Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2008, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2008, Blaðsíða 17
Sport Sport Hugsar vel um West Ham Enska félagið West Ham ítrekaði við breska ríkisútvarp-ið BBC í gær að staða Landsbankans hefði ekki áhrif á félagið. Björgólfur Guðmundsson, eigandi West Ham, var meirihlutaeigandi í bankanum en missti stöðu sína í gær þegar Fjármálaeftirlitið skipti út stjórn bankans. „West Ham er undir vernd-arvæng Björgólfs,“ er haft eftir ónafn-greindum stjórnarmanni í gær. GESTAHÚS 21 m² 45 mm bjálki GARÐHÚS 4,7-9,7 m² 34 mm bjálki VH ehf · Sími 864-2400 VINSÆLU GESTA- OG GARÐHÚSIN ERU AÐ SELJAST UPP Því fer hver að verða síðastur að eignast hús frá okkur á gamla genginu. Næsta sending gæti hækkað um 20%. 08 -0 14 3 H en na r h át ig n Völundarhús.is hafa til sölu glæsileg ný gesta- og garðhús sem eru enn sterkbyggðari en áður. Nýju húsin eru bjálkahús frá 34 mm að þykkt og koma með tvöfaldri vatnslæsingu. Húsin eru tilvalin geymsla fyrir grillið og garðhúsgögnin. GESTAHÚS 15 m² 45 mm bjálki GESTAHÚS 25 m² 70 mm bjálki MiðvikudaGur 8. OktóBEr 2008 17 Efnahagsástandið í landinu ristir nú mörg körfuknattleiksfélögin í landinu inn að beini. Breiðablik og ÍR hafa látið útlensku leikmennina sína fara og sama gerðu bik- armeistarar Snæfells. DV ræddi við stóran hluta formanna deildarinnar í gær og var hljóðið eins á öllum bæjum. Reksturinn er erfiður. Hugmynd hefur komið upp um að leika án útlendinga og er um helmingur deildarinnar samþykkur því. Hin liðin eru að hugsa málið en allavega tvö hafa neitað. „Það liggur alveg fyrir að við getum ekki leikið í alíslenskri deild,“ segir formaður Tindastóls. „Við erum búnir að semja við tvo út- lendinga en höfum engar ákvarðan- ir tekið um framhaldið. Ég býst nú ekki við því að við sendum alla heim og rekum þjálfarann. Það kemur nú ekki til greina. Við verðum allavega með tvo útlendinga,“ segir formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls, Halldór Halldórsson, um ástandið á Sauðárkróki. Vegna slæms gengis krónunn- ar gagnvart dollaranum og bágs efnahagsástands yfir höfuð hafa nú þegar lið Breiðabliks, ÍR og bikar- meistara Snæfells leyst alla útlenska leikmenn sína og Snæfell einnig þjálfarann undan samningi. Upp hefur komið sú hugmynd að leikið verði án útlendinga í ár náist sam- staða meðal liðanna í deildinni um það. DV heyrði í mörgum formönn- um liðanna í gær og sögðu þeir svip- aða sögu af fundi sem KKÍ hélt með liðunum þar sem þessi hugmynd var rædd meðal annars. Um helm- ingur deildarinnar, eða sex lið, eru samþykk því að ganga að þessari til- lögu. Þrjú til fjögur lið eru að hugsa málið og hin hafa sagt nei. Reikna má með að Þór frá Akureyri hafi sagt nei þar sem fram kom á visir.is í gær að Þórsarar ætli að halda leikstjórn- andanum Cedric Isom hjá félaginu, sama hvað. Annað lið sem ætlar ekki að ganga að þessari tillögu er lið Tindastóls. rífa hús og leggja hellur „Við erum með 5-6 heimastráka sem geta eitthvað í bland við nokkra unga gutta. Án útlendinga værum við ekki með frambærilegt lið í 1. deildinni,“ segir Halldór Halldórs- son, formaður Tindastóls. „Það liggur alveg fyrir að við getum ekki leikið í alíslenskri deild. Íslenskir leikmenn hafa ekki áhuga á að koma hingað og höfum við nú reynt nóg.