Sagnir - 01.06.2001, Blaðsíða 101

Sagnir - 01.06.2001, Blaðsíða 101
Guðmundur Arnlaugsson er fæddur árið 1976. Hann útskrifaðist með BA próf í sagnfræði frá Háskóla íslands árið 2001. Guómundur stundar nú MA nám í sagnfræði við sama skóla. „[A] sort of miniature revolution in the government of lceland//1 Af afsetningu Magnúsar Stephensen úr embætti stiftamtmanns og ritdeilum þeim er fylgdu. Það er óefað, að Magnús Stephensen var afburðamaður að hæfileikum og starfsemi, og það var sökum þess, að tillögur hans urðu miklu ráðandi í kansellíinu (- í rentukammerinu hafði hann aldrei mikinn byr -) allt þangað til honum árið 1809 lenti ákaflega saman við stiftamtmann þann, er þá var, greifa Trampe, út af Jörgensens málinu. Eftir það var meira eða minna ber- sýnileg óvinátta eða dylgjur milli hans og allra stiftamt- mannanna, er næst komu á eftir...2 Þann 22. ágúst 1809 var í Reykjavík undirritaður samningur milli tveggja íslenskra embættismanna, bræðranna Magnúsar og Stefáns Stephensen og tveggja Englendinga, Alexanders Jones skipherra og Samuels Phelps kaupmanns. Samningur þessi markaði endalok stuttrar valdatíðar Jörgens Jörgensens, eða Jörundar hundadagakonungs og áðurnefnds Samuels Phelps á íslandi. Um þau mál hefur verið mikið ritað. Hin hliðin á samn- ingnum er sú að hann markaði upphaf valdatíðar Magnúsar Stephensen í embætti stiftamtmanns. Hún entist til 6. júní 1810 en þá var Magnús settur af. Þessi stutta stiftamtmannstíð var um margt merkileg og ekki verður um það deilt að Magnús gegndi starfinu sómasamlega. En eftirmál stjórnar hans og valdatöku urðu að sama skapi langvinn og furðuleg. í kjölfar afsetningarinnar spruttu miklar deilur milli Magnúsar og fyrirrennara hans í starfi, Trampe greifa. Enginn vafi leikur á að í þeim deilum var mannorð Magnúsar illa leikið. Af deilendum Höfuðandstæðingur Magnúsar í deilum þessum var danskur greifi Fredrik Christopher Trampe stiftamtmaður. Hánn hafði verið stiftamtmaður síðan 1806 og stóð hann nú á þrítugu.3 Bjarni Thorsteinsson, síðar amtmaður, sagði um hann í sjálfsævisögu sinni að „öllu samanlögðu“ hafði greifinn borið góðan hug til íslands, og fjærri fór því, að hann vildi rýra virð- ingu þess í augum útlendra. Honum þótti hann einnig „réttsýnn maður“ með „gáfur í meðallagi“.4 Utan Trampes voru það helst Frydensberg landfógeti og ísleifur Einarsson meðdómari Magn- úsar við landsyfirréttinn, sem Magnús átti síðar sökótt við. ís- leifur þessi hafði reyndar gegnt stiftamtmannsstörfum, að beiðni Trampes, í fjaveru hans frá sumri 1807 fram til sum- ars 1809. Hann átti ekki skap saman með Magnúsi og voru skoðanir þeirra á refsingum mjög mismun- andi en ísleifur þótti bæði „einarður, strangur og sið- vandurV Hafði þó Magnús jafnan vinninginn er þeir deildu í dóminum, þar eð hinn meðdómarinn, Bene- dikt Gröndal, var oftar en ekki sammála yfirdómar- anum.6 Sumarið 1809 Valdatíð Jörgensens um sumarið varð valdur að veru- legu umróti í stjórnsýslu landsins. Þannig hafði land- og bæjarfógetinn, Rasmus Frydensberg ekki fengið að starfa sem slíkur í valdatíð Jörgensens, heldur var hann settur af. Hafði Frydensberg sig ekki mikið frammi undir valdaræningjanum, enda líklega „mjök hræddr, sem jafnan", eins og Espólín lýsir honum. Jörgensen lét hneppa hann í varðhald fyrir það eitt að leika sér úti með börnum sínum og lifði Frydensberg í sífelldri hræðslu við hann eftir það.7Stefán Þórarins- son, amtmaður í norður- og austuramtinu, sagði aldrei formlega af sér8 en virðist hafa gefið það fylli- lega í skyn við Jörgensen að hann myndi ekki gegna störfum sínum undir honum, því að annar maður var skipaður í hans stað en það var Guðmundur Schev- ing, settur sýslumaður í Barðastrandasýslu.9 Geir Vídalín biskup starfaði undir Jörgensen og Benedikt Gröndal æðri meðdómari við Landsyfirréttinn hélt áfram starfa sínum og tók einnig að sér að stýra suð- uramtinu fyrir Jörgensen.'°Áðurnefndur ísleifur Ein- arson, átti skrautlegan feril undir valdaræningjanum. I fyrstu var hann beðinn um að taka að sér stiftamt- mannsstörfin en neitaði því.11 Þann 2. júlí var hann svo handtekinn, grunaður um uppreisnaráform gegn Jörgensen. Hann sat í varðhaldi í tíu daga en var loks sleppt.12 Fjórum dögum seinna, 16. júlí, sendi ísleifur svo Jörgensen skilaboð um að hann vilji vera áfram við embætti sitt. Hann fékk að vera við það í tæpar tvær vikur en 29. júlí var Jörgensen aftur búinn að missa trúna á honum og setti hann af. Skipaði hann 99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.