Forsetakjör - 28.05.1952, Qupperneq 4

Forsetakjör - 28.05.1952, Qupperneq 4
4 FORSETAKJÖR Álit Tímans tr r á Asgeiri Asgeirssyni 10. apríl 1952 Eftirfarandi ummæli birtust í Tímanum 10. apríl s.l. „Allir eru sammála um, aS forsetinn eigi að vera menntað- ur vel, tala erlend tungumál og kunna háttprúða framkomu og ljúfmannlega. Einnig æskilegt að hann sé glæsimenni. Fólk veit, að þessa kosti hefur Ásgeir til að bera. Hann yrði virðuleg- ur húsbóndi á Bessastöðum. En það er ekki undir forset- anum einum komið, hvernig bragurinn yrði á hinu virðulega forsetasetri. Þar setur ekki síð- ur forsetafrúin „svip sinn á bæ- inn“. Frú Dóra Þórhallsdóttir, kona Ásgeirs, hefir gegnt á- óyrgðarmiklu húsmóðurstarfi, sem forsætisráðherrafrú ís- iands, og rækti það starf með myndarskap og trúmennsku. Hún er gáfuð kona, menntuð vel og virðuleg. Þegar minnzt er á Ásgeir, sem forseta lands okkar, er hennar alltaf getið um leið. Það er ekki sama hvaða kona ræður ríkjum á Bessastöð- um. Þessi er nú niðurstaðan hjá fjölda fólks. Það álítur Ásgeir og frú Dóru fullnægja bezt kröfum þeim, sem gera verður til forsetahjónanna. Það væri óskandi, að um virðulegasta embætti íslands yrðu engin hrossakaup og úlfúð“. Grein «r „iÞrtji'*: Eðlilegt, að stórpólitískur undirbúningur leiði til pólitískra kosninga Persónulegur óvildartónn er ekki viðeigandi um forsetakjör, Eftirfarandi grein birtist í Framsóknarblaðinu „Degi“ s Akureyri h. 21. þ.m. og er eftir ritstjórann. Riklega húinn öllum kost- um forseta Ég hef þekkt Ásgeir Ásgeirs- son allnáið í nærfellt þrjátíu ár, og þó að ég hafi kynnzt m ö r g u m drenglyndum og glæsilegum vitsmuna- og veraldar- mönnum með- al íslendinga, er það sann- færing mín, að Ásgeir Ás- geirsson sé í ríkara mæli búinn flestum þeim kostum, sem ég tel æskilegt að forseti íslands hafi til að bera, heldur en nokkur annar maður, sem ég þekki. Allir þekkja glæsileik hans og prúðmennsku, og vits- munir hans, víðtæk menntun og margþætt lífsreynsla er kunn alþjóð, en af langri kynn- ingu þykir mér mest vert um drengskap hans, virðingu lians fyrir sannfæringu annarra manna og rótgróinni ást hans á öllu því bezta og traustasta í íslenzkum menningarerfðum. GUÐMUNDUR GÍSLASON HAGALÍN, rithöfundur. Fyrir nokkrum vikum var bent á það hér í blaðinu, að þögnin um forsetakjörið væri orðin löng og undarleg. Auglýs- ing stjórnarráðsins um fram- boðsfrest og kjördag var tekin að gulna en þjóðin átti enga frambjóðendur. Blöðin birtu tillögur um menn í aðsendum bréfum, en enginn andlegur né veraldlegur leiðtogi lagði nafn sitt við slíka uppástungu nema einn þjóðsagnarritari. ^ Það er nú upplýst, hvernig á þessari þögn stóð: Viðræður flokksleiðtoganna sneru inn á Við en ekki út á við. Foringjar könnuðu fylgi líklegra manna lijá öðrum foringjum, en hættu ekki á opinberar yfirlýsingar og fylgi þjóðarinnar. Þessi und- irbúningur tók því á sig svip samninga um stjórnarmyndan- ir og málefnasamninga. En hér var þó um annars konar mál- efni að ræða. Alþingi kveður á um stuðning við slíka samn- inga, en þjóðin á að kjósa for- setann. Eins og í Pamunjom. Samkvæmt þeim yfirlýsing- um, sem fyrir liggja í sunnan- blöðum, var mikil leit að ópóli- tískum frambjóðanda, sem njti stuðnings pólitísku flokkanna og væri útnefndur af þeim. Eðli málsins samkvæmt hlaut þó hér að fara líkt og í Pamunjori enginn árangur. Stórpólit;skur undirbúningur gat ekki fætt af sér ópólitíska kosningu né samn ingaþóf flokksstjórnanna þjóð- areiningu. Til þess að ná því marki þurfti önnur tök. Hér hefur áður verið mælt með