Andbanningur - 30.09.1933, Blaðsíða 1
X
X'V, -t o n :
’.A X U j L
D ;
Reykjavík, laugardaginn 30. september 1933.
r
Askorun.
Vér undirritaðir skorum hér með á íslenzku þjóðina, að greiða í Jumst at-
kvæði gegn því banni á aðflutningi áfengra drykkja, sem nú er í lögum.
Það er hverjum manni kunnugt, að þessilög eru fótum troðin af öllum stétt-
um og flokkum manna, um land allt, og að aldrei hafa nein lög verið sett hér á
landi, sem almennar hafi verið að vettugi virt. Reynslan sýnir, að lögin eiga
elcki þá stoð í hugsunarhætti og réttarvitumd þjóðarinnar, sem til þyrfti,
að þau væri haldin og kæmu að liði. Og vér teljum þjóðinni vansæmd að því, að
hafa í orði kveðnu lög í gildi, sem hún virðir jafnlítils sem bannlög sín.
Það er löngu viðurkennt, jafnt af bannmönnum, sem andbanningum, að
þessi lög hafi ekki náð tilgangi sínum, en hins vegar hlotizt af þeim margs-
konar ófarnaður og mikil vandræði. Hafi lögin sums staðar komið að gagni,
fyrst i stað eftir að þau voru sett, þá er víst, að sá sigur hefir reynzt skamr.i-
vinnur. Og þær hömlur, sem þau enn kunna að leggja á vínnautn þjóðarinn-
ar, mega sín stórum minna en þau ráð, sem hún hefir gripið til, til þess að ge/ra
lögin að markleysu, og er líklegast, að þeim ráðum muni því almennar beitt
verða um land allt, því lengur sem lögin standa í gildi. Öll þjóðin veit, að smygl-
að vín er nú d'i'ukkið hvarvetna um strendur landsins, og að heimábrugg x
sveitum og kauptúnum fer hraðvaxandi, svo að óhætt mun að telja að þjóðin
eigi nú greiðari aðgang að sterkum drykkjum, en meðan allt áfengi varð að
sækja í kaupstaðinn.
Engu minva mun drukkið á íslandi nú, en áður en bannlögin voru sett,.
en hins vegar virðast þau hafa lamað þá öflugu bindindisstarfsemi, sem fram
til þess tíma hafði haft stórfeld áhrif á. líf þjóðarinnar. Vér sjáum ekki bet-
ur,- en að bæði sé sæmst og heillavænlegast að afnema bannlög, sem svo hafa
reynzt, og leggja inn á nýjar og heppilegri brautir í áfengismálinu, með nýrri,
skynsamlegri. áfengislöggjöf, er miðist við raunverulegt ástand í landinu.
Aðalsteinn Kristinsson
forstjóri.
Ágúst H. Bjarnason
prófessor.
Alexander Jóhannesson
prófessor.
Ámi B. Björnsson
gullsmiður.
Ámi Friðriksson
magister.
Ámi Pálsson
prófessor.
Ámi Pétursson
læknir.
Ásgeir Ásgeirsson frá FróSá
fulltrúi vegamálastjóra.
Bjami Jónsson
forstjóri Nýja Bíó. •
Bogi Ólafsson
kennari.
Brynjólfur Árnason
lögfræðingur.
Eggert Claessen
hæstar.málfærslumaður.
Einar E. Kvaran
bankabókari.
Einar Jónsson
■ magister.
Einar Ólafur Sveinsson
dr. phil., rithöfundur.
Einar Sveinsson
byggingameistari.
Finnur Einarsson
kennari.
Geir Zoega
vegamálastjóri.
Guðbrandur Jónsson
dr., rithöfundur.
Guðmundur Ásbjörnsson
bæjarfulltrúi.
Guðmundur Bergsson
póstfulltrúi.
Guðmundur Finnbogason
dr. phil., landsbókavörður.
Guðmundur Hannesson
prófessor.
Guðmundur Jónsson
skipstjóri.
Guðmundur Thoroddsen
prófessor.
Guðmundur Vilhjálmsson
forstjóri.
Gunnar Viðar
hagfræðingur.
Gunnlaugur Claessen
dr. med., yfirlæknir.
Gústaf A. Jónasson
fulltrúi lögreglustjóra.
Guttormur Andrésson
húsameistari.
Halldór Hansen
dr. med., læknir.
Halldór Jónasson
cand phil.
