Skagfirðingabók - 01.01.1980, Blaðsíða 10
EINAR BALDVIN GUÐMUNDSSON Á HRAUNUM
eftir guðmund davíðsson á Hraunum
GUÐMUNDUR DAVÍÐSSON lauk viS ritun þessa þáttar 25. marz
1939 og sendi Sögufélagi Skagfirðinga með eftirfarandi grein-
argerð:
„Eg tókst á hendur fyrir tilmæli nokkurra vina minna að
rita þátt um Einar B. Guðmundsson á Hraunum í „Sögusafn
Skagfirðinga", og það sem [hér] er ritað, er árangur viðleitni
minnar í þá átt.
Það getur vel skéð að mörgum finnist eg bera of mikið
lof á Einar, og þá helzt fyrir þá skuld, að eg sé að lýsa tengda-
föður mínum. En ef einhverjir hugsa svo, þá fara þeir villir
vegar. Eg hefi reynt að lýsa Einari sem athafnamanni og sem
manni, efdr því, sem eg kynntist honum 14 síðustu árin, sem
hann tifði, og hygg eg, að eg hafi hvergi vikið frá því rétta
í þeirri iýsingu. Við vorum oft ósammála í skoðunum, og
okkur varð oft sundurorða, en allt slíkt jafnaðist furðu fljótt,
því að hann var manna sáttfúsastur, sérstaklega ef honum
fannst, eftir nána athugun, að hann hefði ekki haft alls-
kostar rétt fyrir sér. Aftur á móti gat hann borið þungan hug
til sumra samferðarmanna sinna á lífsleiðinni um lengri tíma,
árum saman. En um þá menn talaði hann sem sjaldnast og
vildi heht engin skipti við þá eiga.“
Síðasta hluta þessa æviþáttar, þ. e. um afkomendur Ein-
ars B. Guðmundssonar, tók Olafur Pálsson verkfræðingur að
sér að auka við allt til þessa dags. Þá veittu afkomendur Einars
þessari útgáfu myndarlega fjárhagsaðstoð, en hvort tveggja þakk-
ar ritstjórnin sérstaklega. O. H.
Einar Baldvin Guðmundsson var fæddur á Hraunum í
8