prófkosningum um land allt, í tæka tíð fyrir kjördag. Ef flokksstjórnirnar hefðu horfið I að því ráði í þann mund er þær KOSNINGASKRIFSTOFAN í Austurstræti 17, tekur á móti framlögum í kosningasjóð. settust að samningaborði fyrir 12 vikum, má telja líklegt að friðsamlegra hefði verið um forsetakjörið en nú er orðið og þjóðin stæði þá nær því að kjósa sér raunverulegan þjóð- höfðingja en útlit er fyrir í dag. En til þess að hrinda málinu áleiðis eftir þessari leið þurftu flokksleiðtogar að ræða við þjóðina áður en til útnefningar forsetaefna kom, í stað þess að ræða aðeins hver við annan. Þeir þurftu með öðrum orðum að undirbúa kosninguna út frá því sjónarmiði að forsetinn er þjóðkjörinn en ekki þingkjör- , inn og þjóðin ætlaðist aldrei til | þess að hann væri útnefndur í I leyndarráðum flokkanna. Eftir þessa forsögu er óþarfi að hneykslast á því í flokksher- búðunum, að forsetakosningin er orðin pólitísk. Sá veldur miklu, sem upphafinu veldur. Hið bogna getur ekki orðið beint og hið vantandi verður ekki tal- ið. Ásakanir á hendur einum frambjóðanda, að hann hafi rofið eininguna, fá ekki staðizt. Engin þjóðareining var fyrir hendi um þær starfsaðferðir, er uppi voru hjá flokkunum. Um það eitt má telja líklegt að hægt hefði verið að skapa þjóðarein- ingu úr því sem komið var, að menn fengju að velja í milli frambjóðenda í friði og reynt yrði að gera kosninguna virðu- lega eftir því sem efni standa til. — En óskir um slíka ein- ingu hafa nú orðið að víkja fyr- ir tilraunum til þess að fá flokks lega einingu eftir á um ákvarð- anir flokksstjórna. Enginn möguleiki er til þess að sú von rætist eins og nú er komið, en meðan hún rennur sitt skeið er þessi forsetakosning, sem þjóðin hafði vilja til þess að gera sjálf- stæða og virðulega, cfregin nið- ur í svaðið. Eins og kjördagur væri á morgun. Þótt enn séu margar vikur til kjördags, líta stórblöð höfuð- staðarins út eins og við ættum að ganga til kosninga á morg- un. Sú stund, sem rennur upp yfir alþingiskjósendur undir lok kosningabardagans, virðist því þegar komin yfir þetta forseta- kjör. Stórskotaliðinu hefur þeg- ar verið skipað til leiks, 5 dálka fyrirsagnir, heilsíðu heilræða- greinar, stór nöfn og stórar myndir eru táknmerki dagsins. Allur þessi viðbúnaður sýnir glöggt, hversu óralangt þessi kosningaundirbúningur allur er kominn út fyrir þau eðlilegu mörk, sem almenningsálitið hafði fyrir löngu sett honum. Hin harðvítuga kosningabar átta átti í huga fólksins aldrei heima hér. Og þó finnst mönu- um enn síður eiga heima á þess- um vettvangi hið persónuiega níð, sem allt of oft hefur skot- ið upp kollinum í blöðum og á mannfundum í hita hins póli tíska bardaga á liðnum árum. Þótt allir frambjóðendurnir séu þeim hæfileikum búnir, sem til þessa virðulega embættis þarf, hefur leiður fylgifiskur pólitísks ofstækis og ósanngirni skotið upp kollinum: að unna ekki kunna ekki það drengskapar- bragð að lofa svo einn að lasta ei annan. Má ekki grafa óvildina í bili? í Tímanum 18. maí er frá því skýrt, að hafinn sé persónuleg- ur áróður gegn séra Bjarna Jónssyni. Ekki hefur hans orð- ið vart hér um slóðir. Ekkert blað hefur, að því bezt verður vitað, dregið í efa mannkosti hans. Meðal þeirra, sem hefðu viljað hafa annan hátt á und- irbúningi forsetakjörsins, er ekki kunnugt um neinn, sem hefur látið sér til hugar koma að lítilsvirða hann. Hins vegar hafa menn lesið persónulegan áróður gegn öðrum frambjóð- anda — Ásgeiri Ásgeirssyni — einmitt í þessu sama blaði, sem ber sig upp undan slíkum starfs- aðferðum. Er ekki skotið yfir markið