPSONS
AMERICAN IDOL
AMAZING RACE
ALGJÖR SVEPPI
SKOPPA OG SKRÍTLA
LATIBÆR
WIPEOUT USA
Kominn aftur og nú blautari
og drullugri en nokkru sinni!
Hefst 5. maí
FRÆÐSLA
FRÉTTIR
60 MINUTES
THE DAILY SHOW
SJÁLFSTÆTT FÓLK
ET
ÍSLAND Í DAG
Fréttir, fræðsla og gaman.
Vertu með í umræðunni!
Mánudaga – laugardaga
BÍÓMYNDIR
BOURNE ULTIMATUM (19. maí)
SECRETARIAT (12. maí)
88 MINUTES (26. maí)
COCO AVANT CHANEL (27. maí)
GULLIVER’S TRAVELS
Sprelligosinn Jack Black gerir
allt vitlaust í putalandi.
Laugardaginn 26. maí
FÍ
TO
N
/S
ÍA