Gripla - 01.01.1982, Page 321
SAMTÍNINGUR
317
Greininni “Greifi úr Svíþjóð og bragsmiðir af íslandi” var einkum
ætlað að benda á þá hlutdeild sem Johan Oxenstierna átti í tóbakslof-
gerð íslendinga og í annan stað að segja frá tóbaksvísum sem Grunna-
víkur-Jón kunni eða hafði sjálfur búið til, en að öðru leyti er hún til
lítillar hlítar. Kvæði um tóbak í 17du aldar handritum munu fleiri til en
nefnd voru; Jón Samsonarson hefur einkum bent mér á Lbs. 956 8vo.
í bréfum íslenzkra manna til Ole Worms prentuðum í Bibliotheca Arna-
magnæana VII, 1948, er minnzt á tóbak (fyrst árið 1631), sjá orðið
‘tobacco’ í registri, og í Eimreiðinni IV, 1898, er ritgerð eftir Ólaf
Davíðsson, “Tóbaksnautn á íslandi að fornu”. j.h.
KERSKNIVÍSA í KIRKJUBÓK
í Skálholtsbók yngri (AM 354 fol.), sem var lögbók Skálholts-
dómkirkju frá því að hún var skrifuð og fram undir 1700, hefur ýmis-
legt verið krotað á spássíur og auðar síður, sbr. greinina ‘Af Skálholts-
vist Skálholtsbókar yngri’ í þessari Griplu, bls. 197-200.
Ein þeirra blaðsíðna sem upphaflega hafa verið auðar er 47v, og þar
má lesa eftirfarandi vísu, sem eftir skriftinni að dæma hefur trúlega
verið páruð í bókina á biskupsárum Odds biskups Einarssonar (1589-
1630) ellegar Gísla sonar hans (1632-38):
Þat vil eg sei[gia] þier þydust droz
þo hann sie fallinn nuna
adan stod honum vt vit fios
þa aptan sæ hann aa kuna.
Til skýringar á texta skal þess eins til getið að jallinn í 2. vo. sé svip-
aðrar merkingar og sinfallinn, sem Fritzner hefur dæmi um úr kristin-
rétti Árna biskups í orðabók sinni.
Ólíklegt verður að telja að Skálholtsprestur eða kennari hafi skrifað
þennan skáldskap í lögbók staðarins með kristinrétti og biskupaskipun-
um, en fremur ætlandi að skólapiltur hafi verið að verki, þó að til þess
hafi þurft nokkra bíræfni.
Svo er að sjá sem vísan hafi verið skafin, eins og fleira sem skrifað
hefur verið á blaðsíðuna, en ekki hefur verið skafið fjarska rækilega, og
fyrir bragðið hefur varðveist hér lausavísa af þeirri skáldskapargrein
sem ekki hefur átt jafn-greiða leið að kálfskinni og pappír og margt
annað. s.K.