Morgunblaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.03.2013, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 2013 ÍÞRÓTTIR Meistaradeildin Seinni leikur Manchester United og Real Madrid fer fram á Old Trafford í kvöld. Sæti í átta liða úrslitum í húfi. Öruggt að Giggs spilar sinn þúsundasta leik. 4 Íþróttir mbl.is Ólafur Guð- mundsson, lands- liðsmaður í hand- knattleik, skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad og var næst- markahæstur þegar liðið vann Lugi HF á úti- velli 25:23 í efstu deildinni í Svíþjóð í gærkvöldi. Afar góð úrslit fyrir Ólaf og samherja hans því Lugi er í toppsæti deild- arinnar með 40 stig. Kristianstad er í fjórða sæti með 37 stig en Guif er í þriðja sæti, einnig með 37 stig, en það er lið bræðranna Kristjáns og Hauks Andréssonar. Elvar Friðriksson skoraði tvíveg- is fyrir Hammarby þegar liðið vann Ystad 27:24 á heimavelli. Ólafur með fjögur á móti toppliðinu Ólafur Guðmundsson Ekki var mikið um dýrðir hjá deildarmeist- urum Sundsvall Dragons í gær- kvöldi en liðið lék þá heimaleik á móti Uppsala sem reyndar skipti litlu máli því Sundsvall hafði þegar tryggt sér efsta sætið fyrir úr- slitakeppnina. Sundsvall tapaði stórt 69:102 fyrir Uppsala sem er í öðru sæti deildarinnar. Hlynur Bæringsson fyrirliði gerði 22 stig og Jakob Sigurðarson var með 11 stig. kris@mbl.is 22 stig Hlyns breyttu litlu Hlynur Bæringsson AFP Taplausir Patrick Sharp (10), Viktor Stalberg (25), Marcus Kruger (16), Nick Leddy (8) og Patrick Kane (88) og samherjar þeirra í Chicago Blackhawks hafa haft ríka ástæðu til að fagna í vetur því liðið er taplaust eftir fyrstu tuttugu og tvo leiki sína í hinni sterku NHL-deild í íshokkí. Kristján Jónsson kris@mbl.is Körfuknattleiksdeild KR hefur ákveðið að gera breytingar á þjálf- un karlaliðs félagsins í körfuknatt- leik. Netmiðillinn Karfan.is greindi frá því í gærkvöldi að Gunnari Sverrissyni hefði verið sagt upp sem aðstoðarþjálfara KR og Finnur Freyr Stefánsson tæki við af honum. Landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon er spilandi þjálfari KR-inga og hefur Gunnar stjórnað liðinu af hliðarlínunni. Gunnar mun hafa ákveðið að láta af störf- um sem þjálfari tveggja yngri flokka hjá félaginu í kjölfarið af þessari ákvörðun stjórnarinnar. Finnur Freyr er einnig þjálfari kvennaliðs félagsins og hefur lengi þjálfað yngri flokka hjá félaginu. Hann mun því koma að þjálfun beggja meistaraflokksliðanna, líkt og Hrafn Kristjánsson gerði um tíma. Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, sagði í samtali við Karfan.is að Finnur mundi einnig stjórna æfingum hjá karlaliðinu fyrir utan að stjórna því í leikjum. Álagið á Helga Má mun því minnka og hann getur eytt meiri kröftum í að standa sig sem leikmaður. Helgi mun þá áfram verða aðalþjálfari liðsins. KR er í 6. sæti Dominos-deildar karla þegar þrjár umferðir eru eftir af deildakeppnini. KR er með 20 stig líkt og Njarðvík sem er í 7. sæti. Stjarnan og Keflavík sem eru í 5. og 6. sæti hafa safnað saman fjórum stigum meira en KR og því ólíklegt að liðið muni hækka í töflunni fyrir úr- slitakeppnina. Fari svo að KR tak- ist að enda fyrir ofan Njarðvík og lenda í 6. sætinu þá fær liðið væntanlega Þór Þorlákshöfn eða Snæfell í úrslitakeppninni. Þeim liðum stýra þeir Benedikt Guð- mundsson og Ingi Þór Stein- þórsson sem hvor um sig þjálfuðu KR-liðið í mörg ár. KR hefur ekki gert mikið af því að skipta um þjálfara hjá karlalið- inu á miðju tímabili og gerðist það síðast árið 1997 þegar Jón Sig- urðsson tók við af Hrannari Hólm. KR-ingar gera breytingar Gunnar Sverrisson Finnur Freyr Stefánsson  Finnur Freyr Stefánsson kemur að þjálfun beggja liða KR í körfuboltanum  Gunnari Sverrissyni sagt upp störfum  Helgi Már Magnússon áfram aðalþjálfari Englandsmeist- arar Manchester City styrktu stöðu sína í 2. sæti ensku úr- valsdeildarinnar með 1:0 sigri á Aston Villa í Birmingham í gærkvöldi í loka- leik 28. umferð- arinnar. Carlos Tévez skoraði eina markið undir lok fyrri hálfleiks í fjarveru Sergio Agüero sem missti af leiknum vegna meiðsla. City er með 59 stig í 2. sæti deild- arinnar, nú fimm stigum á undan Tottenham og 12 stigum á eftir toppliði Manchester United. Aston Villa er í 18. og þriðja neðsta sæti deildarinnar en er þó jafnt næsta liði fyrir ofan, Wigan, að stigum. Tólf stigum munar Carlos Tévez

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.