Öldin - 07.10.1891, Blaðsíða 1
ÖLDIN, an Icelandic Weekly
Iíecord of Current Events
and Contemporary Thought.
Subscr. I’rice $1,50 a year.
Olafsson & Co. Publishers.
O L-
Advertising Kates:
1 inch single colunm:
1 month; 3 mo’s; 6 mo’s; 1 year
$1,00; $2,50; $4,50; $8,00.
Adr.: Box 535, Winnipeg, Man.
|t j, WINNIPEO, MAN., MIÐKUDAG, 7. OKTÓfí. |g0|
A TT4 ÖLDIN komr svona seint
út, 3—5 vikum síðar en upp-
haflega var ætlað, kemr af úáreiðan-
leik letrsteypu-hússins, sem hefir
húið til letr vort. — Af sömu orsök
stafar það, að í þessu og ef til vill
einu eða tveim næstu blöðum verðr
ýmsu smávegis áfátt hjá oss með
ýmsa stafi í letrinu á ,,Öldinni“.
Annars hefir prentsm. ,,Aldarinnar“
íslenzka stafi í fleiri letrtegundum
heldr en hin blöðin, bæði Þ þ Ð ð
o. s. frv.
Þorsteinn Skúlason.
Með hlæjandi andlitið liýrt og bjart
Þú lilóst, því þú sást ekki myrkrið svart,
Sem deyðir ljósið og lífið.
Af kæti og ljöri þú fullur varst,
Sem fjöður á straumi um lífið þú barst,
Ei þyngdi þig þungbæra kífið.
Og glaðan og ánægðan oft sá ég þig,
Það undraði stórlega tíðum mig
Þitt barnshjarta óskert þú áttir.
Og það var þín andlega sumarsól,
Er sál þína verrndi, svo ekkert kol
Af því sem þú missa ei máttir.
En svo kom fregnin: frostnott köld
Var fallin á blóm þín, og hinsta kvöld,
Sem lielkalda húmskugga lagði
Svo langa og dimma á lífs þíns braut,
Að lifsveru þinnar dagsbirtan þraut
Á einu augabragði.
Þú varst ungur og þrekstör að sja,
Og þú barst hraustleikans merki þér á
Og andlega atgerfis blæinn,
Til prests þig langaði’ að læra því,
Og lentirsvo kyrlcjunnar náttmyrkrum í,
En nú sjerðu sannleikans daginn!
Nú ertu lagstitr á lága döf,
Á líkkistubotninn,—niðri í gröf,
Þú hvílist um aldur og æli.
Utan við jarðlífeins strit og stríð,
Stormana köldu og bruna-hríð
Og ofsann á æfinnar sævi.
Þú sefur nú vært ina síðustu nótt,
í svartnretti grafar allt kyrt er og hljótt
Og engar andvöku-stundir,
Því þangað ná eugin andvörp sár,
Og engin væta þar koddann tár,
Þar blæða’ ekki ógrœddar undir.
í moldu þú geymist, svo geymist
loks liver,
Á grafar-þakinu upp yfir þjer
Á vori mun grasið gróa.
Svo breiðir á liausti sitt ljósa lín
Á legstað þinn náttúran, móðir þin,
Þá frystir og fer að snjóa.
Kr. Siefdnsnoti.
F R É T T I R.
ÚTLÖND.
— Boulanger, fyrverandi her-
málaráðherra franska þjóðveldisins,
er síðar gcrðist landráðamaðr sem
verkfæri í hendi einvaldsflokkanna
og ætlaði að steypa þjóðveldinu
og komast sjálfr til valda, en varð
að fara landflótta og lifa í útlegð
in siðari ár, róð sjálfum sór bana
á miðvikudaginn 30. f. m.4 Hann
hafði. yfirgeflð konu sína og lagt
lag sitt við aðra konu, Madame du
Bonnemain. Þau unnust hugástum,
og hafði hún lagt aleigu sína,
$15,000,000, í sölurnar fyrir mál-
efni Boulangers. I sumar í Júlí
dó hún úr tæringu og var greftr-
uð í Brussel. Boulanger var orð-
inn félaus og yfirgefinn af flestum
vinum sinum, og sá varla glaðan
dag eftir andlát lijákonu sinnar.
Hann skaut sig á leiði hennar.
— Hungrið í Rússlandi. Það
eru hörmulogar sögur, sem um það
ganga. Kvennfóllí selr sig hrönnum
saman til losta fyrir mat. Foreldr-
ar selja börn síp fyrir mat; sumir
loggjast út tilrána; aðrir er sagt að
leggi sér til munns líkin af þoim
sem úr hungri deyja.
BANDARÍKIN.
