Páskablaðið - 01.04.1919, Blaðsíða 1
Blaðið kostar ekkert.
Utgefandi kapt.
Kristian Johnsen,
Hjdlræðishernum, Akureyri
»Hann var særður vegna vorra synda og
kraminn vegna vorra misgjörða: hegningin,
sem vér höfðum til unnið, kom niður á
honum, og fyrir hans benjar urðum vér
heiibrigðir.
Jesaja 53. k. 5. v.
Sjá! múgur til Golgatha gengur
Og Guðs sonur meðal hans fer.
Menn segja hans lífi sé iokið
Og iýðurinn hlæjandi er.
Hann saklaus til iífláts er seldur,
Úr sárum hans drýpur á stig.
Ó, guð minn! hann gaf sig í dauðann,
Hann gerði það alt fyrir mig.
Kór!
Hann gerði það alt fyrir mig :,:
Ó, Guð minn! Hann gaf sig í dauðann!
Hann gerði það alt fyrir mig!
Og dauðans í kvölum hann kallar
Frá krossi um níundu stund;
Hann píndist, var þjáður af þorsta
Og þar að auk blæðandi und.
í sólskini’ og hádagsins hita
Hann hékk þar við almannastig.
Ó, Guð minn! Hann gaf sig í dauðann!
Hann gerði það alt fyrir mig!
»Mig þyrstir!« hann hrópaði hrjáður.
Ó, hugsa þú, maður, um það!
Hann þyrsti’ eftir endalausn okkar
Og um hana föður sinn bað.
Hann hugsaði’ um heiminn að frelsa,
En hugsaði ekki um sig.
Ó, Guð minn! Hann gaf sig í dauðann!
Hann gerði það alt fyrir mig!
Þessi inndæli sálmur er ortur af stabs-
kapt. Hj. Hansen, sem fyrir nokkrum árum
síðan stjórnaði starfsemi Hjálpræðishersins
hér á íslandi. — Sálmurinn er þýddur á
mörg tungumál, og er sunginn í ýmsum
söfnuðum. •
Athugasemdir og hugleiðingar.
Eftir Hershöfðingjann.
¥
Fátt er það, sem vekur meiri undrun hjá
mér, bæði í hinu opinbera starfi mínu og
samræðum við fólk, en þær sannanir, sem
eg sé fyrir mér um synd, sem er haldið leyndri
fyrir öðrum. Pað er ekki of míkið sagt, að
helmingur eymdar, óvissu og veikleika staf-
ar af þessari synd.
Tilfellið er, að mannshjartað er ekki skap-
að til þess að hugsa hið illa. Syndin er ó-
boðinn gestur. Samvizkan — guðsóttinn —
alt óskar að útrýma hinu illa og losna við