Forsetakjör - 28.05.1952, Blaðsíða 1
Q Q
wmm
Blað stuðningsmanna Ásgeirs Ásgeirssonar
REYKJAVIK, ZB. MAI 1952 - 1. TBL.
For§etaefni þf óðarinitai* Muytí!
ÞAÐ VAR EKKI langt liðið frá stofnun hins íslenzka lýð-
veldis, þegar menn fóru að ræða um það sín á milli, hver líkleg-
astur væri sem eftirmaður hins ástsæla forseta hr. Sveins
Björnssonar, þegar að því kæmi, að velja þyrfti þjóðhöfðingja í
hans stað. Þeir sem nokkuð hafa leitast við að kynna sér hug al-
mennings í því máli, hafa hlotið að finna það fljótt, að hugir
manna staðnæmdust yfirleitt við Ásgeir Ásgeirsson, þegar það
bar á góma, og flestir töldu trúlegast og eðlilegast að hann yrði
næsti forseti íslands.
Þetta þjóðarálit varð æ greini
legra eftir því sem árin liðu, og
á s.l. vetri, þegar svo var komið
að forsetakosningar fóru í
hönd, heyrðist varla á þær
minnst svo að ekki væri talið
sjálfsagt að Ásgeir Ásgeirsson
yrði í kjöri, og kom þá þegar
í ljós, að fjöldi fólks úr öllum
stjórnmálaflokkum hafði á-
kveðið að styðja hann, ef hann
gæfi kost á sér til framboðs.
Þessi skoðun var ekki ein-
ungis almenn hér heima á
fslandi, heldur kom hún
einnig fram í ýmsum blöð-
um á Norðurlöndum, sem
töldu Ásgeir Ásgeirsson
lang líklegasta forsetaefni
íslendinga, sakir margþættr-
ar starfsreynslu, óvenjulegra
mannkosta og glæsi
mennsku.
Má m. a. rekja þetta álit ís-
lenzku þjóðarinnar og hinna er-
lendu blaðamanna alla leið til
ársins 1930, þegar hann var for-
seti Alþingis, á þúsund ára há-
tíð þess, og leysti það vanda-
sama starf af hendi með þeim
virðuleik og glæsibrag, sem
varð íslenzku þjóðinni til mik-
illa sæmdar, enda hefur hann
æ síðan verið einn af hennar
mest metnu sonum.
í embætti forsætisráðherra,
sem hann tók við nokkru síðar,
sýndi hann enn, hve vel hann
er til virðingarstarfa fallinn, og
sem sendimaður þjóðar sinnar
á erlendum vettvangi hefur
hann alls staðar vakið athygli
fyrir háttvísi og heillandi fram-
komu. Það sem einkennt hefur
stjórnmálaferil Ásgeirs Ásgeirs-
sonar meir en flestra annarra
manna er prúðmennska, dreng-
skapur og víðsýni. Hann hefur
aldrei ausið illyrðum yfir and-
stæðinga sína, þótt þeir hafi oft
illa og ómaklega á hann deilt;
og hann hefur aldrei látið binda
sig svo sterkum flokksfjötrum,
að hann biði tjón á dómgreind
sinni og samvizku. Orsakir þess
að hann yfirgaf Framsóknar-
flokkinn á sínum tíma skulu
ekki ræddar hér, en hitt er víst,
að hann þótti þá, að dómi
margra manna, vaxa af þeim
viðskiptum. Og það sýnir bezt
rökfræðilegt umkomuleysi
þeirra manna, sem nú hafa val-
sAiaeir
tiffeír
ið sér það vonda hlutskipti, að
sporna gegn vilja þjóðarinnar
um kjör hans, að þeir hafa val-
ið sér víðsýni hans og frjáls-
lyndi að vopni gegn honum, um
leið og þeir eru, réttilega, að
segja þjóðinni að það séu helztu
Prófkosiungarnar sýna, hvert stefnír
ENGINN FRAMBJÓÐ-
ANDI hefur notið eins
almcnns stuðnings og Ás-
geir Ásgeirsson til forseta-
kjörs. — Meðmælendur
lians eru úr öllum stjórn-
málaflokkum, úr öllum kauþ
stöðum, kauptúnum og sveit-
um landsins — og af öllum
stéttum.
Meðan örfáir harðvítugir
flokksforingjar hamast
blöðum sínum og þjóta fram
og aftur um landið til þess að
reyna eftir á að handjárna
flokksmen sína til fylgis við
ákvörðun, sem þeir tóku upp
á sitt cindæmi, hefur fólkið
á vinnustöðum leikið sér að
því að kanna lið sitt. Á um
20 vinnustöðum í Reykjavík
hafa farið fram prófkosning-
ar og úrslit þeirra sýna, að
Ásgeir Ásgeirsson hefur mjög
mikinn meirihluta yfir háða
hina frambjóðendurna. Á
þessum stöðum hefur það
komið berlega í ljós, að fólk
skiptist ekki á frambjóð-
endurna eftir flokkum held-
ur aðeins eftir afstöðu sinni
til frambjóðendanna sjálfra.
