Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 12

Neytendablaðið - 01.09.2011, Blaðsíða 12
Kona hafði samband við Neytendasamtökin vegna kattamatar frá IcelandPet sem þá hafði nýlega verið tekinn af markaði. Kötturinn hennar hafði veikst og þurft á dýrri aðgerð að halda og taldi hún að fóðrinu væri um að kenna. Vildi konan vita hvort hún gæti hugsanlega farið fram á skaðabætur vegna tjónsins. Forsaga málsins er sú að Matvælastofnun (MAST) höfðu borist allmargar kvartanir og athugasemdir vegna IcelandPet hundafóðurs á seinni hluta árs 2010. Í kjölfar þess voru tekin sýni af þremur teg undum hundafóðurs hjá innflytjanda (ábyrgðaraðila). Í fóðrinu greindist svokölluð cyanursýra, sem virðist valda nýrnasteinum og þvaglátsvanda hjá hundum og er efni sem ekki á að finnast í fóðri. Innflytjanda var tilkynnt um niðurstöður greininga og að MAST hygðist krefjast innköllunar á fóðrinu. Fyrirtækið kallaði inn allar tegundir fóðursins um leið og niðurstöðurnar lágu fyrir. Í framhaldinu hafði það samband við framleiðandann í Hollandi og við greiningu á hráefnum sem notuð höfðu verið í fóðrið kom í ljós að cyanursýra fannst í einu þeirra. Grunur barst að hreinsiefni sem framleiðandi hráefnisins notaði og hætti hann notkun þess. Við greiningu fóðurframleiðandans á nýrri framleiðslu mældist engin cyanursýra og var sala heimiluð á ný. Innflytjandinn hefur nú kært ákvörðun MAST um innköllun fóðursins til sjávarútvegs­ og landbúnaðarráðuneytisins. Hvað varðar fyrirspurn konunnar er í raun mjög erfitt að sækja skaðabætur þar sem ekki er gott að sanna að veikindi kattarins megi rekja til neyslu fóðurs frá IcelandPet. Kvartanir sem bárust til MAST vörðuðu eingöngu hundamat og því var kattamaturinn ekki rannsakaður. Innflytjandi tók kattamatinn þó úr sölu tímabundið á meðan málið var rannsakað. Einhverjir hundaeigendur gætu hafa orðið fyrir kostnaði vegna veikinda sem hugsanlega má rekja til neyslu fóðursins en ef fara á fram á skaðabætur verður að vera hægt að sanna með að fóðrinu sé um að kenna en það gæti reynst erfitt. Dýrafóður tekið af markaði – réttur til skaðabóta? 12 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.