Fréttablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 28
3. maí 2012 FIMMTUDAGUR28
timamot@frettabladid.is
SIGRÚN ELDJÁRN, rithöfundur og myndlistarmaður, á afmæli í dag.
„Það felst mikið frelsi í pensli og striga.“58
„Já, ég neita því ekki að ég upplifi
þetta sem dálítil tímamót,“ segir
Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi
hjá Forlaginu, sem er sextugur í dag.
Af því tilefni hefur hann boðið vinum
og vandamönnum til afmælisveislu,
sem hann segir að sé nokkuð ólíkt sér.
„Almennt er ég ekki mikið fyrir
veisluhöld og hef ekki gert mikið af
því í gegnum tíðina að halda upp á
afmælið, heldur verið líklegri til að
vera að heiman. En þegar lagt var að
mér að halda upp á sextugsafmælið
reyndist það tiltölulega auðsótt. Ég
hef verið að reyna að glöggva mig á
því hvað veldur.
Jóhann Páll kveðst ekki hafa komist
að einhlítu svari, honum finnist hann
að minnsta kosti ekki orðinn gamall.
„En kannski finnst mér ég hafa náð
ákveðnum hápunkti, ef svo má segja.
Því fer fjarri að ég sé orðinn leiður á
mínu starfi en ég er farinn að gera mér
ágæta grein fyrir því að ævin er bara
örstutt leiftur. Ég hafði aldrei leitt hug-
ann að þessu áður en maður áttar sig
betur og betur á þessu eftir því sem
maður eldist. Og vill sinna áhugamál-
unum á meðan maður hefur heilsu og
aldur til; það er auðvitað útgáfan og
ljósmyndun, sem ég hef mikið yndi af.
Síðast en ekki síst er ég mikill barna-
og kattakarl; ég á fjögur barnabörn og
tvo ketti og vil eiga góðar stundir með
þeim.“
Spurður hvort hann sjái fram á
breytingar á sínum starfshögum seg-
ist Jóhann Páll gjarnan vilja breyta
áherslum.
„Í allmörg ár, frá því ég keypti
mér hús í Skorradal, hefur draumur-
inn verið að draga úr daglegu amstri.
Ég vildi því gjarnan breyta áherslun-
um dálítið; ekki endilega að draga úr
vinnu en sinna útgáfuhliðinni betur.
Af því að ég er að vasast í svo mörgu
í fyrirtækinu finnst mér ég vanrækja
útgáfuhliðina, sem felur ekki bara í sér
að fá hugmyndir að bókum til að gefa
út heldur líka að eiga í samskiptum við
höfunda. Mér hefur sviðið það að hafa
sjaldan tíma lengur til að fá mér kaffi-
bolla með höfundunum og vildi gjarn-
an breyta því.“
Jóhann Páll segist enn hafa mikla
ástríðu fyrir útgáfustarfinu.
„Ég brenn enn fyrir þetta starf, það
er óbreytt. Ég held að skýringin sé
meðal annars sú að þetta er langbesta
útgáfufyrirtæki sem ég hef starfað við.
Þetta er feykivel heppnað fyrirtæki,
þótt ég segi sjálfur frá. Hér starfar
einvalalið, sem vinnur eins og ein liðs-
heild, og það er hreinn unaður að vinna
með þessu fólki og sjá afraksturinn.
bergsteinn@frettabladid.is
JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON: FAGNAR SEXTUGSAFMÆLI Í DAG
Ævin er bara örstutt leiftur
JÓHANN PÁLL Segist vilja breyta áherslum í starfi sínu, draga úr daglegu amstri í fyrirtækinu og sinna útgáfuhliðinni betur. „Mér hefur sviðið það
að hafa sjaldan tíma lengur til að fá mér kaffibolla með höfundunum og vildi gjarnan breyta því.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Merkisatburðir
1837 Háskólinn í Aþenu er stofnaður.
1902 Oddfellow-reglan hefur forgöngu um stofnun Hjúkrunar-
félags Reykjavíkur. Það er lagt niður 1937.
1970 Álverið í Straumsvík formlega tekið í notkun, en álfram-
leiðsla hafði þó hafist þar árið áður.
1986 Ísland tekur þátt í söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva í fyrsta sinn, og nær lagið „Gleðibankinn“ sextánda
sæti, en miklar vonir höfðu verið bundnar við að það yrði
mjög ofarlega í keppninni.
1998 Fyrsti áfangi Grafarvogslaugar er opnaður.
2007 Madeleine McCann, þriggja ára gamalli stúlku, er rænt úr
hótelherbergi í Portúgal, þar sem hún var með fjölskyldu
sinni í fríi.
