Lögmannablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 22

Lögmannablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 22
22 lögmannablaðið tbl 02/12 Af VettVAnGi félAGsins aðalfundur lögmannafélags íslands 2012 aðalfundur lögmannafélags íslands 2012 fór fram á hilton hótel nordica miðvikudaginn 30. maí s.l. tæplega 300 félagsmenn sóttu fundinn að þessu sinni sem væntanlega má þakka því að tveir lögmenn voru í kjöri til formanns félagsins. 18 með árangurslaust fjárnám og 27 í verulegum vanskilum Á fundinum flutti Brynjar níelsson, hrl. og fráfarandi formaður félagsins, skýrslu stjórnar og nefnda félagsins fyrir liðið starfsár og minntist þriggja félagsmanna sem féllu frá á árinu. Þá gerði ingimar ingason, framkvæmdastjóri grein fyrir reikningum og afkomu félagsins, félagsdeildar og námssjóðs síðasta rekstrarár. Framkvæmdastjóri gerði að umtalsefni vaxandi vanskil lögmanna á árgjöldum og upplýsti í því samhengi að samkvæmt samantekt Lánstrausts væru 18 félagsmenn í Lögmannafélaginu með árangurslaust fjárnám á sér og aðrir 27 væri í verulegum vanskilum. væri þessi staða verulegt áhyggjuefni fyrir lögmannastéttina. kosningar Eins og fyrr segir voru tveir lögmenn í kjöri til formanns félagsins, þau Jónas Þór Guðmundsson, hrl. og Eva Bryndís Helgadóttir, hrl. niðurstaða kosningar var nokkuð afgerandi, en Jónas Þór hlaut 181 atkvæði eða 67,8%, en Eva Bryndís 86 atkvæði eða 32,2%. sjálfkjörið var í tvö laus sæti í stjórn félagsins til tveggja ára og taka þær Guðrún Björg Birgisdóttir, hrl. og Guðrún Björk Bjarnadóttir, hdl. sæti í stjórn. Áfram sitja í stjórn félagsins þeir óskar sigurðsson, hrl. og Borgar Þór Einarsson, hdl. Þá voru þau Jóhannes rúnar Jóhannsson, hrl., karl axelsson og Jóna Björk Helgadóttir, hdl., kjörin í varastjórn félagsins til eins árs. í laganefnd félagsins voru kjörin þau f.v. gunnar sturluson, brynjar níelsson, jónas Þór guðmundsson, borgar Þór einarsson, ólafur eiríksson, óskar sigurðsson og ingimar ingason. hátt á þriðja hundrað manns sótti aðalfund lmfí að þessu sinni. dóra sif tynes, hdl. viðar Lúðvíksson, hrl., Jón Elvar Guðmundsson, hdl., Jón sigurðsson, hrl., sigurður Guðmundsson, hdl., Guðrún sesselja arnardóttir, hrl. og Grímur sigurðarson, hdl. Loks voru Othar Örn Petersen, hrl. og Gústaf Þór tryggvason, hrl., kjörnir skoðunarmenn félagsins og Þorbjörg inga Jónsdóttir, hrl., til vara. samþykktir félagsins auk framangreindra liða sem falla undir venjuleg aðalfundarstörf var lögð fram og samþykkt einróma tillaga stjórnar að breytingum á samþykktum félagsins, sem felast í því að gjalddagi árgjalda er færður til 1. janúar ár hvert í stað 1. júní. sambærileg breyting á reglum félagsdeildar var samþykkt á aðalfundi hennar sem fram fór strax að loknum fundi lögbundna hluta félagsins. tillaga til stjórnar undir dagskrárliðnum önnur mál lagði ragnar aðalsteinsson, hrl., fram eftirfarandi tillögu að bókun sem samþykkt var eftir nokkrar umræður: „aðal fundur LmFí 30. maí 2012 skorar á stjórn félagsins að beita sér fyrir endurskoðun laga nr. 77/1998 um lögmenn í því skyni að auka sjálfstæði lögmannastéttarinnar. Jafnframt beiti stjórn félagsins sér fyrir lagabreytingum sem tryggi trúnaðarsamband lögmanna og skjólstæðinga þeirra, sérstaklega með hliðsjón af niðurstöðu Hæstaréttar í máli nr. 347/2012 frá 29. maí 2012.“ aðalfundur félagsdeildar Á aðalfundi félagsdeildar var kosin ný stjórn námsjóðs LmFí til þriggja ára, en í henni sitja þau Erla s. Árnadóttir, hrl., Þórólfur Jónsson, hdl., Eyvindur G. Gunnarsson, lektor og Áslaug Árnadóttir, hdl., en auk þeirra tekur sitjandi meðstjórnandi í stjórn Lögmannafélagsins sæti í stjórn sjóðsins. Ingimar Ingason.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.