— Verzlunarsamning sín á milli
ætluðu Bandaríkin og Canada að
semja um í Washington snemma í
þ. m., eða réttara sagt halda þar
fram sanlningatilraunum þeim, sem
fitjað vai' Upp á í voi'. En nú hefir
Harrison forseti beiðzt frests á samn-
ingatilraunum fyrir sakir lasleika ut-
.anríkis-ráðherrans Mr. Blaine.
— »S'kyndileg uppliefð kom ný-
lega fyrir bónda í Norðr-Dakota, S.
Sinclair að nafni. Faðir hans, James
Sinclair var enskr handiðnamaðr, og
föðui'faðir hans var ofursti í hernum.
Þessir Sinclair-ar voru fram í ættir
eitthvað dálítið skyldir George Phil-
ip Alexander, jarli af Katanesi
(Caithness). Elzti sonr jarlsins af
Katanesi ber ávallt tignarnafnið: lá-
vai'ðr af Bariáedale. Fyrir fjórum
árurn fór þossi fátæki handiðnamaðr,
James Sinolair, vestr um haf og
keypti sér jörð í Norðr-Dakota, og
nefndi heimili sitt Barriedale, som
er fomt heimilisnafn í ættinni.
Yann hann baki brotnu á jörð sinni
og miðaði laglega áfram að efnahag.
Þegar hann fór vestr, var George
Philip, 15. jarl af Katanesi, 27 ára,
hrausti' rnaðr og nýkvæntr; en 1889
dó hann sonarlaus, og lá jarldómrinn
niðri um heilt ár, unz menn vóru
gengnir úr skugga um, að tignin
hlyti að hverfa í annan leg-g ættar-
innar, og var það þá grafið upp, að
James Sinclair væri næsti ættmaðr
róttborinn til að verða jarl af Kata-
nesi, og sonr hans lávarðr af Barrie-
dale. Það var farið að halda spurn-
um fyrir honurn, og tók það ár að
hafa upp á Sinclairs-fólkinu í Norðr-
Dakota; var James þá dáinn, en
sonr lians, ungr bóndi, S. Sinclair,
er allt í einu orðinn cnskr lávarðr.
Auk lystiskóga og halla og kastala
erfir hann meðal annars 15000 ekr-
ur af landi, og nema landskuldir af
því árlega $25—30,000.—Slík breyt-
ing á lífskjörum er ærið ævintýrleg,'
og tíðari í skáldsögum en í lífinu.
CANADA.
— Dominion þinginu var slitið
á Miðvikud. 30. f. m. Það mun
lengi að minnum haft sakir allra
þeirra hneyxla, er upp hafa komizt
uni þingmenn og ráðgjafa meðan
það var saman, og þá eigi síðr fyr-
ir úrslit þau er á rannsóknunum
urðu. Virðist sem fiest blöð, þau
er eigi eru háð flokkunum hér, svo
sóm Bandaríkjablöð og Norðrálfublöð,
leggi þar öll einn dóm á, að land-
inu só öllu meiri minnkun að hvít-
þvotti stjórnarflokksins á afbrota-
mönnunum, heldr en jafnvel að sjálf-
um brotunum.
— I Quebeck harðnar nú rimma
milli fylkisstjórans Anger’s og Merci-
ers æðsta ráðgjafa hans. Út af fjár-
drætti þeim er M. var gefinn að sök,
heimti A. að sett væri dómnefnd
til rannsókna og fóllst M. og félag-
ar hans á það; en A. vill að eins
skipa ákæranda af réttvísinnar hálfu
gegn M., en neitar að skipa honum
verjanda, og þykir það hart og ó-
í'óttvíst, og einnig mjög óhyggilegt,
þar sem bönd virtust berast mjög að
M. og almenningsálitið féll heldr á
móti honum. En þessi aðforð Ang-
ers hefir aftr snúið áliti nianna M.
í hag.
— Sameining við Bandaríkin. A
opinberum fundi sem haldinn var
fyrir helgina í Windsoi', Ont., í því
skyni að ræða þetta mál, var sam-
þykt í einu hljóði, að æskilegt væri
fyrir Canada að sameinast Banda-
ríkjnnum að fullu og öllu. Fundr-
inn var fjölsóttr og ýrnsir merkis-
menn þar viðstaddir, svo sem núver.
og fyrver. þingmenn. Bréf var þar
lesið frá Goldwin Smith, er gckk í
sömu átt.
— Ilúsbruni mikill varð í Hali-
fax, N. S., 1. þ, m, Skaði metinn
nær hálfri millíón doll.
Islands-fréttir.
I. Eftir ísafold.
— Hvalr róinn á land í Grinda-
vík 4. ágúst.