þarna? Margir munu svo mæla. Hér fer bezt á því að blöð og pólitískir leiðtogar hrapi ekki að því að láta per- sónulega óvild brennimerkja þennan kosningaundirbúning meira en orðið er. Framboðin eru komin fram, afstaðan er tekin. Er til of mik- ils mælst, að kjósendur fái að ganga að kjörborðinu í friði og kjósa eins og þeim sjálfum finnst réttast, ótruflaðir af á- róðri. Mundi það skaða nokk- urn þótt óvildarorðin væru grafin a. m. k. fram undir næstu Alþingiskosninugar? Haukur Snorrason. Þekking á stjórnmálum og atvinnumálum landsins Þegar velja skal mann til þess að skipa trúnaðarstarf, er ávallt talið skylt að gæta þess að h æ f a s t i maðurinn verði fyrir valinu. Og þegar við nú s t ö n d u m frammi fyrir þcim vanda að velja mann í virðulegasta embætti þjóð- arinnar, ber okkur vissulega fremur en nokkru sinni, að gæta þess að til þess veljist réttur maður. Ekki mun bað orka tvímælis að sá sem valinn er til forseta verði að hafa sem víðtækasta og raunhæfasta þekkingu á stjórnmálum utanlands og inn- an, sé kunnugur atvinnuvegum landsmanna, kjörum þeirra og viðhorfum. Þetta tel ég þau höfuð sjónarmið, sem valið á forseta okkar íslendinga verði að byggjast á og skilyrði þess að forsetinn geti orðið sannur þjóðhöfðingi. Öllum þessum kröfum full- nægir Ásgeir Ásgeirsson öðrum fremur, þessvegna styð ég hann til forsetakjörs. JÓN HJÁLMARSSON, erindreki Alþýðusambands íslands. Kýs Ásgeir af sömu ástæðu og Framsókn valdi hann forseta alþingis 1930 Hversvegna ég kýs Ásgeir Ásgeirsson — forseta? Því er mér ljúft að svara. Það er ekki, eins og menn halda, vegna 30 ára vináttu okkar. Séra Bjarni hefur verið vinur minn í 40 ár, og verður von- andi áfram. Nei það er af sömu ástæðum og Framspkn- arflokkurinn valdi hann forseta sameinaðs Alþingis 1930. Þá fannst enginn hæfari í það veg- lega starf. Framkoma lians öll, sannaði, að vel var valið. Hann var sjálfum sér og þjóð sinni til hins mcsta sóma. Síðan eru rösk 20 ár. Vaxið hefur hann með vanda hverjum. Vax- ið að reynslu og þroska. En prúðmennska, drengskapur og góðvild er lionum í blóð borin Þjóðin hefur sjálf valið sér forseta löngu áður en stjórnar- flokkarnir komu sér saman. Margir menn voru nefndir, sem svo smátt ogr smátt týndu töl- unni. Aldrei heyrði ég þar á meðal nöfn þeirra manna, sem efstir virðast hafa verið í liuga stjórnmálaflokkanna. Séra Bjarni hefur lokið miklu dags- prýði og myndarskap. Menn unna honum nú verðskuldaðrar hvíldar. Það er skrifað mikið um það, að forsetinn eigi að vera sam- einingartákn þjóðarinnar.. Um þetta hljóta allir að vera sam- mála. En hvor er nú líklegri til að uppfylla þetta frumskilyrði, maðurinn sem þjóðin hefur valið sér sjálf af fúsum og frjálsum vilja. Eða maðurinn, sem stjórnarflokkarnir á elleftu stundu scgja okkur að kjósa. Það er alger blekking eða hreinn misskilningur sem vcrið er að hamra á, að Ásgeir Ás- geirsson, sé borinn fram af Al- þýðuflokknum. Enda væri slíkt fásinna. Hans atkvæði lirökkva skammt. Eins og landsnefnd- in og framkvæmdanefnd- in bera með sér, standa menn úr öllum lýðræðisflokkum landsins að framboði hans. Heimili Ásgeirs og frú Dóru er höfðingjasetur. Fer vel á því, að þjóðin setji þau á mesta liöfðingjasetur landsins, Bessa- staði. MAGNÚS KJARAN. andstæðingi sannmælis og verki, og gert það með mikilli Ritstjóri og ábyrgðarmaður VÍGLUNDUR MÖLLER. Sími 3755. Félagsprentsmiðjan.

x

Forsetakjör

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forsetakjör
https://timarit.is/publication/812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.