“ Halldór segir reksturinn samt fínan hjá deildinni. „Hér var lítil uppsveifla og því hlýtur niðursveiflan að vera svipuð. Meistara- og drengjaflokkur var rekinn á 14,4 milljónum í fyrra. Menn halda hér að við göngum að digrum sjóðum en það er nú ekki þannig. Vissulega vorum við með fjóra útlendinga í fyrra en þeir voru ekki dýrir. Við höfum haldið að okkur höndum í rekstrinum og til dæmis fengu leikmenn hér í fyrra ekki skópar einu sinni. Þeir fá súpu í Staðarskála á leiðinni í bæinn en ekkert meira en það. Ekki einu sinni lakkríspoka,“ segir Halldór. Deildin aflaði sér 3,2 milljóna í hreinni fjár- öflun í fyrra. Þar voru leikmenn og stjórn meðal annars í því að rífa hús fyrir verktaka og leggja hellur svo eitthvað sé nefnt. suðurnesin undir feldi DV heyrði í forsvarsmönnum stórveldanna á Suð- urnesjum í gær, Grindavíkur, Kefla- víkur og Njarðvík- ur. Keflavík er með tvo útlendinga. „Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um þá en það gæti allt eins orðið að þeir verði sendir heim. Við erum að skoða okkar mál núna en við sendum þá frekar heim en að steypa okkur í skuldir,“ sagði varaformaður körfuknattleiks- deildar Keflavíkur, Brynjar Hólm Sigurðsson. Óli Björn Björgvinsson, for- maður deildarinnar hjá Grinda- vík, sagði svipað í gangi varðandi eina Kanann þeirra, Damon Bailey. „Við höfum vanalega náð endum saman og á tímabili leit þetta virki- lega vel út. En nú er maður orð- inn hræddur við að sponsorar sem hafa lofað kannski 500 þúsundum borgi aðeins 100 þúsund eða eitt- hvað þannig,“ segir Óli. Hann sagði Grindavík hafa skorið mikið nið- ur enda aðeins með einn útlend- ing í ár en ekki fimm eins og í fyrra. Vissulega er Grindavík með Brent- on Birmingham en hann er Íslend- ingur og fær borgað eins og all- ir aðrir Íslendingar. „Það er ekki hægt að líkja launum hans og Baileys saman,“ segir Óli. Nýskipaður formað- ur körfuknattleiksdeild- ar Njarðvíkur, Sigurð- ur Ólafsson, tók undir með kollegum sínum að reksturinn væri erf- iður og erfitt væri að sækja peninga. Aðspurðir um möguleika á íslenskri deild sló enginn þeirra það út af borðinu. Öll liðin eru að skoða sín mál en líst ekki illa á hug- myndina og þar voru Grindvíkingar hvað jákvæðastir. tindastóll eitt með útlendinga? Tindastóll er verst statt hvað varð- ar að lokka til sín íslenska leikmenn. Blaðamaður innti nokkra formenn eftir því hvort sá möguleiki væri fyrir hendi að leyfa Tindastóli að nota er- lenda leikmenn vegna séraðstæðna ef svo færi að hin liðin samþykktu tillöguna. Sérstaklega þar sem Stól- arnir gáfu sterkt út að þeir ætluðu sér að leika með útlendinga. Formennirnir sögðust vel vera opnir fyrir því en best í þá tillögu tók Böðvar Guðjónsson, formaður nýkrýndra Powerade-bikarmeist- ara KR. „Maður skilur vel afstöðu Tindastóls og það er engin spurning af okkar hálfu að leyfa þeim að hafa útlendinga þó deildin verði alís- lensk,“ segir Böðvar. Aðspurður um mál KR sagði hann enga tilviljun að kvennaliðið léki án útlendings enda ástandið slæmt. Hann sagði KR ekki hafa tekið ákvörðun um hvort þeir styddu alíslenska deild. „Okkur verður þó engin vorkunn að leika í þannig deild með okkar leikmanna- hóp,“ segir Böðvar enda KR með sterkan hóp íslenskra leikmanna. engin neyddur KKÍ er ekki að þvinga liðin til þess að losa sig við útlendingana og voru formennirnir sem DV ræddir við í gær ánægðir með framtak sambandsins að kalla til fundarins og ræða málin. Þess utan má KKÍ ekki banna nein- um að fá til sín útlendinga þar sem það myndi stangast á við vinnulög- gjöf Evrópusambandsins. ALÍSLENSK DEILD FER MISVEL Í LIÐIN tÓmas ÞÓr ÞÓrÐarsON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is málin rædd körfuknattleiksdeild- ir funda nú mikið til að reyna að ná lausn áður en tímabilið hefst. myNd sigtryggur darrel Flake Hefur verið einn besti miðherji deildarinnar undanfarin ár. Hann er farinn. Nate Brown Hefur verið einn besti leikstjórnandi deildarinnar undanfarin ár. Hann er farinn. farnir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.