— Nkðri deild alþingis kaus yfir-
dómara Jón Jensson til að endrskoða
landsreikningana (í stað Páls Briem
sýslumanns). Efri deild endrkaus
Kristján Jónsson yfirdómara til yfir-
skoðunarmanns.
— Gæzlustjóra bankans endrkaus
neðri deild alþm. séra Eirík- Briem.
— Gæzlustjóra Söfnunarsjóðsins
kaus neðri d. Björn Jonsson kennara.
— Ólafr Hblgason (Hálfdánarson-
ar) hefir fengið veiting fyrir Gaulverja-
bœjar prestakalli. — Landsliöfð. liefir
kjörið hann (Ó. H.) til *að takast á
liendr kenslu heyrnar og málleysingja
og sigldi hann því í ágúst til út-
landa til að búa sig undir það starf.
— Eptir miðjan ágúst var Ölfus-
árbrúin fullger að öllu nema tréverk-
inu (palli o. s. frv.).
— Embættispróp við prestaskólann
hafa tekið: Sæmundur Eyjólfeson og
Sigurðr Magnússon með 1. einkunn;
Jón Pálsson og Ingvar Nikulásson
með 2. og Emil Guðmundsson með 3.
— Bref úr Barðastr.sýslu, dags. 11.
ág., segir engan þorsk iiafa aflazt á
vorvertíð, nerna þilskipin öfluðu hann
vel. „Dauðans vandræði hjá öllum
þorra manna að geta fengið matvöru
eða aðrar nauðsynjar úr kaupstað".—
Kuldatíð hélzt fram í Júní-mánuð;
Svo kom gróðrarveðrátta fram í Júlí.
Gróðrarvöxtr með bezta móti og hey-
skapartíð in inndælasta. — Kíghósti í
börnum í rénun; varð ekki mann-
skæðr. Heilsufar yfir höfuð gott.
— Bryde Vestmannaeyja-kaupmaðr
hafði í sumar verzlun allmikla í Yík
í Mýrdal; gengu vöruflutningar og
milliferðir fram og aftr yfir höfuð vel
og fljótt. Skaftfellingum má í brún
bregða með hægðarauka á aðflutningum.
— Dýr hafði sézt á Látraheiði og
elt mann, sem var á ferð um heið-
ina (segir í bréfi úr Barðastr.s.).
Hann lýsti því svo, að það heíði
verið á stærð við lítinn hest, langt
og mjótt, með haus líkan kálfehaus,
rauðblesótt, og liefði stokkið áfram
líkt og köttur, en er það stóð á aftr-
fótunum var það a Iiæð við mann.
Það náði manninum einu sinni og
reif fót hans; en sökum liræðslu gat
hann eigi sagt, hvort það gerði það
með kjapti eða klóm. Sumir liafa
haldið að þetta mundi vera bjarn-
dýrshúnn. Ég talaði nýlega við
manninn sem sá það; liann er bóndi
á næsta bæ við mig. En nokkrir
fleiri liafa og séð það bæði fyr og
síðar en hann. Það var urn daginn
verið að tala um að gera að dýrinu
leit, og reyna að skjóta það; en
hvað úr því verðr, veit ég eigi“.
— Sigmundr Guðmundsson, prent-
ari, fór 23. Ágúst af stað úr Reykja-
vík, áleiðis til Ameríku — ekki getið
um 'hvert helzt.
— Nýjan kvennaskóla er Mrs. Sig-
ríðr Magnússon að stofna í húsi sínu
Vinaminni í Reykjavík, og á hann
að byrja í liaust. Mrs. M. hefir í
mörg ár verið að safna samskotum
utan lands og innan til þessa skóla.
— Alwngi var slitið 2(i. Ágúst.
— Alþingi það sem liáð var í sum-
ar er talið ið ófrjósamasta og gagns-
minnsta, er haldið hefir verið. ísa-
fold kallar það „þingið magra“, og
segir, að í frumvörpum þeirn, sem
þingið liafi samþykt (að frátöldum
fjármálalögum) muni vera „varla meira
en 2—3, seni almenningr liirðir hót
um, eða rnundi eigi láta sér á sama
standa, þótt aldrei hefði til orðið“.
Það eru: lög um þóknun lianda
hreppsnefndum; lög um ísl. texta lag-
anna (stjórnarfrumvarp, sem ákveðr,
að konungr skrifi að eins undir ísl.
textann, en enga danska þýðing); lög
um landsbankann, sem gera banka-
stjóraembættið að sérstöku embætti.
Annars var það regla á þessu þingi,
segir ísaf., að þau mál, sem nokkuð
var í varið, freru í mola, eða lmigju
fyrir bana-sigð inna konungkjörnu í
efri deild, með þá Gr. Thomsen og
Fr. Stefánsson aftan í, ýmist annan
eða báða,
(Framli. á 3 bls.)