Halldór Þorsteinsson
skipstjóri.
Hallgrímur Benediktsson
stórkaupmaður.
Hannes Guðmundsson
læknir.
Haraldur Ámason
kaupmaður.
Helgi Bergs
forstjóri.
Helgi H. Eiríksson
verkfræðingur, skólastjóri.
Helgi Tómasson
dr. med., yfirlæknir.
Jóhann P. Jónsson
skipherra.
John Fenger
stórkaupmaður.
Jón Auðun Jónsson
forstjóri.
Jón Bergsteinsson
byggingameistari.
Jón Björnsson
kaupmaður.
Jón Halldórsson
trésmíðameistari.
Jón Hj. Sigurðsson
prófessor.
Jón Kjartansson
ritstjóri.
Jón Ólafsson
alþm., bankastjóri.
Jón Sigurðsson
skrifstofustjóri.
Jón Stefánsson
málari.
Jónas Þorbergsson
útvarpsstjóri.
ísleifur Áraason
fulltrúi lögmanns.
Kristinn Jónsson
vagnasmiður.
Kristín Thoroddsen
hjúkrunarkona.
Kristín Vídalín Jacobson
frú.
Kristján Albertson
rithöfundur.
Kristján Einarsson
forstjóri.
Lúðvík Lárusson
kaupmaður.
Magnús Jochumsson
póstfulltrúi.
Magnús Jónsson
alþm., prófessor.
Magnús Pétursson
héraðslæknir.
Níels Dungal
prófessor.
Ólafur Dan. Daníelsson
dr. phil., yfirkennari.
Ólafur Thors
alþm., forstjóri.
Ólafur Þorsteinsson
læknir.
Páll Isólfsson.
organleikari.
Páll Stefánsson frá Þverá
stórkaupmaður.
Pétur Magnússon
alþm., hæstar.málf.maður.
Pétur Sigurðsson
magister, háskólaritari.
Ragnhildur Pétursdóttir
frú.
Richard Thors
forstjóri.
Sigfús Einarsson
tónskáld.
Bannmálið á þingi. Frumvarp til laga
um afnám bannsins fluttu á síðasta
þingi Sjálfstæð' mennirnir Jón Au.
Jónsson, Ólafur Thors, Guðbrandur ís-
berg, Magnús Jóncscn og Jóhann Þ.
Jósefsson, og Framsóknarmennirnir
Bergur Jónsson, Hannes Jónsson, Bern-
hard Stefánsson, Lárus Helgason,
Bjarni Ásgeirsson og Jónas Þorbergs-
son. —
Tillöguna um að þjóðaratkvæði færi
fram um málið fluttu Framsóknavmenn-
irnir Steingrímur Steinþórsson, Bergur
Jónsson og Sveinbjöm Högnason, Og
Sjálfstæðismennirnir Guðbrandur fs-
berg og Jóhann Þ. Jósefsson.
Sigurður Briem
póstmálastjóri.
Sigurður Grímsson
lögfræðingur.
Sigurður Jónsson
rafvirki.
Sigurður Krist jánsson
ritstjóri.
Sigurður Pétursson
skipstjóri.
Sigurðúr Sigurðsson
búnaðarmálastjóri
Svafar Guðmundsson
bankaráðsformaður.
Sveinn Ingvarsson
forstjóri.
Theódór Jakobsson
skipamiðlari.
Theódór B. Líndal
hæstaréttarmálf.maður.
Torfi Hjartarson
lögfræðingur.
Tómas Jónsson
lögfræðingur.
Valtýr Albertsson
læknir.
Valtýr Stefánsson
ritstjóri.
Þórður Eyjólfsson
lögfræðingur.
Þorkell Jóhannesson
dr. phil., bókavörður.
Þorleifur Gunnarsson
bókbindari.
'.am——
Áskorun til þjóðarinnar um að af-
ne-ma bannið birtist í blöðunum sumar-
ið 1917. Meðal þeirra er undirrituðu,
og nú eru látnir, voru Matthías Joch-
umsson, Hannes Hafstein, Bjöm M. Ól-
sen, Eiríkur Briem, Sigurður Þórðarson
frá Arnarholti, Pétur Jónsson á Gaut-
löndum, Stefán Stefánsson skólameist-
ari, Kristján Jónsson þá háyfirdómari,
Aug. Flygenring, Jón Þorkelsson þjóð-
skjalavörður, Klemens Jónsson o. fl.