Fréttablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 3. maí 2012 19
Þótt Frakkar deili um hvor væri skárri forseti, Sarkozy
eða Hollande, vefst yfirleitt ekki
fyrir þeim að útskýra hvers vegna
þeir þurfa forseta. Rökin eru ein-
föld og studd reynslu. Þau snúast
um völd og ábyrgð. Þannig er
þetta líka með embætti þjóðhöfð-
ingja í Bandaríkjunum og miklu
víðar. En ekki alls staðar. Nýlegar
umræður í Þýskalandi, en þar
hafa tveir forsetar sagt af sér á
jafnmörgum árum, sýna tals-
verðar efasemdir um að nútímaleg
ríki hafi not fyrir það sjónarspil,
spuna og þykjustugang sem fylgir
valdalausum þjóðhöfðingjum.
Umræður um konungdæmið í Sví-
þjóð gefa svipað til kynna og það
sama má segja um vaxandi andúð
víða um heim á þeim kjánagangi
sem einkennir sýndarheim valda-
lausra fyrirmanna.
Markmið
Sagt hefur verið um fyrirtæki
að þau séu í alvarlegum vanda ef
stjórnendurnir geta ekki útskýrt
öll helstu markmið þeirra í stuttri
lyftuferð. Svipað mætti sjálfsagt
segja um stjórnmálaflokka þótt
þeir sýni stundum undraverða
hæfileika til að lifa af eigið til-
gangsleysi. Og stjórnskipun.
Allir vita
Það tekur fólk ekki nema fáein-
ar sekúndur að útskýra tilgang
konungdæma, hvort sem menn
eru hlynntir eða andvígir slíkum
fyrirbærum. Konungbornir þjóð-
höfðingjar eru lifandi sameining-
artákn landa. Umræður um hæfi-
leika þeirra koma málinu ekki við
því frami þeirra réðst af því einu
að þeir fæddust. Slík tákn geta
jafnvel verið útlendingar. Drottn-
ing Englands ríkir sem samein-
ingartákn í Ástralíu, Kanada og
einum fimmtán öðrum sjálfstæð-
um ríkjum. Sum hefur hún lítið
sem ekkert heimsótt á löngum
valdaferli en þetta virkar samt
fyrir viðkomandi þjóðir. Ástralíu-
menn felldu fyrir fáum árum til-
lögu um stofnun lýðveldis. Ástæð-
an var ekki eingöngu hollusta við
táknmyndina heldur deilur um
hvers konar forseti ætti að koma
í staðinn.
Líka einfalt
Forsetar eru ekki sams konar
sameiningartákn þegar þeir eru
valdamestu menn hvers ríkis og
kosnir í harðvítugum kosninga-
slag. En þeir eru hins vegar tákn
og fulltrúar ríkja sinna út á við.
Þetta er vegna þess að þeir eru
teknir alvarlega af umheiminum
vegna valda sinna heima fyrir.
Hlutverk forseta flestra ríkja
Vesturheims, Afríku og einstaka
ríkja annars staðar er tvíþætt. Að
marka stjórnarstefnu hvers ríkis
og taka fulla ábyrgð á henni. Og
svo að vera alvöru fulltrúi ríkisins
gagnvart valdamönnum annarra
ríkja. Ábyrgð inn á við og alvara
út á við eru aðalatriðin.
Til hvers?
Málið vandast hins vegar ef þjóð-
höfðingi er bæði ábyrgðarlaus
af stjórnarstefnu heima fyrir
og valdalaus út á við. Eins og á
Íslandi. Í þeim tilvikum er hlut-
verk þjóðhöfðingja dálítið óljóst.
Fólk hefur óheppilega ólíkar hug-
myndir um það og ekki annars
von. Forsetar eru auðvitað ekki
teknir mjög alvarlega af umheim-
inum ef þeir hafa engin völd. Ekki
verða þeir heldur sjálfkrafa sam-
einingartákn eins og þeir sem
fæðast til slíkra verka. Svíþjóð,
þar sem kóngurinn er nánast án
hlutverks, og Sviss, sem hefur
ekki þjóðhöfðingja, dafna flestum
ríkjum betur.
