Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2007, Blaðsíða 17
Keflavíkurstúlkur eru efstar í spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna í Iceland Express-deildinni. Í öðru sæti í spánni eru meistarar Hauka en liðið missti nokkra leikmenn fyr- ir tímabilið og þeirra á meðal er Hel- ena Ólafsdóttir sem valin var besti leikmaður Íslandsmótsins á síðasta tímabili og munar um minna. Eins fór Pálína Gunnlaugsdóttir úr Hauk- um til Keflavíkur en hún var valin besti varnarmaðurinn á síðustu leik- tíð. Stefnum á titilinn Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, fyr- irliði Keflavíkur, telur liðið vera sterkt og stefna þær á titilinn. „Mér líst mjög vel á spána enda er okkur spáð fyrsta sæti eins og við var að búast. Við misstum þrjá leikmenn, Maríu Benedikts- dóttur í skóla í Bandaríkj- unum og Birna (Val- garðsdótt- ir) og Svava (Stefánsdótt- ir) eru báðar óléttar. En við erum samt orðnar sterk- ari og ætlum okkur fyrsta sætið. Auk okkar og Hauka tel ég að Grindavík geti blandað sér í toppbar- áttuna. Þær eiga eftir að fá sér ann- an útlending og eiga ábyggilega eftir að verða sterkar þegar á líður,“ segir Ingibjörg. Mikið brottfall frá Haukum Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari Hauka, segir sitt lið koma sterkt til leiks þrátt fyrir miklar breytingar á leikmannahópnum. „Spáin kemur svo sem ekkert rosalega á óvart. Ef horft er á úrslit undanfarinna leikja á milli okkar og Keflavíkur og ef horft er til þeirra forfalla sem hafa orðið á okkar liði, þá er þetta eðlileg spá. Við höfum misst sex leikmenn frá síð- asta tímabili og ef önnur lið hefðu lent í þessu er ég hræddur um að þau hefðu lagt upp laupana. En það sýnir ágætlega okkar styrk að okkur er spáð öðru sæti þrátt fyrir það. Við erum að vísu búin að fá nokkra leik- menn í staðinn. Við erum með glænýtt byrjun- arlið og erum að spila okkur saman en það tekur tíma. Ég hef fulla trú á Völsurum og KR-ingum líka. En það er athyglisvert að sjá að allir þjálfar- arnir eru tiltölulega reynslulitlir. Svo það tekur ábyggilega nokkurn tíma fyrir þá að læra á deildina. Svona heilt yfir er maður að von- ast eftir jafnri deild og það væri gam- an ef lakari liðin myndu ná að veita betri liðunum meiri keppni. Ég tel að það styttist alltaf í það og liðin sem eru nú í efstu deild að Val undanskyldu leggja mikla áherslu á yngri flokka þjálfun. Að sjálfsögðu er mikill metnað- ur hjá Haukum og við viljum ná sem allra bestum árangri. Til að byrja með munum við leggja mótið upp í nokkrum hlutum og meta árang- ur okkar eftir hvern hluta. En þrátt fyrir öll skakkaföllin höfum við líkt og aðrir trú á því að við munum ná að vera í toppbaráttu. Við erum hins vegar raunsæ og við vitum að það verður erfitt að fylgja viðlíka ár- angri eftir og hefur verið undanfarin ár. Helsti styrkur okkar er sá að liðið er ungt og mikið rými til framfara,“ segir Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari Hauka. DV Sport miðvikudagur 10. október 2007 17 Toshack með áhyggjur af BeniTez Liverpool-hetjan fyrrverandi John toshack hefur sagt að skiptikerfi Rafa Benitez sé í raun rugl. Helstu fyrirsagnir tengdar Liverpool eru um skiptikerfi stjórans enda hefur hann sett Fernando torres og Steven gerrard á bekkinn. Hefur þetta skapað slæmt andrúmsloft í búningsklefa Liverpool. eftir að hafa byrjað leiktímabilið vel hefur Liverpool ekki verið svipur hjá sjón undanfarið. „Ég vona svo sannarlega að rafa viti hvað hann er að gera því fólkið í Liverpool er orðið taugaóstyrkt. Þetta skiptikerfi hans hefur vakið reiði stuðningsmanna og félagsins. ef það er alltaf verið að hringla við liðið hafa leikmenn ekki tíma til að slípa sig saman. Ég held að það sé einhver ringulreið þarna í gangi. Hann hefur eytt miklum fjármunum í um 40 leikmenn síðastliðin þrjú ár og ég vona að hann hafi ekki tekið of stórt upp í sig. sTarf Bruce er öruggT Stjórnarformaður birmingham City, david gold, hefur fullvissað Steve Bruce um að starf hans sé öruggt þrátt fyrir að yfirtaka sé yfirvofandi hjá félaginu. bruce hefur sagt að hann hafi áhyggjur af starfi sínu ef Carson Yeung tekur félagið yfir. bruce hélt að tap birmingham gegn blackburn um síðustu helgi hefði verið síðasti naglinn í kistuna eftir sex ára starf. „Ég vona að þetta verði leyst sem fyrst þannig að allir geti haldið áfram. Síðast þegar ég hitti Yeung sagðist hann vilja að allir yrðu áfram.