Helgarpósturinn - 23.07.1987, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 23.07.1987, Blaðsíða 23
HLJÓMEYKI, söngflokknum góðkunna, hefur verið boðið á tón- listarhátíð í Noregi sem hefst í næstu viku. Þar mun flokkurinn taka þátt í frumflutningi á verki eftir norska tónskáldið Kjell Mork Karlsen, sem samið er við þýðingu Knut Öde- gaards á Lilju Eysteins Asgrtms- sonar. Flutningur þessi er í tengsl- um við 100 ára afmæli byggðasafns í Lillehammer sem þykir afar merki- legt og taka þátt í honum, auk Hljómeykis, kór frá Noregi og söng- flokkur tráFinnlandi. Verkið verður æft upp á staðnum og flutt á sérstök- um tónleikum. Auk þess mun Hljómeyki syngja við sérstaka há- tíðarguðsþjónustu, sem kirkjan í Lillehammer stendur fyrir og þar munu þau syngja A Idasöng eftir Jón Nordal sem byggður er á kvæði eftir Skálda-Bjarna og er frá tímum siða- skipta og einnig gamla íslenska þjóðlagið við Lilju, en það mun vera eitt elsta þjóðlag sem hér hefur ver- ið skráð. Blúsarar Hljómsveitin Centaur sendir frá sérsína aðra plötu í dag, fimmtudag og ber hún heitið Blús djamm og er eins og nafnið gefur til kynna blús- plata, fyrsta íslenska platan sem hefur eingöngu að geyma blús, að því er þeir félagar segja sjálfir. Þeir gefa plötuna sjálfir út undir nafninu Skuldseigir hf. og segja að það fyrir- tœki hafi gefið út báðar plötur sveit- arinnar. Það standi að vtsu ekki undir nafni því þeir hafi borgað all- ar sínar skuldir. Um músíkina sögðu þeir félagar að hún væri allt frá ömmupoppi nið- ur í barnarokk, þetta er platan sem brúar kynslóðabilið eins og söngv- arinn orðaði það. Siðasta plata sveitarinnar, Same Places, kafnaði í plötuflóði en þeir eru ekkert hrædd- ir um að það gerist nú því blúsinn sé klassískur og þeir geri ekki út á sama markað og flestir aðrir. Öll lög plötunnar eru gamlir blús-,,stand- ardar" og það eina sem þeir félagar í Centaur hafa við þá gert er að út- setja og laga þá, þannig að þeir falli að leik sveitarinnar. Platan var tekin upp í Stúdíó Sýrlandi, 16 lög á 15 tímum undir stjórn Jóns Steinþórs- sonar sem er að austan. Allt efnið er tekið upp ,,læf“ og ekkert tekið upp síðar; allt spilað beint inn og þeir vildu leiðrétta ummæli einnar þekktrar sveitar sem sagðist vera eina handverksbandið, þeir væru líka handverksband. Peir sögðust bara spila eigin „fíling" og hefðu ekki verið að elta neina strauma né stefnur, létu aðra um að skilgreina það sem frá þeim kæmi. í vetur fóru þeir í ferð og heim- sóttu framhaldsskóla og þar var þeim afar vel tekið; m.a. þess vegna réðust þeir í að gera plötu. Það væri samt kannski annað, hvort fólk keypti músíkina, en þetta er líka partýplata og stuð, eins og einn þeirra orðaði það. Til þess að sannreyna þau orð verða menn að kíkja inn á Borgina í kvöld og heyra þá Centaura leika blúsfílinginn sinn og kannski troða þeir upp á Lækjartorgi síðar — ef vel viðrar. KK Centaurar í fínu blúsfötunum sínum sem þeir keyptu hjá Fríðu fraenku. LISTVIÐBURÐIR Árbæjarsafnið er opið alla daga nema mánu- daga frá kl. 10—18. M.a. eru í safninu sýning á gömlum slökkviliðsbílum, sýning á Reykjavíkurlíkönum og sýning á fornleifauppgreftri í Reykjavík. Tónleikar í kirkju safnsins sunnu- dag kl. 15.00. Ásgrímssafn Opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá 13.30—16.00. Ásmundarsafn Abstraktlist Ásmundar Sveins- sonar, opið daglega frá 10—16. Gallerí Borg Frjálst upphengi að hætti húss- ins, gamlir meistarar v/Austur- völl og nýir v/Austurstræti. Gallerí Grjót Samsýning aðstandenda. Mál- verk, grafík, skúlptúr, silfur o.fl. Gallerí Gangskör Sýningu Helga Valgeirssonar lýkur á föstudaginn en þá tekur við frjálst upphengi meðlima gallerísins. Galleríið er opið frá 12—18 virka daga, 14—18 um helgar. Gallerí Svart á hvítu Frá 15. júní fram í miðjan ágúst verður samsýning fjölmargra ís- lenskra listamanna. Gallerí Langbrók Textíll Vefnaður, tauþrykk, myndir, fatnaður o.fl. á Bókhlöðustíg 2. Krákan Unnur Svavarsdóttir sýnir akrýl- og pastelmyndir. Kjarvalsstaðir Á laugardaginn opnar sýning á norrænni hönnun í vestursal. í öðrum sölum árviss Kjarvals- sýning. Norræna húsið Sumarsýning Norræna hússins, Jón Gunnar Árnason sýnir skúlptúra sem spanna síðastlið- in 16 ár af ferli hans bæði í sýn- ingarsal í kjallara og anddyri. Nýlistasafnið við Vatnsstíg ína Salóme sýnirtextílverk. Sýn- ingunni lýkur sunnudaginn 26. júlí. Listasafn ASÍ Sumarsýning safnsinshefurver- ið framlengd um eina viku og lýkur á sunnudaginn, 26. júlí. Á sýningunni eiga verk 11 lista- menn sem vinna með margvís- legri tækni. Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga nema mánu- daga frá kl. 13.30—16.00. Högg- myndagarðurinn er opinn dag- lega frá kl. 10—17. KVIKMYNDAHUSIN ★★★★ B/áa Betty (Betty Blue) Mynd um hrikalegar geðsveiflur sem fá miður fagran endi. Sýnd í Bíóhúsinu kl. 5, 7.30 og 10. Blátt flauel (Blue Velvet). Sýnd kl. 9 í Bíóhöllinni. Herbergi með útsýni (Room with a View). Notalegur sjarmi kl. 7 í Regnboganum. Herdeildin (Platoon). Nánast óþarfi að dásama hana öllu frek- ar. Kl. 7, 9.05 og 11.15 í Háskóla- bíói. ★★★ Moskító-ströndin (The Mos- quito Coast). Sýnd kl. 7 og 9 í Bíóborginni. Krókódíla-Dundee (Crocodile ■ Dundee). Létt ævintýri kl. 9 og 11.05 í Bíóborg. Þrír vinir (Three Amigos). Hrein og bein fyndni. Kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15 í Regnboganum. Morguninn eftir (The Morning After). Áfengisvandamál kl. 9 í Bíóhöllinni. Arizona yngri (Raising Arizona). Frumlegur og bráðskemmtileg- ur ærslaleikur. Kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóborginni. Angel Heart Yfirþyrmandi blóðstraumar og galdraviðbjóður í einni mögnuð- ustu hrollvekju síðari tíma. Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15. Á eyðieyju (Castaway). Paradís á jörð hverfist í mótsögn sína. Sýnd kl. 3, 5.20, 9 og 11.15 í Regnboganum. ★★ Gullni drengurinn (The Golden Child) Murphy-tæknibrella kl. 3, 5, 9 og 11.15 í Regnboganum. Dauðinn á skriðbeltum (Wheels of Terror) kl. 9.05 og 11.05 í Regn- boganum. Wisdom. Hasarmynd, unglinga- stjarnan Emilio Estevez farinn að skrifa og leikstýra sjálfur. í Stjörnubíói kl. 7, 9 og 11. Morgan kemur heim (Morgan Stewart's Coming Home). Ungl- inga og/eða foreldravandamál afgreitt á fjörugan hátt. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóhöllinni. Heiðursvellir (Fields of Honor). Heiðarleg en vantar það sem þarf til að geta talist góð. Sýnd kl. 5 í Stjörnubíói. Innbrotsþjófurinn (Burglar). Grínmynd með Whoopi Gold- berg í Bíóhöllinni kl. 5, 7, 9 og 11. ★ Á toppinn (Over the Top). Með Stallone kl. 3.05, 5.05, 7.05 í Regnboganum. Hættuástand (Critical Condi- tion), grínmynd kl.3.10, 5.10, 9.10 og 11.10 í Regnboganum. Djöfulóöur kærasti (My Demon Lover). Grínmynd kl. 5, 7, 9 og 11 í Laugarásbíói. Meiriháttar mál (Terminal Exposure). Ljósmyndarar reyna að leysa morðgátu. Kl. 5, 7, 9 og 11 í Laugarásbíói. Martröð á Elmstræti 3 Geðsjúk- ur morðingi enn á ferð, trúlega orðinn lúinn. Fullt af tæknibrell- um. Kl. 5, 7, 9 og 11 í Laugarás- bíói. 0 Lögregluskólinn 4. Langþreytt grínmynd kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíó- höllinni. ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ mjög góð ★ ★ miðlungs ★ þolanleg O mjög vond KVIKMYNDIR * Ur myndsmiðju meistara Roegs Regnboginn: Castaway (Á eyöi- eyju) ★★★ Ensk-bandarísk. Árgerð 1986. Leikstjórn: Nicolas Roeg. Handrit: Allan Scott eftir sögu Lucy lrvine. Tónlist: Stanley Myers. Aðalhlutverk: Oliver Reed, Amanda Donohoe. Breski kvikmyndaleikstjórinn Nicolas Roeg kvað sér fyrst hljóðs á kvikmyndasviðinu sem kvik- myndatökumaður. Hann var á sín- um tíma býsna eftirsóttur sem slík- ur af metnaðarfyllri leikstjórum. Myndskyn hans er sem fyrr með eindæmum sterkt og á stundum svo yfirgengilegt að hætt er við að sumum hverjum þyki svo sem hann færist öldungis of mikið í fang. Þannig er ekki laust við að hina glettilega margslungnu myndmálsnotkun hans í Casta- way skorti nægilega mótiveringu og hreinlega drekki eiginlegu efn- isinntaki myndarinnar í ofgnótt ægifagurrar en einkar fjálglegrar kvikmyndatöku. Annars er myndin í flesta staði með eindæmum fagmannlega unnin. Oliver Reed leikur af sinni alkunnu snilld miðaldra fráskilinn rithöfund og tveggja barna föður, sem orðinn er þreyttur á grá- myglulegum hvunndegi stór- borgarlífsins og ákveður því í sam- ráði við útgefanda sinn að eyða einu ári á eyðieyju í Suðurhöfum og vinna þar að ritstörfum. Hann auglýsir eftir ferðafélaga, konu milli tvítugs og þrítugs og kynnist þannig Lucy (Amanda Donohoe). Eftir allan nauðsynlegan undir- búning halda þau skötuhjúin síðan eins og ráð var fyrir gert til Suður- hafseyja, en fljótlega kemur í ljós að sældarlífið er þau höfðu fyrir- hugað þar syðra muni öllu meiri vandkvæðum bundið en þau höfðu áður ætlað. HELG ARPÓSTURIN N 23

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.