Reginn


Reginn - 17.05.1938, Blaðsíða 1

Reginn - 17.05.1938, Blaðsíða 1
I. árgangur Siglufirði, þriðjudaginn 17. maí 1938. mnmmríMiimoiiiiwTOimi 1. tölublað Til lesendanna. indismönnum er fyrst og fremst skylt að vinna þar að, og við, bindindismenn í Siglufirði, viljum beita okkur eftir mœtti í þeim efnum. Blaðið verður því fyrst og fremst helgað bindindismálum, en jafn- framt mun það, eftir ástœðum, taka til meðferðar sem flest menningar- mál, svo sem skólamál, kirkjumál, heilbrigðismál, iþróttamál o.fl. Til stjórnmála mun blaðið enga afstöðu taka, en mun þó ekki skirr- ast við að gagnrýna gerðir stjórn- málamanna og stjórnmálaflokka, án tillits til flokkaskiptinga. Enda standa að útgáfu blaðsins menn úr öllum stjórnmálaflokkum. Að endingu viljum við óska þess, að bœjarbúar taki blaðinu vel, að þeir kaupi það og lesi. Eftir við- tökunum fer það að nokkru hversu oft blaðið kemur út. Svo vildum við mega treysta því, að blaðið gœti orðið lesendunum til fróðleiks, skemmtunar og gagns. í blaðnefnd st. Framsókn no. 187. Óskar }• Þorláksson, Jón Jónsson, Þóra Jónsdóttir, Jón Kjartansson, Snorri Friðleifsson. Arið 1851 var sá félagsskapur til í New York í Ameríku, og hafði verið um mörg ár, er hét Regla Jerikó-riddara. (The Knights of Jericho). Innan þeirrar reglu var maður nokkur, enskur að ætt, er Leveret E. Coon hét. Honum þótti áhuginn farinn að dofna hjá félags- mönnum sumum hverjum, og líkaðí þess utan ekki allskostar stefnu- skráin. Hann var áhugamaður mik- ill og fékk, eftir mikil ræðuhöld og fortölur, meirihluta félagsmanna til þess, hvortveggja í senn, að breyta um nafn félagsins og stefnu- skrá. Nú skyldi félagið heita: «Regla hinna góðu musterisriddara«, (Order of Good Templars). Breytt- ist þó nafnið ennþá næsta ár og var kallað »Óháð regla hinna góðu musterisriddara« eða »The inde- pendent Order of Good Templars* sem þekkt er um allan heim af einkennisstöfunum I. O. G. T. Síð- ar breyttist nafnið enn þannig, að »Independent« breyttist í »Inter- national« — alþjóða — og svo heitir reglan nú sem kunnugt er. Fyrsta stúka þessa nýja félags- skapar taldi aðeins 13 meðlimi. Varð hún þó vísir að hinum lang- voldugasta og áhrifaríkasta bind- indisfélagsskap, er nokkurn tíma hefir starfað í heiminum. Eftir 25 (jrood-T emplarreglan. Sérhverjum íslending, sem ann þjóð sinni, og vill auka velgengni hennar og menningu, er skylt að sýna það í verki, með því að vinna af alhug, og öllum mœtti sínum, gegn því, er gerir þjóðina óstarf- liœfari, fátœkari og menningar- snauðari. Eitt af hinum ískyggilegustu og hœttulegustu átumeinum íslenzks þjóðlífs og menningar, er hin mikla áfengisnautn þjóðarinnar. Á síðustu þremur árum hefir þjóðin kastað lít meira en 10 miljónum fyrir áfengi. Pessi blóðtaka er mikil, fyrir fátœka þjóð, en þó mun eigi minna um vert spillingu þá, ómenn- ingu og siðleysi, er af drykkju- skapnum stafar. Til þess að leggja fram sinn skerf til þessa þýðingarmikla máls, hefir stúkan Framsókn no. 187 stofnað til útgáfu blaðsins REGINN. Má að vísu líta svo á, að lítið blað fái ekki miklu áorkað til þess að ráða bót á þessu mikla þjóðar- meini, drykkjuskapnum, en bind- Hér verður með nokkrum orð- um skýrt frá uppruna Good-Templ- arreglunnar, frá fyrstu starfsárum hennar og frá því hvenær hún barst fyrst til Norðurlanda. Því miður er ekki hægt að gefa annað en stutt yfirlit, rúmsins vegna, og fátt þeirra manna verður hér nefnt er fyrstir hófu baráttu þá, er Reglan hefir jafnan háð, gegn á- fengum drykkjum og böli því, er nautn þeirra leiðir yfir mannkynið. Hið göfuga starf Good-Templar- reglunnar hefir haft hin þýðingar- mestu áhrif hvarvetna þar sem hún hefir náð fótfestu, og reglan hefir að maklegleikum verið metin sem einn hinn áhrifarikasti og göfug- asti félagsskapur, til eflingar menn- ingar og siðgæðis. ár voru meðlimir þessa félags- skapar orðnir 735.000. Eins og mörg slík reglufélög hefir I. O. G. T. tekið sér reglu Frímúrara til fyrir- myndar, bæði hvað snertir leyni- siði og symbolik þeirra, »bræðra«- bandið«, og að ýmsu leyti margt fleira. Það var eðlilegt, að Frí- múrar væru teknir til fyrirmyndar, því sú Regla var heimsfræg orðin, og að góðu þekkt, mörgum öldum áður en Good-Templarareglan varð til. Eins og hjá Frímúrurum fá Good-Templarar fyrst fullan skiln- ing á innsta kjarna og leynilegustu W V

x

Reginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.