Ennfremur hefur fólk tek-
ið upp nýjan „selskabsleik“.
f boðum hafa menn haft próf
kosningar. Iðnaðarmaður
nokkur átti þrítugsafmæli
fyrir nokkrum dögum. Ilann
gerði það að gami sínu að fá
alla þá, sem heimsóttu hann
til þess að greiða atkvæði í
forsetakosningunum og voru
atkvæði talin seint um
kvöldið. Úrslitin urðu þessi:
Ásgeir Ásgeirsson 33 atkv.,
Bjarni Jónsson 3, Gísli
Sveinsson 4.
Sú skemmtilega saga geng
ur í Reykjavík, að prófkosn-
ing liafi farið fram í rit-
stjórnarskrifstofum Morgun-
blaðsins og prentsmiðju
þess. Úrslitin urðu þau, að
Ásgeir Ásgeirsson hlaut
flest atkvæði.
í kaupstað úti á landi
reynir kunnur kosnigasmali
að hafa áhrif á sjómenn með
framboði Hermanns og Ól-
afs. „Þeir hlæja bara að
mér“, sagði smalinn við
kunningja sinn og strauk
svitann af enni sér.
'icjeiriion
kostirnir, sem þjóðhöfðinginn
þurfi að hafa.
Ef til vill er það bezta sönnun-
in fyrir hæfni Ásgeirs Ásgeirs-
sonar sem þjóðhöfðingja, mann
kostum hans og vinsældum, að
flokkar þeir, sem hann hefur
verið í framboði fyrir í kjör-
dæmi sínu og þingmaður í tæp
30 ár, hafa aldrei átt þar nægi-
legt atkvæðamagn til þess að
koma að manni á flokksatkvæð-
um einum. Fólkið hefur kosið
manninn sjálfan og treyst hon-
um betur en frambjóðendum
síns eigin flokks til þess að fara
með umboð sitt á löggjafar-
.samkomu þjóðarinnar. Fáir
þingmenn munu fyr eða síðar
hafa notið jafn óskiptrar hylli
bæði andstæðinga og stuðnings
manna eins og hann, enda hlýt-
ur hver maður, sem kynnist
honum persónulega, að virða
hann og treysta honum og finna
í fari hans þá eiginleika, sem
eru aðalsmerki sannra dreng-
skapai’manna.
Ásgeir Ásgeirsson er ekki í
hópi þeirra stjórnmálamana,
sem vilja hafa storma og styr
um nafn sitt. Hann hefur unn-
Frh. á bls. 2, 1. d.
KOSNINGASKRIFSTOFA
stuðningsmanna Ásgeirs Ás-
geirssonar í Reykjavík er í
Austurstræti 17. Símar skrif-
stofunnar eru 3246 og 7320. —
Hún er opin alla daga kl. 10—12
og 13—22. — Kjörskrá liggur
frammi og þar eru allar upp-
lýsingar viðvíkjandi kosning-
unum veittar.
♦
KJÓSENDUR eiga að velja á
milli framboðs örfárra stjórn-
málaforingja í Reykjavík, sem
eftir á reyna að binda trygg-
ustu fylgismenn sína, — og
frjáls framboðs þjóðarinnar
sjálfrar, manna úr öllum flokk-
um og utan allra flokka.
♦
F YRIRFR AMKO SNIN G AR
byrja um næstu helgi. Allir,
sem dvelja frá heimili sínu á
kjördegi verða að kjósa þá þeg-
ar, eða áður en þeir fara að
heiman. — Kjósendur utan
Reykjavíkur, sem staddir eru
hér, eru beðnir að kjósa sem
fyrst svo að hægt sé að senda
atkvæði þeirra til kjörstaðar
þeirra. Fólk, sem veit um menn
sem dvelja burtu, er beðið að
gera kosningaskrifstofunni að-
vart.
ÍSLENDINGAR, sem dvelja
erlendis geta kosið hjá sendi-
ráðum íslands. Fólk, sem veit
um íslendinga erlendis, sem
ekki verða komnir heim á kjör-
degi, er beðið að skrifa þeim
og hvetja þá til þess að kjósa
eða að láta kosningaskrifstof-
una vita.
♦
STUÐNINGSMENN Ásgeirs
Ásgeirssonar utan Reykjavíkur
eru beðnir að senda aðalskrif-
stofunni allar upplýsingar, sem
þeir telja að að gagni mættu
koma.
♦
ÁSGEIR ÁSGEIRSSON hef-
ur aldrci tapað kosningu, og þó
hafa hvorki Framsókn né Al-
þýðuflokkurinn nokkru sinni
átt flokkslegan meirihluta í
kjördæmi hans. — Persónulegt
viðmót og góðar gáfur hafa
tryggt honum fylgi fólksins.
♦
KÆRUFRESTUR er útrunn-
inn 7. júní. Þeir, sem eiga að
vera á kjörskrá, en eru þar ekki
verða að hafa kært yfir því
fyrir þann tíma. Komið á kosn-
ingaskrifstofuna.
LANDSBÓKASAFN
oYI ! 87024
l'SLANUS