“ owen æTlar að spila Michael Owen, framherji Newcastle, hefur sagt stjóra sínum Sam allardyce að segja honum ekki hvort eða hvenær hann megi spila fyrir land sitt og þjóð. einu ráðlegging- arnar sem owen muni hlusta á komi frá ulrike muscha- weck,sem gerði aðgerðina á honum. „get ég spilað á móti eistlandi? af hverju ekki? Skurðlæknirinn sagði að það gæti ekkert farið úrskeiðis, varðandi uppskurðinn. Þó að stjórinn hér hafi sagt að ég hefði byrjað að fá verki í landsleikjunum, þá var ég farinn að fá verki löngu fyrir það. Ég gekk í gegnum eld og brennistein í sex vikur áður en ég fór í aðgerðina.“ allardyce hefur varað knattspyrnusamband englands við að það sé eins gott fyrir þá að skila ekki owen til baka meiddum. gefið roBinson smá frið ben Foster, markvörður manchester un- ited, hefur beðið fjölmiðla að láta Paul Robinson fá smá frí. breska pressan hefur hreinlega farið hamförum í gagnrýni sinni á robinson og hreinlega tekið hann af lífi. Foster sem er að jafna sig af meiðslum er líklegur kandídat til að taka við af robinson þegar Steve mcClaren sér ljósið. „ef Paul væri látinn í friði myndu allir hagnast á því. Það er ekki hægt að spila 50 leiki á tímabilinu í röð án þess að gera mistök. en mistök markvarða eru blásin upp sérstaklega þegar maður er aðalmarkvörður englands. Hvert einasta smáatriði er gagnrýnt og það er eitthvað sem fylgir starfinu. en það má ekki gleyma því að margir markmenn væru til í að vera í stöðu Pauls. að vera markvörður númer eitt hjá landsliðinu.“ enski BolTinnKeflvíKingum spáð sigri Keflvíkingar eru efstir í spá fyrirliða, þjálfara og forráða- manna Iceland Ex- press-deildar kvenna: ViðaR GuðjónSSOn blaðamaður skrifar: vidar@dv.is Spáin í kvennaflokki: lið stig keflavík 144 Haukar 115 valur 92 grindavík 91 kr 70 Hamar 48 Fjölnir 28 Spáð sigri ingibjörg vilbergsdóttir er fyrirliði keflavíkurstúlkna en þeim er spáð sigri i iceland express-deildinni. Valur á erfitt ferðalag fyrir höndum á meðan Stjarnan fer til Frakklands: Tel okkur geta unnið þetta lið Kvennalið Stjörnunnar mætir Mios Biganos frá Frakklandi í EHF-keppni kvenna og kvennalið Vals serbneska liðinu ZORK Napredak Krusevac í Áskorendakeppni Evrópu. Stjarnan vann frönsku meistarana í HB Metz Moselle Lorraine í síðasta mánuði og Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar, telur Mios Big- anos vera með slakara lið en Metz. „Ég met möguleika okkar til helm- inga. Þetta lið er búið að vinna tvo leiki í frönsku deildinni og tapa þrem- ur. Ég tel að þetta sé lið sem við get- um unnið og farið áfram,“ segir Aðal- steinn. „Þetta er þægilegt, við þurfum ekki að fara í langt ferðalag. Vissulega er þetta einhver spotti en þetta er þægi- legra en að fara til Úkraínu eða Rúss- lands. Þannig að ég tel okkur vera nokkuð heppin með drátt og það er skemmtilegt verkefni fram undan,“ segir Aðalsteinn, sem segir þó að eng- ar líkur séu á að Stjörnustúlkur van- meti Mios Biganos. „Íslenskur kvennahandbolti hef- ur ekki efni á að vanmeta neina þjóð. Ég hef voða litlar áhyggjur af því. Öll þessi verkefni eru krefjandi fyrir okk- ur og við erum að berjast fyrir eigin stolt og fyrir land og þjóð, þegar við förum í þessa leiki,“ segir Aðalsteinn. Fyrri leikurinn fer fram í Frakk- landi 3. eða 4. nóvember og seinni leikurinn í Mýrinni 10. eða 11. nóv- ember. „Við erum búin að spila sex Evrópuleiki til þessa og erum með 70 prósenta árangur. Þannig að við erum bara kokhraust,“ segir Aðalsteinn. Kvennalið Vals á langt og erfitt ferðalag til Serbíu fyrir höndum. Ág- úst Jóhannsson, þjálfari Vals, segir að hann hafi vonast eftir því að þurfa ekki að ferðast eins langt og raunin varð. „Þetta er bara staðan og við tökum því. Þetta er eitt af gömlu, góðu liðun- um frá Serbíu. Ég hef svo sem engar upplýsingar um liðið og hef ekkert leitað að þeim. Það er bara eitthvað sem við kíkjum á í framhaldinu,“ seg- ir Ágúst. „Ég held að við höfum ekki verið heppin með drátt. Þetta er rót- gróið félag með sterkan heimavöll. Maður vonaðist eftir einhverju aðeins auðveldara en ég held að það ætti að vera hægt að vinna þetta lið,“ segir Ág- úst. dagur@dv.is Á leið til Frakklands rakel dögg og samherjar hennar í Stjörnunni mæta franska liðinu mios biganos í eHF-keppni kvenna í handbolta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.