Það var þann 3. maí 1973 að bókstafurinn z var
felldur brott úr íslenskri stafsetningu, annars
staðar en í mannanöfnum þar sem hefð var
fyrir að nota hann.
Skiptar skoðanir eru um hvenær z missti
sjálfstætt hljóðgildi og fékk framburðinn s en
margt í handritum bendir til að það hafi ekki
verið fyrr en á 16. öld. Það var því löng hefð
fyrir bókstafnum z þegar farið var að semja staf-
setningarreglur í tengslum við aukna móður-
málskennslu í skólum. Í Íslenzkum rjettritunar-
reglum eftir Halldór Kr. Friðriksson frá 1859 eru
settar fram reglur um notkun z sem eru nánast
hinar sömu og giltu allt fram til ársins 1974.
Til dæmis átti að skrifa z þar sem saman
lentu tannhljóð og s, til dæmis þið elskizt
(elskið+st), þið hafið elskazt (elskað+st), þú
veizt (veit+st), við höfum hitzt (hitt+st). Í efsta
stigi lýsingarorða eins og beztur, elztur, helztur
var einnig skrifuð z þar sem t og d voru í stofni
á undan s. Í orðinu hanzki var rituð z þar sem d
fór í stofni á undan s (hand+ski) og svo fram-
vegis.
Mörgum þótti erfitt að læra eða kenna
þessar reglur og þar kom að z var felld brott í
stafsetningu árið 1974. Heimild: Vísindavefurinn
ÞETTA GERÐIST: 3. MAÍ 1973
Z úthýst úr íslenskri stafsetningu
Elskuleg frænka okkar,
LÁRA J. ÁRNADÓTTIR
frá Burstafelli, Vestmannaeyjum,
Aflagranda 40, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 29. apríl.
Jarðsett verður frá Áskirkju þriðjudaginn
8. maí kl. 13.00.
Aðstandendur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSTA ENGILBERTSDÓTTIR
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík
laugardaginn 28. apríl.
Sigrún Þórarinsdóttir Ragnar Pálsson
Birgir Þórarinsson Dóra Sigurðardóttir
Gunnhildur Þórarinsdóttir Sveinn M. Ottósson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku faðir okkar, afi, bróðir, mágur og
uppeldisbróðir,
GYLFI SÍMONARSON
Hlíðarhjalla 46, 200 Kópavogi,
andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans
við Hringbraut 25. apríl síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju
laugardaginn 5. maí næstkomandi kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á styrktarsjóð fyrir krabbameinssjúk börn.
Anna María Gylfadóttir Júlía Líf Cadeau Önnudóttir
Helgi Valur Gylfason
Ylfa Lind Gylfadóttir Gylfi Valur Ylfuson
Sveinn Leifur Símonarson Sigurlaug Jóhanna
Bergvinsdóttir og fjölsk.
Steinn Símonarson Erla Gunnarsdóttir og fjölsk.
Sigurjóna Símonardóttir og fjölsk.
Margrét Ragnheiður Símonardóttir og fjölsk.
Margrét Birna Valdimarsdóttir og fjölsk.
Ólafur Hinrik Gunnarsson og fjölsk.
Nanna Gunnarsdóttir og fjölsk.
Baldur Gunnarsson og fjölsk.
Sambýlismaður minn og bróðir okkar,
ATLI MÁR KRISTJÁNSSON
andaðist á Landspítalanum 26. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 4. maí kl 13.00.
María Elísabet Jónsdóttir
Kristjana E. Kristjánsdóttir
Sesselja Kristjánsdóttir og aðrir aðstandendur.
Eiginkona mín, móðir okkar, amma,
langamma og systir,
HALLDÓRA BJARNADÓTTIR
Kvígindisfelli, Tálknafirði,
lést 27. apríl á gjörgæslu Landspítalans í
Fossvogi. Minningarathöfn verður í Neskirkju
fimmtudaginn 3. maí kl. 15.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar
Magnús Guðmundsson.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Norðfirði,
til heimilis að Snorrabraut 56b
í Reykjavík,
lést að kvöldi 30. apríl.
Kolbrún Sigurðardóttir
Guðlaugur Sigurðsson Alda Björk Skarphéðinsdóttir
Valgerður Sigurðardóttir Ágúst Ólafur Georgsson
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
HILDIÞÓR KR. ÓLAFSSON,
Árskógum 8, Reykjavík,
lést mánudaginn 30. apríl á Landspítalanum
við Hringbraut. Útförin verður ekki auglýst.
Anna Margrét Albertsdóttir
María Hildiþórsdóttir
Elísabet Hildiþórsdóttir Guðjón Baldursson
Þórhildur Guðjónsdóttir
Margrét Anna Guðjónsdóttir