Fallnir forsetar
Afsagnir tveggja forseta á tveim-
ur árum hafa knúið Þjóðverja til
að ræða um tilgang embættis-
ins. Sá fyrri flutti ræðu sem túlka
mátti sem aðra sýn á utanríkismál
en stjórnin í Berlín hafði. Forset-
inn, sem sagðist hafa verið mis-
skilinn, sagði af sér. Sem í flestum
evrópskum löndum hljómar ekk-
ert einkennilega. Sá seinni var
sakaður um að hafa þegið greiða
eins og far og uppihald af auð-
mönnum. Þetta var þó áður en
hann varð forseti, ekki á meðan
hann sat í embætti. Tilraunir
hans til spuna og fjölmiðlaleiks í
kringum málið þóttu venjulegir
pólitískir klækir en ekki sæmandi
forseta og því sagði hann af sér.
Sem flestum þótti sjálfsagt í því
landi. Eftir þessar ófarir náðist
góð samstaða á milli flokka og hjá
þjóðinni um að kjósa mann þekkt-
an af heiðarleika, siðferðisstyrk
og algeru kunnáttuleysi í spuna.
Táknmyndir
Sá maður, Gauck, er ekki sam-
einingartákn á sama hátt og þeir
einir geta verið sem fæðast til
slíkra starfa. Hann er predikari
að upplagi og menntun og ómyrk-
ur í máli. Hann er hins vegar
táknmynd gilda sem margir telja
eiga sérstakt erindi við okkar
tíma. Ekki ósvipaðar hugmyndir
komu fram í Ástralíu þegar kosið
var um framtíð konungdæmisins í
þar í landi. Lýðveldissinnar vildu
þá margir beint kjör forseta. Það
gæfi þjóðinni tækifæri til að velja
lifandi tákn þeirra gilda sem ættu
helst að einkenna landið. Menn
sögðu að jafnrétti, snobbleysi og
sanngirni væru þjóðargildi Ástr-
alíu og forseti ætti að vera lif-
andi dæmi um þetta. Írar völdu
líka nýlega forseta sem á nútíma-
íslensku gæti kallast ýktur Íri.
Hann hefði kannski ekki náð kjöri
annars staðar en hentar frændum
okkar vel.
Öryggi
Víða um heim hafa komið fram
hugmyndir um forseta sem örygg-
isventil gegn ofríki valdamanna.
Eða gegn bruðli þeirra og spill-
ingu eins og í Singapúr þar sem
forsetinn gætir varasjóða landsins
og getur hafnað embættisveiting-
um ráðamanna en kemur annars
lítið að pólitík. Öryggisventlar
geta hins vegar breyst í tíma-
sprengjur ef forsetar eru ekki
lausir við eigin metnað.
AF NETINU
Klófestu umræðuna
Athyglisverðasta 1. maí ávarpið
kom að þessu sinni frá verkalýðs-
félaginu Afli á Austurlandi. Þar
segir, að tekjuháir, með meira en
500 þúsund eftir skatta, hafi kló-
fest umræðuna um niðurfellingu
skulda. „Það er sami hópur og var
skuldsettastur. Hafði veðsett eigur
sínar upp í topp og oft lengra til að
viðhalda lífsstíl og til að fjárfesta í
góðærinu. Og úr hvaða tekjugeira
kemur stærstur hluti þingmanna og
hvaðan koma álitsgjafar fjölmiðla
og þeir sem stjórna fjölmiðlum?
Jú helstu áhrifavaldar samfélags-
umræðu í dag eru úr þessum efsta
tekjufimmtungi og því er umræðan
svo einlit og öfgakennd.”
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Aðferð til að vekja
athygli á málefnum
Þegar Louis Crossley, þekkt bar-
áttukona í umhverfismálum, kom
til Íslands á sínum tíma sagði hún
að umhverfisverndarfólk ætti að
nota öll tækifæri til að vekja athygli
á málefnum sínum, til dæmis með
því að bjóða fram umhverfisvernd-
arfólk hvar sem það væri hægt, líka
til embættis forseta Íslands.
Dæmi um þetta var þegar Eva Joly
bauð sig fram til embættis forseta
Frakklands, vissi það fyrirfram að
hún ætti ekki minnstu möguleika
en taldi það sigur fyrir sig ef hún
fengi 5%. Hún náði ekki því marki
en nýtti tækifæri sem annars hefði
ekki boðist. Héðan í frá er við
slíkum framboðum að búast hér á
landi og geta málefnin, sem vekja
á athygli á, verið hin ágætustu sem
og frambjóðendurnir.
omarragnarsson.blog.is
Ómar Ragnarsson
Tilraunir hans til
spuna og fjöl-
miðlaleiks í kringum
málið þóttu venjulegir
pólitískir klækir.
Til hvers?
Í DAG
Jón Ormur
Halldórsson
dósent