Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Blaðsíða 8

Iðjuþjálfinn - 01.05.2007, Blaðsíða 8
 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2007 Skólatöskudagar voru haldnir á vegum Iðjuþjálfafélags Íslands vikuna 25.­29. september 2006. Iðjuþjálfar víðs vegar um landið heimsóttu nem­ endur í grunnskólum og veittu fræðslu og ráðleggingar varðandi notkun skólatöskunnar. Skólatöskudagarnir voru haldnir að fordæmi Bandaríska iðjuþjálfafélagsins (AOTA) sem staðið hefur fyrir School Backpack Awareness Day síðustu ár og er nú haldinn á heimsvísu. Fyrir tilstuðlan Karen Jacobs prófessors í iðjuþjálfun, sem var gestakennari við Háskólann á Akureyri haustið 2005 voru Skóla­ töskudagar haldnir á Akureyri. Karen hafði síðan frumkvæði að því að hafa samband við Lýðheilsustöð og Menntamálaráðuneytið þar sem hún kynnti forvarnargildi verkefnisins og fékk þar góðan hljómgrunn. Í kjölfarið var myndaður undirbúningsnefnd innan Iðjuþjálfafélagsins sem skipu­ lagði viðburðinn á landsvísu haustið 2006. Markmið Skólatöskudaga er fyrst og fremst forvarnargildi verkefnisins. Á undanförnum misserum hefur mikið verið fjallað um stoðkerfisvanda í sam­ félaginu. Vöðvabólgur, bakverkir og höfuðverkir eru vax­andi einkenni í nútíma þjóðfélagi og sjá má fleiri og tíðari einkenni með hækkandi aldri. Þetta hefur beint sjónum okkar að vinnuvistfræði barna. Erfitt er að segja hvað veldur vandanum þar sem margir þættir spila saman. Þar má nefna aukin kyrrseta, röng vinnuaðstaða hvort sem er í skóla eða heima, minni hreyfing og þungar byrðar. Fræðsla sem þessi er því aðeins einn þáttur að bættri heilsu og líðan. Auk þess að vera forvarnarverkefni er átakið jafnframt markaðssetning fyrir fagið. Með kynningu á iðjuþjálfun gerum við samfélagið meðvitaðra um gildi þjónustu okkar og möguleikum á að vinna frekar að bættri heilsu og líðan almennings. Haustið 2005 voru Skólatöskudagar haldnir formlega bæði á Akureyri og í Kópavogi. Karen Jacobs var gesta­ kennari við Háskólann á Akureyri og fékk iðjuþjálfa á Eyjafjarðarsvæðinu í lið með sér varðandi skipulagningu og framkvæmd skólatöskudaga. Viðburður­ inn var einnig hluti áfanga sem Karen kenndi 3ja árs nemum í iðjuþjálfun við HA. Í þeirri vinnu hönnuðu nemarnir skólatöskuálfinn sem er einkenni Skóla­ töskudaganna hér á landi. Farið var í nær alla skóla á Eyjafjarðarsvæðinu auk þess sem kynning og ráðgjöf fór fram í Pennanum á Akureyri. Tveir iðju­ þjálfar í Kópavogi tóku einnig þátt í Skólatöskudögum 2005. Þeir kynntu sér verkefnið í gegnum heimasíðu AOTA sem þeim fannst áhugavert for­ varnarverkefni fyrir grunnskólanem­ endur sem og góð kynning á faginu. Iðjuþjálfarnir fengu stuðning Kópa­ vogsbæjar og voru með fræðslu í nokkr­ um skólum bæjarins. Undirbúningsnefnd Skólatöskudaga 2006 fékk það hlutverk að skipuleggja og halda utan um framkvæmd daganna. Send voru út bréf til allra félagsmanna þar sem Skólatöskudagarnir voru kynntir og óskað eftir þátttöku iðjuþjálfa í verkefninu. Einnig voru send út kynningarbréf á allar fræðslu­ skrifstofur landsins sem og til stjórn­ enda grunnskóla. Þar kom fram að iðjuþjálfar myndu óska eftir samvinnu við einhverja grunnskóla með haust­ inu. Útbúin voru gögn, svo sem leið­ beiningablöð sem send voru heim með nemendum, kynningarbréf fyrir iðju­ þjálfa, plaköt og bókamerki. Við þessa vinnu var stuðst við veraldarvefinn t.d. upplýsingar frá AOTA sem og gögn frá ■ Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir, iðjuþjálfi hjá Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra Létta leiðin er rétta leiðin ■ Erla Björk Sveinbjörnsdóttir, iðjuþjálfi í Meðferðarteymi barna við Heilsugæslustöðina í Grafarvogi ■ Kristjana Ólafsdóttir, sjálfstætt starfandi iðjuþjálfi í skólaþjónustu Kópavogs - Skólatöskudagar 2006

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.